Flokkur Fólksins í Reykjavík

Flokkur Fólksins í Reykjavík Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Flokkur Fólksins í Reykjavík, Political Party, Fjörgyni 1, Reykjavík.

Vantar þig far á kjörstað? Bókaðu akstur í síma: 831-6200!
16/05/2026

Vantar þig far á kjörstað? Bókaðu akstur í síma: 831-6200!

Kæru vinir, nú er að líða að kosningum. Þið getið sett stuðningsramma Flokks fólksins utan um prófílmyndina ykkar hér. S...
15/05/2026

Kæru vinir, nú er að líða að kosningum. Þið getið sett stuðningsramma Flokks fólksins utan um prófílmyndina ykkar hér. Sjá hlekk í athugasemdum.

Við höfum sýnt að við setjum velferð fólks í forgang😊 Fólkið er í fyrsta sæti hjá Flokki fólksins
15/05/2026

Við höfum sýnt að við setjum velferð fólks í forgang😊 Fólkið er í fyrsta sæti hjá Flokki fólksins

Flokkur fólksins gekk til liðs við meirihlutann í Reykjavík með því skilyrði að ráðist yrði í stórfellda húsnæðisuppbyggingu. Það hefur nú gengið eftir með áformum um uppbyggingu þúsunda íbúða í Úlfarsárdal með tilheyrandi bílastæðum. Á þessum skamma tíma hefur flokkurinn jafnframt náð árangri í málum sem snúa að velferð, jafnræði og hagnýtum lausnum fyrir íbúa borgarinnar.

Einar Sveinbjörn Guðmundsson, 2. sæti Flokks fólksins í Reykjavík skrifaði eftirfarandi grein:

Það er mikilvægt að Flokkur fólksins fái brautargengi til að fylgja eftir tímamótalausnum sem flokkurinn beitti sér fyrir í húsnæðismálum.

🟡 Húsnæðis- og skipulagsmál
Húsnæðismál eru stærsta úrlausnarefni samtímans og þau snerta hagsmuni allra kynslóða. Flokkur fólksins hafði frumkvæði að stofnun innviðafélags í samstarfi við verkalýðshreyfinguna um uppbyggingu um fjögur þúsund íbúða í Úlfarsárdal. Þarna er á ferðinni ný nálgun í uppbyggingu húsnæðis með það að markmiði að hraða framkvæmdum og stuðla að sanngjarnara verði. Uppbyggingin í Úlfarsárdal mætir brýnni þörf fyrir hagkvæmt húsnæði sem fyrri meirihlutar í borginni höfðu ekki sinnt sem skyldi.

Í skipulags- og samgöngumálum hefur verið unnið að stórum verkefnum á borð við Sæbrautarstokk, Sundabraut, endurskipulagningu Mjóddarinnar og mótun nýrrar borgarhönnunarstefnu. Breytingar á bílastæðareglum og endurskoðun íbúakorta miða að skýrara og sanngjarnara kerfi. Þá hefur verið lögð áhersla á að tryggja að lágmarki eitt bílastæði við hverja íbúð. Þetta skref þarf að taka enn lengra og veita verktökum meira svigrúm til að mæta raunverulegum þörfum íbúa.

🟡 Velferðarmál og endurbætt leikskólaleið
Strax í upphafi meirihlutasamstarfsins lögðum við ríka áherslu á velferð barna. Eitt fyrsta verk okkar var að leysa þann hnút sem hafði myndast í kjaramálum kennara. Það var forsenda þess að tryggja stöðugleika í skólastarfi borgarinnar.

Jafnframt voru lagðar fram breytingar á skipulagi leikskóla, meðal annars varðandi skráningardaga og gjaldskrá, sem fyrsta skref til að bregðast við langvarandi manneklu. Verkefninu er langt frá því lokið en mikilvægt var að hefja breytingarnar strax.

Flokkur fólksins hafði einnig frumkvæði að því að bæta öryggi í meðhöndlun matvæla í leik- og grunnskólum með innleiðingu skyldunámskeiðs fyrir matráða. Aukið fjármagn var sett í að mæta þörfum barna með málþroskavanda og aðrar greiningar. Þar skiptir snemmtæk íhlutun sköpum fyrir barnið sjálft og samfélagið allt til lengri tíma.

Einnig var ákveðið að grunnskólabörn í Reykjavík fengju frítt í strætó. Flokkur fólksins vill ganga enn lengra og bjóða öllum börnum og ungmennum upp á ókeypis strætóferðir til 18 ára aldurs.

🟡 Frístundir, menning og tækifæri til þátttöku
Í frístunda- og menntamálum höfum við lagt sérstaka áherslu á að jafna tækifæri barna og ungmenna. Opnað var fyrir þátttöku 17 ára ungmenna í Vinnuskóla Reykjavíkur og fjármagn til íslenskukennslu og frístundastarfs var aukið.

Í Breiðholti hefur verið unnið að undirbúningi danshúss fyrir börn og ungmenni sem svar við skorti á aðstöðu fyrir skapandi starf og hreyfingu. Rými sem þetta skipta miklu máli fyrir félagslega þátttöku, sjálfstraust og lýðheilsu, sérstaklega í fjölmennum hverfum.

Þá hefur verið ákveðið að nýta Iðnó og Tjarnarbíó undir sviðslistir með markvissari hætti en áður. Þannig styrkjum við menningarinnviði borgarinnar, með stuðningi við sjálfstætt listafólk og tryggjum að menningarrými borgarinnar nýtist almenningi betur allt árið um kring.

🟡 Félagsbústaðir og hjólhýsabúar
Í janúar samþykkti borgarstjórn beint eiginfjárframlag til Félagsbústaða næstu fimm árin. Markmiðið er að hraða uppbyggingu félagslegs húsnæðis án þess að hækka leigu eða grafa undan fjárhagslegum stöðugleika félagsins. Með þessu er brugðist við fjárstreymisvanda Félagsbústaða af ábyrgð í stað þess að velta kostnaðinum yfir á tekjulægsta fólkið.

Samhliða árangri í húsnæðismálum hefur fundist nýr og öruggari staður fyrir hjólhýsabúa borgarinnar. Samningur liggur fyrir og með honum hefur Flokkur fólksins tekið á þessu máli af virðingu fyrir íbúunum og af festu. Fáir aðrir höfðu sýnt vilja til að hlúa með þessum hætti að þeim sem hvað höllustum fæti standa í borginni.

🟡 Ábyrgð skiptir máli
Árangur næst ekki með viljayfirlýsingunum einum saman. Árangur næst með samvinnu, forgangsröðun og pólitískri ábyrgð. Flokkur fólksins hefur sýnt í verki að hægt er að gera betur. Verkin tala sínu máli en það er nauðsynlegt að helda verkefnunum áfram. Mörg brýn verkefni bíða úrlausnar.

Það er nauðsynlegt að endurskoða rekstur borgarinnar frá grunni svo hægt sé að nýta fjármuni okkar enn betur þar sem þeirra er þörf hverju sinni. Til þess þarf flokk eins og Flokk fólksins. Við höfum sannað það með stuttri þátttöku okkar í ríkisstjórn og í meirihlutanum í borginni að við getum, þorum og viljum.

13/05/2026

Reykjavík þarf heimili fyrir venjulegt fólk, ekki endalausar lúxusíbúðir sem fáir hafa efni á.

Viltu leggja okkur lið síðustu dagana fyrir borgarstjórnarkosningar? Við leitum að öflugu fólki í úthringingar, bæklinga...
08/05/2026

Viltu leggja okkur lið síðustu dagana fyrir borgarstjórnarkosningar? Við leitum að öflugu fólki í úthringingar, bæklingadreifingu, akstur á kjörstað og ýmislegt fleira.
Sendu okkur línu og vertu með: [email protected]

06/05/2026

Millistjórnendavandinn hjá Reykjavíkurborg 👇

05/05/2026

Guðmundur Ingi ræðir hvernig við leysum húsnæðisvandann af skynsemi.

Flokkur fólksins býður þér í hátíðarkaffi í tilefni 10 ára afmælis flokksins.Boðið verður upp á kökur og fleiri veitinga...
03/05/2026

Flokkur fólksins býður þér í hátíðarkaffi í tilefni 10 ára afmælis flokksins.

Boðið verður upp á kökur og fleiri veitingar. Ljúfir tónar með hátíðlegri og notalegri stemningu.

Meðal gesta verða þingmenn, ráðherrar og frambjóðendur í Reykjavík.

Allir velkomnir!

03/05/2026

Kominn tími á alvöru framkvæmdir í Breiðholtinu!

Address

Fjörgyni 1
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flokkur Fólksins í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share