Keldan Ungmennahús

Keldan Ungmennahús Ungmennahús fyrir ungmenni 16 ára og eldri. Staðsett í Hlöðunni Gufunesbæ. Opið alla Þriðjudaga 14:00 til 23:00 og annað hver fimmtudag 19:00 - 23:00.

Hvað er Keldan ungmennahús? Keldan er ungmennahús fyrir ungmenni 16 ára
og eldri sem staðsett er í Hlöðunni Gufunesbæ. Hugmyndafræði Keldunnar er að skapa stað fyrir ungt fólk til þess að hittast og spjalla, drekka kaffi eða kakó, spilað, skipulagt og sótt viðburði, unnið að verkefnum á sínum eigin forsendum án gjalds o.s.frv. Ef þú hefur hugmynd, stóra sem smáa sem þú vilt framkvæma hafðu þá samb

and við okkur á Facebook síðu Keldunnar, í tölvupósti, í síma eða bara kíktu við í spjall. Engin kostnaður er fyrir ungmennin að nýta aðstöðuna og einungis er rukkað lágmarksgjald viðburði er að ræða, slíkt er auglýst fyrir fram. Fyrir hvern er Keldan?
Öll ungmenni á aldrinum 16 til 25 ára eru velkomin. Hvað er hægt að gera?
• Hópar og einstaklingar geta fengið að nota aðstöðu Keldunnar ókeypis
• Hægt er að halda tónleika, fundi, markaði eða hvað sem ungu fólki dettur í hug.
• Einnig er góð aðstaða til að læra og vinna að alls kyns verkefnum.
• Það er líka velkomið að mæta bara til að fá sér kaffi, spila, spjalla eða taka nokkur spor í Just Dance á risa skjá. Aðstaða fyrir alls konar, möguleikar á margs konar! Hvað er Keldan ungmennahús í augum ungmenna?
* Skemmtilegur staður til þess að hafa gaman
* Staður til að hittast, kynnast öðru fólki og blanda geði
* Staður til að leyfa ungmennum að koma hugmyndum sínum í framkvæmd
* Staður til að efla ungmenni og leyfa þeim að vinna að áhugamálum sínum
* Samastaður án vímuefna
* Umhverfi fyrir ungmenni sem gætu verið útundan, þeir sem stunda kannski ekki íþróttir eða eru jafnvel ekki í skóla
* Staður til að lífga upp á samfélagið
* Hlaðan

Hvar er Keldan ungmennahús? Keldan hefur aðsetur í Hlöðunni við Gufunesbæ þar er opið
alla Þriðjudaga frá 14:00 til 23:00 og annað hver fimmtudag frá kl. 19 til 23. Hvernig er hægt að hafa samband? Like síða Keldan Ungmennahús á facebook
[email protected]
Sími: 695-5181
Mæta í höðuna

Address

Hlaðan Gufunesbæ
Reykjavík
112

Telephone

6955181

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Keldan Ungmennahús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Keldan Ungmennahús:

Share

Category