29/10/2024
Fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða verður haldinn kl. 16:30 á morgun, 30. október. Fundinum verður streymt á Youtube síðu Reykjavíkurborgar.
Dagskrá er eftirfarandi:
1. Kosning í íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Til framlagningar.
2. Starfsemi Hljóðmarka, íbúasamtaka gegn óþarfa flugumferð um Reykjavíkurflugvöll. Til kynningar.
3. Tillaga íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um fjölgun almenningssalerna í Miðborg. Til afgreiðslu.
4. Tillaga íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um aukna lýsingu í Hljómskálagarði. Til afgreiðslu.
5. Tillaga íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um nýja gönguleið á Klambratúni. Til afgreiðslu.
6. Svar við fyrirspurn íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um framtíðarskipan skóla- og frístundamála í hverfinu. Til framlagningar.
7. Framkvæmdir á horni Nóatúns og Laugavegar Til umræðu.
8. Íþróttastrætó milli hverfa. Til umræðu.
9. Hávaði vegna hátalara sem eru staðsettir utandyra í miðborg. Til umræðu.
10. Umferðarhraði á Hlíðarenda. Til umræðu.
11. Sótmælingar vegna Reykjavíkurflugvallar á Hlíðarenda. Til umræðu.
12. Tilkynning – Opið fyrir umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. Til framlagningar.
13. Tilkynninga - Breyting á úthlutunarreglum Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar. Til framlagningar.
14. Umsagnarbeiðni - drög að Ljósvistarstefnu Reykjavíkurborgar. Til afgreiðslu.
15. Umsagnarbeiðni um tillögu að breytingu á deiliskipulagi – Borgartún vestur – Borgartún 1 og 3 og Guðrúnartún 4. Til afgreiðslu.
16. Umsagnarbeiðni – Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar. Til afgreiðslu.
17. Auglýsing - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 3 við Arnarhlíð. Til framlagningar.
18. Auglýsing - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.240, Hlemmur og nágrenni og Hlemmur, umferðarskipulag, vegna breytinga á gatnamótum Laugavegs og Katrínartúns. Til framlagningar.
19. Breyting á á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna reits I við Haukahlíð, lóð nr. 6 við Haukahlíð.Til framlagningar.
20. Málefni hverfisins. Til umræðu.