Orkuveitan

Orkuveitan Orkuveitan styður vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Fyrirtæki Orkuveitunnar eru Orka náttúrunnar, Veitur, Ljósleiðarinn og Carbfix.

Jarðhiti, nýsköpun og alþjóðlegt samstarf helstu umræðuefni á World Geothermal Congress 2026. ♨️Fulltrúar Orkuveitunnar,...
15/06/2026

Jarðhiti, nýsköpun og alþjóðlegt samstarf helstu umræðuefni á World Geothermal Congress 2026. ♨️

Fulltrúar Orkuveitunnar, Veitna og Orku náttúrunnar tóku þátt í pallborðsumræðum, fluttu erindi og áttu fjölmörg góð samtöl við sérfræðinga, samstarfsaðila og fagfólk víðs vegar að úr heiminum. Þar fengum við tækifæri til að miðla reynslu okkar af nýtingu jarðhita, uppbyggingu innviða og verkefnum á borð við IDDP.
Á ráðstefnunni var einnig kynnt ný hvítbók sem er afrakstur samstarfs fjölmargra fyrirtækja og stofnana í baklandi Green by Iceland en Orkuveitan og Orka náttúrunnar voru meðal þeirra sem tóku þátt í vinnu við bókina.

Við þökkum þeim sem sóttu erindi okkar og áttu með okkur góð samtöl. 🤝

//

Geothermal energy, innovation, and international collaboration were among the key topics at World Geothermal Congress 2026. ♨️

Representatives from Reykjavík Energy, Veitur, and ON Power participated in panel discussions, delivered presentations, and engaged in valuable conversations with experts, partners, and industry professionals from around the world. The congress provided an opportunity to share our experience in geothermal utilization, infrastructure development, and projects such as the Iceland Deep Drilling Project (IDDP).

A new white paper, developed through the Green by Iceland platform with contributions from Reykjavík Energy and ON Power, was also launched during the congress. The paper highlights how geothermal energy can support the energy transition, drive innovation, and create sustainable value for society.

We would like to thank everyone who attended our presentations and took the time to engage in meaningful conversations with us. 🤝

12/06/2026

Stærstu jarðhitaráðstefnu heims lokið!

Við áttum góð samtöl við samstarfsfélaga, sérfræðinga og fagfólk á og fengum tækifæri til að læra af öðrum og efla alþjóðleg tengsl! 🤝

//

The world’s largest geothermal conference has now come to an end!

It has been a pleasure to take part, connect with colleagues and experts who share our interest in geothermal energy at 🤝

09/06/2026

Nýting ofurheits jarðhita yrði bylting á heimsvísu!

Djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar snýr að því að þróa aðferðir til nýtingar jarðhita úr dýpri og heitari jarðlögum en nýtt eru í dag.

Íslensk reynsla af jarðhita vísar veginn ♨️Ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita var kynnt á Elliða í Elliðaárstöð í síðu...
08/06/2026

Íslensk reynsla af jarðhita vísar veginn ♨️

Ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita var kynnt á Elliða í Elliðaárstöð í síðustu viku. Hvítbókin er afrakstur samstarfs fjölmargra aðila innan Grænvangs og varpar ljósi á hvernig jarðhiti getur stutt við orkuskipti, nýsköpun og sjálfbæra verðmætasköpun.

Í útgáfuhófinu tóku til máls Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður stjórnar Grænvangs, ásamt Nótt Thorberg, forstöðumanni Grænvangs sem kynnti Hvítbókina. Þau lögðu áherslu á mikilvægi þess að miðla íslenskri þekkingu og reynslu af nýtingu jarðhita til umheimsins.

Hvítbókin verður kynnt á World Geothermal Congress (WGC) í Calgary í vikunni þar sem fulltrúar íslenskra fyrirtækja munu kynna íslenska þekkingu og lausnir á sviði jarðhita.

Hvítbókina má nálgast í fyrstu athugasemd👇

🌍 Í dag er Alþjóðlegi umhverfisdagurinn.Hjá Orkuveitunni vinnum við á hverjum degi að ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda me...
05/06/2026

🌍 Í dag er Alþjóðlegi umhverfisdagurinn.

Hjá Orkuveitunni vinnum við á hverjum degi að ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda með komandi kynslóðir í huga.

Sjálfbær framtíð byggir á þekkingu, nýsköpun og samstarfi. Þess vegna leggjum við okkar af mörkum til rannsókna og þróunar sem geta aukið skilning á sjálfbærri orkunýtingu og styrkt innviði sem styðja við lífsgæði samfélagsins.

Umhverfisvernd snýst ekki aðeins um að vernda náttúruna heldur einnig um að þróa lausnir sem gera okkur kleift að nýta auðlindir hennar á ábyrgan og sjálfbæran hátt.💧⚡

Verið velkomin á Geothermal After Hours á WGC ♨️📅 Þriðjudaginn 9. júní 📍 Íslenski skálinn (Icelandic Pavilion)🕔 17:00–18...
04/06/2026

Verið velkomin á Geothermal After Hours á WGC ♨️
📅 Þriðjudaginn 9. júní
📍 Íslenski skálinn (Icelandic Pavilion)
🕔 17:00–18:00

Hjá Orkuveitunni erum við stolt af því að taka þátt í samtalinu um framtíð jarðhita og vera hluti af öflugu alþjóðlegu samstarfi sem knýr áfram nýsköpun, sjálfbærni og framþróun í greininni. Við hlökkum til að hitta fulltrúa veitufyrirtækja, þróunaraðila, verkfræðinga, rannsakendur og samstarfsaðila víðs vegar að úr heiminum í Calgary.
✨ Opið fyrir öll – ekki þarf að skrá sig.

//

Join us at the Geothermal After Hours Reception at WGC ♨️
📅 Tuesday, June 9
📍 Icelandic Pavilion
🕔 17:00–18:00

At Orkuveitan, we are proud to contribute to the conversation on the future of geothermal energy and to be part of a network driving innovation, sustainability, and collaboration across the sector. We look forward to meeting fellow utilities, developers, engineers, researchers, and industry partners in Calgary.
✨ Open to all and no registration required

Pálmar og Sigurður á WGC 2026 🌿Pálmar Sigurðsson, leiðtogi verkefnaþróunar og Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýting...
03/06/2026

Pálmar og Sigurður á WGC 2026 🌿

Pálmar Sigurðsson, leiðtogi verkefnaþróunar og Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar verða meðal fulltrúa Orkuveitunnar á WGC 2026 í Calgary í júní.

Þeir taka þátt í bæði Superhot Summit og KMT Workshop þar sem leiðandi sérfræðingar, rannsakendur og orkufyrirtæki koma saman til að ræða framtíð ofurheits jarðhita og þau tækifæri sem felast í dýpri og heitari nýtingu jarðvarma.
Þátttaka Orkuveitunnar í þessum viðburðum endurspeglar mikilvægt hlutverk fyrirtækisins í rannsóknum, þróun og alþjóðlegu samstarfi á sviði djúpnýtingar og sjálfbærrar orkuöflunar til framtíðar.

//

Meet Pálmar and Sigurður at WGC 2026 🌿

Pálmar Sigurðsson, Head of Project Development and Sigurður H. Markússon, Program leader will represent Reykjavík Energy at WGC 2026 in Calgary this June.

They will participate in both the Superhot Summit and the KMT Workshop, bringing together leading experts, researchers, and industry partners to explore the future of superhot geothermal energy and the opportunities offered by deeper and hotter geothermal resources.
Their participation reflects Reykjavík Energy’s active role in advancing geothermal innovation, deep resource development, and international collaboration to support the future of sustainable energy.

Our Climate Future á vegum Green by Iceland 🌍♨️Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, f...
02/06/2026

Our Climate Future á vegum Green by Iceland 🌍♨️
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna og Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar taka þátt í sitthvoru pallborðinu á málþingi WGC sem fram fer í Calgary í Kanada.
Harpa Pétursdóttir, forstöðumaður Nýrra orkukosta verður fundarstjóri málþingsins.

🕒Málþingið fer fram 8. júní á milli kl. 14-18.
Á WGC býðst mikilvægt tækifæri til að skiptast á þekkingu, læra af öðrum og fylgjast með þróun jarðhitaverkefna víða um heim.

//

Our Climate Future organized by Green by Iceland🌍♨️
Sævar Freyr Þráinsson, CEO of Reykjavik Energy, Sólrún Kristjánsdóttir, CEO of Veitur, and Hera Grímsdóttir, Chief Research and Innovation Officer at Reykavik Energy, will each participate in panel discussions at the WGC Symposium taking place in Calgary, Canada.
Harpa Pétursdóttir, Director of New Energy, will serve as Master of Ceremonies.

🕒 The symposium will be held on June 8 from 2:00-6:00 PM
WGC provides a valuable opportunity to exchange knowledge, learn from peers, and stay connected to geothermal developments and innovations from around the world.

📍Hittu okkur á íslenska básnum á WGC2026 🌿Fulltrúar frá Orkuveitunni verða á íslenska básnum á World Geothermal Congress...
29/05/2026

📍Hittu okkur á íslenska básnum á WGC2026 🌿

Fulltrúar frá Orkuveitunni verða á íslenska básnum á World Geothermal Congress 2026 í Calgary í Kanada
- Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsóknar- og nýsköpunar
- Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar

🕒 Hægt verður að hitta fulltrúa Orkuveitunnar
Þriðjudag, 9. júní, kl. 13:30

Við hlökkum til að hitta samstarfsaðila og áhugafólk um jarðhita alls staðar að úr heiminum.⚡🌍

//

📍 Meet us at the Icelandic Pavilion at WGC2026 🌿

Representatives from Orkuveitan (Reykjavik Energy) will be available at the Icelandic Pavilion during the World Geothermal Congress 2026 in Calgary, Canada:
- Hera Grímsdóttir, Chief Research and Innovation Officer
- Sigurður H. Markússon, Superhot Program Leader

🕒 Meet the Orkuveitan team:
Tuesday, June 9, 1:30 PM

We look forward to connecting with partners, colleagues, and geothermal enthusiasts from around the world to discuss innovation, geothermal development, and the future of sustainable energy. ⚡🌍

Óskaðu eftir samtali með fulltrúum Orkuveitunar 🌿✨ World Geothermal Congress 2026 mun leiða saman leiðtoga, rannsakendur...
28/05/2026

Óskaðu eftir samtali með fulltrúum Orkuveitunar 🌿✨

World Geothermal Congress 2026 mun leiða saman leiðtoga, rannsakendur og frumkvöðla sem vinna að mótun framtíðar sjálfbærrar orku.

Hittu sérfræðinga Orkuveitunnar, miðlaðu reynslu og kynntu þér hvernig áratuga þekking á nýtingu jarðhita getur stutt við orkuöryggi og loftslagsmarkmið framtíðarinnar.

Hlekkur í fyrstu athugasemd👇

//

Request a meeting with Orkuveitan 🌿✨

The World Geothermal Congress 2026, will bring together industry leaders, researchers, and innovators to shape the future of sustainable energy.

Meet our experts, exchange insights and learn how decades of geothermal experience can support energy security and climate goals.

Link in the first comment👇

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

5166100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkuveitan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share