Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar

Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar er ný hugsun í íslenskum stjórnmálum. Sjá kynningarglærur með grundvallarstefnuskránni: http://www.xc.is/kynningarglaerur

I. Rætur
Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar sprettur úr íslensku umhverfi og leggur áherslu á þann lærdóm sem draga má af stjórnmálasögu landsins og sérkennum íslensks efnahagslífs og samfélags. Sú stefna sem verið hefur við lýði síðastliðna rúma tvo áratugi hefur leitt til óásættanlegs ójafnaðar í samfélaginu, spillingar og loks félags- og efnahagslegs hruns árið 2008. Lausnir sem reyndar

hafa verið frá hruni hafa ekki bætt hag íslenskra heimila og fyrirtækja og því er knýjandi þörf fyrir nýjar leiðir og lausnir. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar vill byggja á hugmyndafræði samstöðu meðal landsmanna. II. Grunngildi
Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar er lýðræðissinnuð stjórnmálahreyfing sem vinnur að því að íslenskt samfélag byggi á grunngildum jafnaðar, samvinnu og sjálfbærni. Samstaða byggir stefnu sína á siðferðilegum forsendum réttlætis, mannúðar og heiðarleika. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar telur sérstöðu íslensks samfélags felast í smæð þess. Sérstaðan skapar tækifæri til valddreifingar og lýðræðis sem einkennist af beinni þátttöku almennings í mikilvægum ákvarðanatökum samfélagsins, hvort heldur er á landsvísu eða í nærsamfélaginu. Samstaða telur að vegna smæðar samfélagsins sé tilhneiging til fákeppni í efnahagslífinu sem skapar skilyrði fyrir samþjöppun valds á hendur fámennra forréttindahópa. Samstaða telur því brýnt að sporna gegn fákeppni og samþjöppun með eflingu lýðræðis, skilvirkari löggjöf og auknu gagnsæi. Samstaða – flokkur lýðræðis- og velferðar er fjöldahreyfing almennings sem tekur þátt í þróun samfélagsins með virkum lýðræðislegum hætti og upplýstri rökræðu. Frumkvæði, áhugi og þekking einstaklinganna er virkjuð til að skapa betri lausnir. Því leggur Samstaða áherslu á hlutverk frjálsra félagasamtaka og félagshagkerfisins á sviðum velferðarþjónustu og atvinnulífs.

Address

Erum því Miður Húsnæðislaus
Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar:

Share