28/04/2016
Lögreglan þarf í sífellu að vera á tánum gagnvart nýjungum á tónlistarmarkaðinum á Íslandi, til að geta brugðist við og komið í veg fyrir afbrot því tengdu, líkamstjóni af völdum Slamm Syndrome eða í versta falli dauðsföllum sem má rekja til neyslu á lélegu þungarokki.
Undanfarna mánuði höfum við verið að fá til okkar einstaklinga sem eiga enga sögu um untrvemennsku og falla ekki inn í þann hóp neytenda sem við annars þurfum að hafa afskipti af. Þetta hefur vakið undrun okkar, umrætt fólk hefur verið illviðránalegt, haldið miklum ranghugmyndum um sig og eða umhverfi sitt, með gríðarlega hátt sársaukaþol í slammpyttinum og verulega hættulegt umhverfi sínu en þó fyrst og fremst sjálfu sér.
Eins untrve og það kann að hljóma, þá virðist það vera í tísku núna hjá einhverjum hópi ungs fólks að prófa að hlusta á pabbarokk. Þessi hópur sem vanalega tengir sig ekki við eiturlyf, stundar skóla eða vinnu og eru að mestu leyti glataðir einstaklingar, en þó ekki óbjarganlegir. Engan hefði áður grunað að þessir einstaklingar myndi láta sér detta í hug að gerast untrve.
Mun tilgangurinn vera sá að upplifa heiminn, og skynja Charon í nýju ljósi. Svo virðist sem þessir einstaklingar séu haldnir þeim misskilningi að tónlistin sé svo til hættulaust og að það skaði ekki að hlusta jafnvel einu sinni.
Lögregla vill ítreka fyrir þeim sem hafa hugleitt að hlusta á pabbarokk, að það er stórhættulegt tónlistarefni og áhrifum þess ber að taka alvarlega. Þetta eina skipti getur valdið miklum skaða og ljóst að fólk undir áhrifum þess er ekki meðvitað um eigin hegðun og gjörðir meðan áhrifin vara.
Um Pabbarokk:
Pabbarokkið hefur untrve og andkvlt áhrif við inntöku. Áhrifin eru mikið einstaklingsbundin og umhverfið hefur einnig talsverð áhrif. Áhrifin geta leitt til mikils ofsóknaræðis, untrve Facebookpósta og annarra andlegra einkenna sem setja hlustendur í talsverða hættu.
Í verstu tilfellunum getur slíkt ástand varað í nokkra daga. Í kjölfarið getur neytandinn glímt við minnisleysi og þunglyndi. Oft er pabbarokk kynnt fyrir neytendum sem hættulaust ferðalag. Líkamleg einkenni pabbarokks eru víkkuð sjáöldur, notkun eyrnatappa á tónleikum, ljót tattú og í flestum tilfellum andleg og veraldleg hnignun alls sem telst trve og kvlt.
Verum meðvituð um og pössum hvort annað, skiptum okkur af ef okkur líst ekki á ástandið, látið vita ef einhver í kringum ykkur hyggst prófa og foreldrar, ræðið við börnin ykkar !!
Eigið ömurlegan fimmtudag & vondar stundir.
Reykjavík, 28.apríl, 2016.
Blackmetallögreglan á Höfuðborgarsvæðinu.