16/04/2026
Oft er þörf en nú er sannarlega nauðsynlegt að grípa til markvissra aðgerða í efnahagsmálum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er án efa sá stjórnmálamaður sem hefur hvað mesta innsýn, þekkingu og reynslu í þessum málum.
Mikil yrði lukka okkar allra nái núverandi ríkisstjórn að brjóta odd af oflæti sínu og hleypa þessum röddum og hagsmunagæslu til handa almenningi að borðinu 💚
Ný þjóðarsátt um efnahagsmál - samvinna
Við í Framsókn kynntum nýjar tillögur í efnahagsmálum!
Þróun efnahagsmála og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í þeim efnum er áhyggjuefni. Framsókn
leggur áherslu á að verðbólga og vextir lækki hraðar en núverandi horfur gera ráð fyrir og til að það
takist þarf að leggja grunn að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál.
Verkefnið kallar á samvinnu samfélagsins í heild og snýr að því að verja heimili og fyrirtæki, styðja
við forsendur kjarasamninga og um leið styðja við aukinn stöðugleika til framtíðar. Til þess þarf opið
og markvisst samtal helstu hagaðila þar sem stjórnvöld, sveitarfélög, fjármálakerfið,
vinnumarkaðurinn, atvinnulífið og almenningur leggjast á eitt um raunhæfar lausnir.
Þær aðgerðir sem Framsókn leggur til er ætlað létta undir með heimilum og draga úr
kostnaðarþrýstingi, meðal annars með lægri virðisaukaskatti á matvæli sem og aðgerðum sem
lækka bifreiðakostnað. Lagt er til að þær aðgerðirnar gildi frá 1. maí til 1. október 2026, eða fram yfir
endurskoðun komandi kjarasamninga.
Þá leggur Framsókn jafnframt til aðgerðir sem miða að því að halda aftur af hækkun leiguverðs.
Markmiðið er að bæta stöðu fólks hér og nú, styrkja velferð og draga úr þeim verðbólguáhrifum sem
hár framfærslukostnaður hefur haft á heimili landsins. Aðgerðirnar eru hóflegar og takmarkaðar í
umfangi.
Til lengri tíma þarf jafnframt að breyta verklagi í hagstjórn landsins. Framsókn vill leggja grunn að
nýjum leikreglum hins opinbera sem styðja við lægri verðbólgu, meiri fyrirsjáanleika og öflugri
uppbyggingu. Þar má nefna markvissara samtal um stóru málin, samræmdari gjaldtöku hins
opinbera, aukið framboð í húsnæðismálum og ný verkfæri til að meta áhrif stærri ákvarðana á
verðbólgu, heimili og fyrirtæki, svonefnda verðbólgusíu. Með þeim hætti má tengja nauðsynlegar
aðgerðir til skemmri tíma við ábyrgari og traustari stefnu til framtíðar.
Efnahagstillögur Framsóknar sem kynntar voru á kynningafundinum.
1. Samvinna og samtal – ný þjóðarsátt
2. Samræmd og fyrirsjáanleg gjaldtaka hins opinbera
3. Verðbólgusía – nýtt verklag í opinberum fjármálum
4. Lægra matarverð – tímabundin lækkun skatta
5. Lægra bensínverð – tímabundin lækkun skatta og gjalda
6. Leigumarkaður – afturköllun hækkunar skattstofns leigutekna.