18/08/2026
Umhverfisvænni skólabyrjun? 8 ráð
#1 Nýtt skólaár þarf ekki að þýða allt nýtt!
✏️Byrjum á því að kanna hvað er til og hvað vantar áður en við rjúkum til og kaupum nýtt.
Oft leynast nothæfar skólavörur í skúffum og skápum sem geta nýst annað skólaár.
#2 Er hægt að fá hluti lánaða?
🧮Af hverju ekki að athuga hvort vinir eða fjölskylda eigi til það sem vantar?
Vasareiknar, reiðhjól, fatnaður, skólabækur, búnaður fyrir tómstundir og svo mætti lengi telja.
#3 Gæti smá viðgerð dugað?
🪡Stundum þarf bara smá lagfæringu til að fötin verði eins og ný.
Nýjar teygjur í útigallann, skipta um tölur, bæta g*t eða pússa skóna.
#4 Hvað með að heimsækja nytjamarkaði og loppur?
♻Töskur, íþróttaföt, pennaveski, hjól eða jafnvel skrifborð.
Og ekki gleyma skiptibókamörkuðum fyrir námsbækurnar.
Notað getur verið alveg jafn gott og stundum betra!
#5 Ef við kaupum nýtt, viljum við að það endist!
Stundum þarf einfaldlega að kaupa nýtt.
✅Hugum þá að gæðum og veljum hluti sem þola notkun og geta enst lengur.
Reynum að versla við ábyrga seljendur.
#6 Verum vakandi fyrir skaðlegum efnum!
🚫Lím, pennar, strokleður, nestisbox, útiföt og svo margt í kringum okkur getur innihaldið óæskileg efni.
Veljum umhverfismerktar vörur þegar kostur er á.
Aukum efnalæsi okkar og fræðumst um hvað ber að varast.
#7 Fjölnota í skólatöskunni !
🍴Rör, hnífapör, drykkjarmál....
Fjölnota hlutir geta fylgt okkur í skólann aftur og aftur.
Forðumst plast og veljum heldur ryðfrítt stál, tré, textíl eða gler fyrir nesti barnanna.
#8 Umhverfisvænn ferðamáti er hluti af góðum skólavenjum!
🚲Ganga, hjóla, hopp og strætó eru frábær kostur fyrir umhverfið, heilsuna og veskið.
Ef bílinn er nauðsynlegur, væri þá hægt að fara samfó?