Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands Utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur Íslands mynda utanríkisþjónustuna sem gætir hagsmuna landsmanna & framfylgir stefnu stjórnvalda á alþjóðavettvangi.

Velkomin á Facebook síðu utanríkisráðuneytisins. Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Að sjálfsögðu gilda hér líka almennar notendareglur Facebook (sjá á www.facebook.com/terms.php?ref=pf)

Allt efni sem sett er inn af öðrum aðilum en utanríkisráðuneytinu er á ábyrgð viðkomandi einstaklings. Endilega kíkið á vefsíðurnar okkar fyrir frekari upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins:
www.utanrikisraduneyti.is
www.mfa.is

Ef þú ert í neyð erlendis hafðu samband við borgaraþjónustuna okkar sem er opin allan sólahringinn í síma 545-9900.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi við Dr. Younis Al-Khatib, forseta palestínska Rauða hálfmánans, í...
11/09/2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi við Dr. Younis Al-Khatib, forseta palestínska Rauða hálfmánans, í utanríkisráðuneytinu á dögunum.

Forsetinn hafði þá fyrr um daginn átt fund með Martin Eyjólfssyni ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, en ráðuneytið hefur um árabil stutt við ýmis verkefni palestínska Rauða hálfmánans og annarra landsfélaga í gegnum rammasamning við Rauða Kross Íslands.

Sjá frétt frá utanríkisráðuneytinu í athugasemd.

📸Rauði krossinn/Davíð Þór

Fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB), sem eiga sæti í starfshópi innan ráðs ESB sem ber m.a. ábyrgð á samskipt...
11/09/2026

Fulltrúar aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB), sem eiga sæti í starfshópi innan ráðs ESB sem ber m.a. ábyrgð á samskiptum Íslands við sambandið og framkvæmd EES-samningsins (e. EFTA Working Party), heimsóttu Ísland í vikunni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók á móti hópnum í utanríkisráðuneytinu og lagði í ávarpi sínu áherslu á mikilvægi EES-samstarfsins.

Sjá frétt frá utanríkisráðuneytinu í athugasemd.

Þjóðvarðliðar (e. National Guard) frá Maine fylki Bandaríkjanna heimsóttu Ísland í síðustu viku til að kynna sér öryggis...
10/09/2026

Þjóðvarðliðar (e. National Guard) frá Maine fylki Bandaríkjanna heimsóttu Ísland í síðustu viku til að kynna sér öryggis- og varnarmál á Íslandi.

Diane L. Dunn, yfirmaður þjóðvarðliðs Maine og tveggja stjörnu herforingi, fór fyrir sendinefndinni. Markmið heimsóknarinnar var að styrkja samstarf, meðal annars á sviði öryggis- og varnarmála á grundvelli tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna sem og samstarfssamnings Íslands og Maine fylkis frá árinu 2014.

Sendinefnd Maine hitti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og fundaði með varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og fjölmörgum íslenskum viðbragðsaðilum m.a. netöryggissveitinni CERT-IS, Landhelgisgæslunni, almannavörnum og Landsbjörg. Einnig heimsóttu þau öryggissvæðið í Keflavík og kynntu sér starfsemi íslenskra fyrirtækja sem þróa og framleiða tvínota tækni (e. dual use).

Maine National Guard

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta á Keflavíkurflugvelli s...
09/09/2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag.

„Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ segir Þorgerður Katrín. „Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags – og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“

Íslensk stjórnvöld hafa stutt dyggilega við Úkraínu á sviði orkumála meðal annars með framlögum í sérstakan orkusjóð og þá hafa íslensk orkufyrirtæki gefið varahluti og búnað svo Úkraínumenn geti viðhaldið orkuinnviðum sínum sem verða fyrir gegndarlausum árásum Rússa.

Frétt utanríkisráðuneytisins í athugasemd.

Við erum öll í sama liði! 🫂🩵Starfsfólk utanríkisráðuneytisins tekur þátt í Treyjudegi til stuðnings börnum með krabbamei...
04/09/2026

Við erum öll í sama liði! 🫂🩵

Starfsfólk utanríkisráðuneytisins tekur þátt í Treyjudegi til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Það skiptir engu máli hvaða liði við höldum með. Við stöndum saman fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Því þegar á reynir erum við öll í sama liðinu!

www.treyjudagur.is

📸NORÐUR-VÍKINGUR 2026📸Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum...
04/09/2026

📸NORÐUR-VÍKINGUR 2026📸
Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lofti.

Æfingin byggir á tvíhliða varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna en einnig voru æfðar varnaráætlanir og viðbragð Atlantshafsbandalagsins (NATO).

Auk Íslands og Bandaríkjanna tók liðsafli frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Kanada, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi þátt í æfingunni auk skipa úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins.

Um 1,200 manns tóku þátt í æfingunni.

Æfðar voru varnir mikilvægra innviða, eftirlit og varnir á sjóleiðum á Norður-Atlantshafi, samhæfing viðbragðsaðila auk æfinga í leit og björgun. Fjölmargir innlendir viðbragðsaðilar komu að undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar m.a. varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslan, ríkislögreglustjóri, almannavarnir og heilbrigðisstofnanir.

📸Anton Brink, 2026
📸Bandaríski sjóherinn og loftherinn, 2026

Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lof...
04/09/2026

Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lofti. Æfingin byggir á tvíhliða varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna en einnig voru æfðar varnaráætlanir og viðbragð Atlantshafsbandalagsins undir stjórn herstjórnarinnar í Norfolk.

Auk Íslands og Bandaríkjanna tók liðsafli frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Kanada, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi þátt í æfingunni auk fjölmargra skipa úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins. Áætlað er að um 1200 manns hafi tekið þátt í æfingunni sem stóð yfir í tvær vikur.

Sjá frétt frá utanríkisráðuneytinu í athugasemd.

📷Bandaríski sjóherinn/Edgar Grimaldo

03/09/2026

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins í Reykjavík á sinn fund í dag, þar sem samstaða íslenskra stjórnvalda með Þýskalandi var áréttuð í ljósi drónaatviks í Leipzig þann 4. ágúst sl.
Rannsóknir þýskra stjórnvalda staðfesta að aðilar með tengsl við rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á atvikinu.

„Við gerðum alvarlegar athugasemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaðgerðir sem stjórnvöld í Moskvu beita til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Á fundinum var jafnframt komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu og þeirri stigmögnun sem nú á sér stað með grimmilegum loftárásum Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði í Úkraínu.

Frétt utanríkisráðuneytisins er í athugasemd.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í óformlegum fundi utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópusamban...
02/09/2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í óformlegum fundi utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) um málefni Úkraínu sem fram fór í Wicklow á Írlandi í dag. Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, var sérstakur gestur fundarins ásamt utanríkisráðherrum Noregs, Kanada, Bretlands, Sviss og Íslands.

„Ég árétta fordæmingu Íslands á grimmilegum stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu sem hefur farið stigvaxandi undanfarnar vikur með árásum á almenna borgara. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á þær þjáningar sem Úkraínubúar nú upplifa,“ segir Þorgerður Katrín. „Það ríkir algjör samstaða í þessum ríkjahópi um mikilvægi þess að standa þétt við bakið á úkraínsku þjóðinni og að áframhaldandi stuðningur við Úkraínu varði öryggi allrar Evrópu.“

Samhliða fundunum ræddi utanríkisráðherra við fulltrúa ESB og aðildarríkjanna um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn.

Sjá frétt í athugasemd.

📸Helen McEntee utanríkisráðherra var gestgjafi fundarins, en Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, stýrði fundi venju samkvæmt.

Address

Reykjastræti 8
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545459900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands:

Shortcuts

Share