Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Sími: 444-1000 - Neyðartilfelli: 112
Sendið okkur fyrirspurn/ábendingu
[email protected] HVAÐ Á EKKI HEIMA Á ÞESSARI SÍÐU?
(1291)

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur það sem meginmarkmið að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að vinna að þessum markmiðum er lögð áhersla á nokkur lykilatriði, þar á meðal sýnilega löggæslu, hverfa- og grenndarlöggæslu, forvarnastarf í samvinnu við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga, gæði og skilvirkni við rannsóknir sakamála og öfluga upplýsingamiðlun. Innlegg eða athugasemdir á síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verður þegar í stað eytt. Innlegg sem sett eru inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Myndir sem hér er að finna úr starfi lögreglunnar er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi LRH. VINSAMLEGAST LESIÐ ÞETTA ÁÐUR EN INNLEGG ER SETT Á SÍÐU LRH

1. HVERNIG ER UMSJÓN MEÐ ÞESSARI SÍÐU HÁTTAÐ? Vinsamlegast athugið að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist ekki með þessari síðu eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Þeir sem sjá um uppfærslu hennar sinna því samhliða öðrum störfum innan lögreglunnar. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki hægt að tryggja að svör verði sett inn strax við spurningum sem settar eru inn á síðuna. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112 en sólarhringslöggæsla er á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver embættisins í síma 444-1000. Sömuleiðis er hægt að koma ábendingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Einnig má benda á fíkniefnasímann, 800-5005, þar sem gjaldfrjálst og nafnlaust er unnt að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

2. Vinsamlegast athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um tiltekin brot, tiltekin mál, grunsemdir um afbrot eða brotamenn eða kvartanir, til dæmis kvartanir um störf tiltekinna starfsmanna lögreglu. Síðuna má ekki nota sem tilkynningasíðu um tapað/fundið eða stolna muni. Slíkum hlutum er rétt að koma á framfæri við lögreglu í gegnum síma, með bréfi eða tölvupósti eða með því að mæta á lögreglustöð á þínu svæði eða sveitarfélagi. Hér eru upplýsingar um það hvernig best er að ná sambandi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir tilefni hverju sinni: http://www.logreglan.is/anhaegri.asp?cat_id=1342

Ef þú vilt beina fyrirspurn til lögreglunnar í gegnum tölvupóst þá er unnt að gera það beint á lögregluvefnum, www.logreglan.is. Netfang lögreglustjóra er [email protected]

3. HVAR FINN ÉG MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR FRÁ LÖGREGLUNNI OG SAMSTARFSAÐILUM HENNAR?

Á lögregluvefnum er að finna margvíslegar upplýsingar um starfsemi lögreglunnar, forvarnir o.fl. Lögregluvefurinn er á slóðinni www.logreglan.is

Um forvarnir, fræðslu og viðbrögð við afbrotum má lesa nánar hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=8

Um forvarnir gegn innbrotum og þjófnuðum má lesa hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=245

Um forvarnir gegn brotum á netinu og örygga netnotkun má lesa hér: http://www.logreglan.is/listar.asp?cat_id=256

Upplýsingabæklingur fyrir þolendur afbrota:http://www.logreglan.is/upload/files/uppl.afbr.3b.pdf

Netöryggi: http://www.netoryggi.is/

Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki: http://www.logreglan.is/eftirlystokutaeki.asp

Forvarnir gegn fíkniefnum: http://www.logreglan.is/displayer.asp?cat_id=289

Afbrotatölfræði: http://www.logreglan.is/displayer.asp?cat_id=691

Það er víst farið að rökkva.
06/09/2026

Það er víst farið að rökkva.

Um áratugaskeið sinnti lögreglan umferðarfræðslu fyrir börn, en myndin er einmitt frá einni slíkri heimsókn til yngsta a...
04/09/2026

Um áratugaskeið sinnti lögreglan umferðarfræðslu fyrir börn, en myndin er einmitt frá einni slíkri heimsókn til yngsta aldurshópsins. Hún var tekin á síðustu öld, en í hvaða húsakynnum vitum við ekki. Lögreglumaðurinn á myndinni er Ragnheiður Davíðsdóttir, en hún var í lögreglunni á árunum 1976-85. Ragnheiður, sem var fyrsta konan sem sat í stjórn Landsambands lögreglumanna, átti síðar líka eftir að geta sér gott orð á öðrum vettvangi, m.a. í fjölmiðlum og sem forvarnarfulltrúi.

Góða helgi, öllsömul.

„Líkt og í nágrannalöndunum voru helstu markmið umbóta á lögreglumenntun hérlendis með færslu á háskólastig að efla lögr...
04/09/2026

„Líkt og í nágrannalöndunum voru helstu markmið umbóta á lögreglumenntun hérlendis með færslu á háskólastig að efla lögregluna sem fagstétt og búa lögreglumenn undir sífellt flóknari verkefni í margbreytilegum heimi. Lögreglustarfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum og nýjar áskoranir, meðal annars á sviði netglæpa og alþjóðlegs samstarfs, gera kröfur um víðtæka þekkingu og fjölbreytta hæfni.“

Við getum öll bjargað lífi - með samtali.
03/09/2026

Við getum öll bjargað lífi - með samtali.

This is "Gulur september" by Landspítali on Vimeo, the home for high quality videos and the people who love them.

Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hver...
03/09/2026

Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir. Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar. Umferðartafir eru viðbúnar vegna þessa, en ökumenn eru minntir á að fylgja umferðarmerkjum á staðnum. Og mögulega að breyta áætlun sinni ef fyrirhugað er að aka þarna um þennan eftirmiðdaginn.

02/09/2026

Í dag verður unnið við að skipta út lýsingu á Bústaðavegi, milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar, frá kl. 9.30 - 15. Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát meðfram vinnusvæðinu.

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til kluk...
01/09/2026

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í símanum eða tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

31/08/2026

Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt, en tilkynning um slysið barst kl. 0.19. Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Góða helgi, öllsömul.
28/08/2026

Góða helgi, öllsömul.

Þessa vikuna er skólastarfið að hefjast á nýjan leik eftir sumarleyfi og margir eru örugglega spenntir að setjast aftur ...
27/08/2026

Þessa vikuna er skólastarfið að hefjast á nýjan leik eftir sumarleyfi og margir eru örugglega spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta vinina. Lögreglan minnir ökumenn á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem eru að fara að hefja skólagöngu. Á þessum árstíma er líka viðbúið að umferð þyngist á álagstímum og kannski hafið þið þegar fundið fyrir því. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana og síðdegis, kunni að lengjast frá því sem verið hefur í sumar. Gott ráð til að komast hjá mestu umferðarösinni er að leggja fyrr af stað en ella eða síðar eftir atvikum, ef því verður við komið.

Address

Hverfisgata 113/115
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu:

Shortcuts

Share

Category