Hverfisráð Miðborgar

Hverfisráð Miðborgar Hverfisráð Miðborgar er vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og er virkur þátttakandi í allri stefnumörkun hverfisins.

07/11/2017

Minnum alla á að kjósa!

Kæru íbúarHverfisráð og íbúasamtök miðborgarinnar, Höfuðborgastofa, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Lögreglan á höfuð...
29/12/2015

Kæru íbúar
Hverfisráð og íbúasamtök miðborgarinnar, Höfuðborgastofa, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vilja koma þeim vinsamlegu tilmælum til íbúa miðborgarinnar og gesta hennar að fara varlega í meðferð flugelda á Skólavörðuholti og öðrum fjölförnum stöðum á gamlárskvöld með von um gleðileg og slysalaus áramót.

Hverfisráð miðborgar mun halda opin fund um uppbyggingu í Kvosinni þann 5. maí kl 17 í Borgarbókasafninu Grófinni, Trygg...
30/04/2015

Hverfisráð miðborgar mun halda opin fund um uppbyggingu í Kvosinni þann 5. maí kl 17 í Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15.

Umhverfis- og skipulags-sviði kemur og verður með kynningu á fyrihuguðum framkvæmdum á eftirfarandi svæðum:

- Hafnarsvæðið milli Hörpunnar og Geirsgötur.
- Reitur milli Geirsgötu, Tryggvagötu og Tollhúsins.
- Reitur á milli Hafnarstrætis, Pósthússtrætis og Tryggvagötur.
- Hús við horn á Tryggvagötu og Geirsgötu.
- Landsímareiturinn og tónleikasalurinn oft kenndur við Nasa.
- Reiturinn sem Íslandsbandi/Gllitnir situr núna.

24/02/2015

Nú lýkur brátt kosning á þeim hugmyndum í ,,Betra hverfi" verkefninu, sem hafa fengið grænt ljós frá Umhverfis- og skipulags-sviði (USK) sem og hverfisráðunum. Við í hverfisráði miðborgarinnar fengum í kringum 20 hugmyndir frá USK sem höfðu verið grisjaðar úr u.þ.b. 50 innsendingum. Eftir að hafa farið yfir allar hugmyndir og röksemdafærslu USK, um af hverju sumar þeirra voru ekki tiltækar í kosningu, sammældumst við í ráðinu um að vera ekkert að eiga frekar við lýðræðilega raðaðan lista íbúa. Engar tillögur voru fjarlægðar né þeim bætt inn af okkur, og við töldum rétt að virða niðurstöðu fyrstu kosningunar og þær tillögur sem að uppfylla skilyrði USK.
Virðing fyrir lýðræðislegum ferlum þessa verkefnis er nauðsynleg til þess að það nái fram að ganga. Betri hverfi verkefnið er hugsað sem vettvangur fyrir íbúa hverfa. Þetta markmið sést meðal annars á því að útdeiling fjármagnsins í þessu verkefni fer eftir íbúafjölda á hverju svæði fyrir sig, ekki eftir fjölda atvinnustaða, ásókn ferðamanna, fjölda hótela né umgangi í kringum verslun og þjónustu.
Mig langar að hvetja íbúa miðborgar að nálgast verkefnið með það í huga, að þessir fjármunir eru ætlaðir til að bæta hverfið gagnvart þeim fyrst og fremst. Ég vil biðja íbúa að reyna að nýta þessa fjármuni sem best, og jafnvel að benda á að ekki þarf að velja verkefni sem nú þegar eru á dagská til framkvæmda, né verkefni eins og fegrunaraðgerðir á kennileitum sem eiga einfaldlega að vera í lagi.
Ef miðborg Reykjavíkur á að líta vel út, þrátt fyrir mikin umgang utanaðkomandi íbúa, þá er það borgarfulltrúanna að sjá til þess. Það er mín einlæga skoðun, að ef ráðhúsið og umhverfi þess á að vera borginni til sóma, þá eigi ekki að eyða þessu litla fjármagni sem er ætlað íbúum hverfa til viðhalds þess. Við höfum 23,2 miljónir til að gera gott fyrir okkur sjálf og umhverfi okkar. Nýtum þær vel og gerum okkur góðan dag í fallegri borg.

https://kjosa.betrireykjavik.is/

Svafar Helgason

Formaður hverfisráðs miðborgar Reykjavíkur

Nú eru að hefjast mánaðarlegir íbúafundir okkar. Hverfinu er skipt í fjóra hluta og eru málefni hvers hluta tekin fyrir ...
13/11/2014

Nú eru að hefjast mánaðarlegir íbúafundir okkar. Hverfinu er skipt í fjóra hluta og eru málefni hvers hluta tekin fyrir sig. Við hefjum þessa hefð á því að ræða Kvosina og Tjarnarbrekkuna. Endilega mættu og láttu þig varða nærumhverfi þitt.

Kl. 12 á aðfaranótt laugardags klárast skilafrestur á hugmyndasöfnun betri hverfis verkefnisins. Hugmyndir þurfa að vera...
06/11/2014

Kl. 12 á aðfaranótt laugardags klárast skilafrestur á hugmyndasöfnun betri hverfis verkefnisins. Hugmyndir þurfa að vera framkvæmdalegum toga til að vera gildar en verkefnin sem verða kosin hefjast framkvæmda á komandi ári. Ég hvet íbúa eindregið að nýta sér þetta tækifæri til að vera partur af ákvarðanatöku um sitt hverfi hvort sem að það sé með nýjum hugmyndum eða með því að lesa þær sem eru nú þegar komnar inn og kjósa um þær. Þetta er verkfæri sem íbúar hafa til að efla íbúalýðræði og valddreyfingu ákvarðana um sitt nærumhverfi.

Bestu kveðjur,

Svafar Helgason, formaður hverfisráðs miðborgar.

Betri hverfi 2015 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar.

11/03/2014

Taka þátt!

Vefsíða miðborgarinnar er á vef borgarinnar - hér er ýmislegt áhugavert að finna!
02/05/2013

Vefsíða miðborgarinnar er á vef borgarinnar - hér er ýmislegt áhugavert að finna!

Reykjavík.is er opinbert vefsvæði Reykjavíkurborgar

16/01/2013

Fundur borgarstjóra með íbúum Miðborgarinnar verður miðvikudaginn 23. janúar!

Gefum okkur tíma í að kynna okkur þessa miklu uppbyggingu.
18/09/2011

Gefum okkur tíma í að kynna okkur þessa miklu uppbyggingu.

Address

Þjónustumiðstöð Miðborgar Og Hlíða, Skúlagötu 21
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hverfisráð Miðborgar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share