LESTU.is - Bylting í bókmenntum og lestri

LESTU.is - Bylting í bókmenntum og lestri Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from LESTU.is - Bylting í bókmenntum og lestri, Library, Laugavegi 163, Reykjavík.

Bók vikunnar að þessu sinni er sótt nokkuð lang aftur í tímann. Landnámabók eða einfaldlega Landnáma er elsta ritaða hei...
14/03/2016

Bók vikunnar að þessu sinni er sótt nokkuð lang aftur í tímann. Landnámabók eða einfaldlega Landnáma er elsta ritaða heimildin um landnám Íslands. Hún hefur að geyma upptalningu landnámsmanna Íslands og oft stuttar frásagnir af þeim. Rekur hún ættir landnámsmanna og í henni er að finna 3000 eiginnöfn og 1400 örnefni. Hún er upprunalega talin hafa verið rituð á fyrri hluta 12. aldar en það eintak er glatað. Til eru fimm uppskrifanir á henni, Sturlubók, Hauksbók, Melabók, Skarðsárbók og Þórðarbók.
Sturlubók sem þið hafið hér er endurskrift frá 17. öld rituð af Jóni Erlendssyni upp úr aldagömlum skinnhandritum eftir Sturlu Þórðarson sem urðu eldinum að bráð í Kaupmannahöfn árið 1728. Hvað er hægt að hugsa sér betra en að fá sér kaffi og konfekt og leggjast yfir þessa dásamlegu bók!!!

Nú bjóðum við ykkur upp á stórvirkið Great Expectations eftir Charles Dickens. Var hún þettánda skáldsaga hans og jafnfr...
08/03/2016

Nú bjóðum við ykkur upp á stórvirkið Great Expectations eftir Charles Dickens. Var hún þettánda skáldsaga hans og jafnframt önnur skáldsagan eftir David Copperfield sem hann skrifar alfarið í fyrstu persónu. Sagan kom fyrst út sem framhaldssaga í tímaritinu All the Year Round frá desember 1860 – ágúst 1861. Í október það ár kom hún svo út á bók í þremur bindum. Varð sagan strax gríðarlega vinsæl og hefur verið það alla tíð síðan.
Sögusviðið er Kent og London á fyrri hluta 19. aldar. Aðalpersónan er munaðarleysinginn Pip sem elst upp hjá eldri systur sinni og manninum hennar og býr þar ekki við gott atlæti. Örlögin hátta því þannig að ókunnur aðili býðst óvænt til að styrkja hann til mennta og koma undir honum fótunum í lífinu. Í kjölfarið spinnur Dickens ótrúlegan en um leið afar spennandi og áhrifaríkan söguþráð sem í meðhöndlun hans gengur upp og er hreint frábær lesning. Sagan þykir listavel skrifuð og hefur að geyma margar af minnistæðustu lýsingum Dickens, ekki síst lýsingin í upphafi sögunnar þegar sögupersónan Pip hittir sakamanninn Abel Magwitch, en sú sena er hreint út sagt stórbrotin.

Á Lestu.is bjóðum við þessa vikuna upp á Þrjár sögur eftir snillinginn Benedikt Gröndal. Eru það Þórðar saga Geirmundsso...
03/03/2016

Á Lestu.is bjóðum við þessa vikuna upp á Þrjár sögur eftir snillinginn Benedikt Gröndal. Eru það Þórðar saga Geirmundssonar, Írafells-Móri og Brúðardraugurinn. Allt skemmtilegar og áhugaverðar sögur þó ólíkar séu um margt. Þórðar saga er gamansaga þar sem samtíðin er hártoguð á sviði fortíðarinnar, Írafells-Móri byggir á samnefndri þjóðsögu og Brúðardraugurinn er þýðing Benedikts á sögu Washingtons Irvings The Spectre Bridegroom sem birtist fyrst í tímaritinu Nýrri sumargjöf árið 1860 en sú saga mun hafa verið kveikjan að sögunni Úngfrúin góða og húsið eftir Halldór Laxness.

Nýlega buðum við  upp á skáldsöguna Sense and Sensibility eftir Jane Austen á Lestu.is og mæltist það vel fyrir. Nú er k...
24/02/2016

Nýlega buðum við upp á skáldsöguna Sense and Sensibility eftir Jane Austen á Lestu.is og mæltist það vel fyrir. Nú er komið að næstu sögu þessa frábæra höfundar, en það er skáldsagan Pride and Prejudice. Árið 1796, þegar Austen var 21 árs, skrifaði hún sögu sem hún nefndi First Impressions og eins og með Sense and Sensibility endurskrifaði hún hana síðar og kom hún fyrst út árið 1813 undir nafninu Pride and Prejudice (Hroki og hleypidómar). Er hún sennilega hennar þekktasta og, að margra mati, besta saga.

Þessa vikuna bjóðum við ykkur upp á fjórða s´masagnasafn Matthíasar Johannessens á Lestu.is.  Hefur það geyma 22 sögur s...
17/02/2016

Þessa vikuna bjóðum við ykkur upp á fjórða s´masagnasafn Matthíasar Johannessens á Lestu.is. Hefur það geyma 22 sögur sem áður komu út árið 1995. Flestar eru sögurnar stuttar og hnitmiðaðar lýsingar sem fanga forvitnileg augnablik eða hugsun, nema fyrsta sagan, Hvar er nú fóturinn minn, þar sem segir af hvunndagshetjunni Absalon. Mætti heldur flokka hana sem hálfgildings nóvellu. Sögur Matthíasar hafa sterk höfundareinkenni. Þær eru afar persónulegar en um leið svo almennar að þær skírskota til sameiginlegrar reynslu okkar allra. Mikið er um trúarlegar vísanir og þær endurspegla tíðarandann svo vel að það er eins og við þekkjum flestar persónurnar sem þar birtast. Frábærar sögur sem allir geta haft gaman að.

(The) Strange Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde Við erum ávallt að vinna í því að bjóða ykkur upp á það besta og skemmtile...
10/02/2016

(The) Strange Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde
Við erum ávallt að vinna í því að bjóða ykkur upp á það besta og skemmtilegasta úr heimi bókmenntanna og í dag kynnum við ykkur fyrir einni slíkri en það er skáldsagan eða nóvellan (The) Strange Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde eftir Robert Louis Stevenson kom fyrst út árið 1886. Var hún þriðja útgefna skáldsaga hins skoska rithöfundar sem áður hafði sent frá sér skáldsögurnar Treasure Island (Gulleyjan) og Prince Otto. Varð sagan eins og hinar fyrri strax gríðarlega vinsæl og hafa þær vinsældir haldist síðan. Samkvæmt Stevenson er þetta táknsaga og hafa margir leitast við að túlka hana. Flestir hallast að því að sagan endurspegli spennuna á milli stétta í ensku samfélagi þess tíma, en aðrir trúa að sagan einblíni á tilvistarkreppu einstaklingsins almennt, þ.e. þessa stöðugu baráttu sem á sér stað innra með hverjum einstaklingi.

Þið fáið nýja bók í hverri viku á Lestu.is.  Og þær eru ekki af verri endanum.
25/01/2016

Þið fáið nýja bók í hverri viku á Lestu.is. Og þær eru ekki af verri endanum.

Við vorum að bæta inn nýjum bókum á Lestu.is.  Annars vegar bókina Goðsögur frá ýmsum stöðum eftir Baldur Hafstað sem hv...
21/12/2015

Við vorum að bæta inn nýjum bókum á Lestu.is. Annars vegar bókina Goðsögur frá ýmsum stöðum eftir Baldur Hafstað sem hvergi er hægt að nálgast annars staðar, Frábært úrval sem allir geta haft gaman að. Þá bjóðum við upp á bókina A Study in Scarlet eftir Arthur Conan Doyle, þar sem Sherlock Holmes Og Dr. Watson fara á kostum.

Það verður enginn svikinn af þessum tveim sem voru að koma út á Lestu.is.  The Thirty Nine Steps er ein besta njósnasaga...
01/12/2015

Það verður enginn svikinn af þessum tveim sem voru að koma út á Lestu.is. The Thirty Nine Steps er ein besta njósnasaga sem út hefur komið og Brasilíufararnir eftir Jóhann Magnús er ævintýrasaga eins og þær gerast bestar!

Við á Lestu.is erum mikil jólabörn og erum byrjuð að setja okkur í rétta hugarfarið. Því bjóðum við núna upp á bestu jól...
17/11/2015

Við á Lestu.is erum mikil jólabörn og erum byrjuð að setja okkur í rétta hugarfarið. Því bjóðum við núna upp á bestu jólasögu allra tíma sem er A Christmas Carol eftir Charles Dickens. Gjörið svo vel!

Já, góð vísa er aldrei of oft kveðin.  Nú bjóðum við upp á ljóðasafn Jónasar Hallgrímssonar hér á Lestu.is
04/11/2015

Já, góð vísa er aldrei of oft kveðin. Nú bjóðum við upp á ljóðasafn Jónasar Hallgrímssonar hér á Lestu.is

Address

Laugavegi 163
Reykjavík
105

Telephone

+3545516400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when LESTU.is - Bylting í bókmenntum og lestri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to LESTU.is - Bylting í bókmenntum og lestri:

Share

Category