Slysavarnafélagið Landsbjörg

Slysavarnafélagið Landsbjörg Slysavarnafélagið Landsbjörg - Þúsundir sjálfboðaliða í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum.
(231)

Alltaf til taks er út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring.

07/09/2026

Þegar kallið kemur fara sjálfboðaliðar Landsbjargar af stað, allan sólarhringinn og allt árið um kring. Til þess þarf öflugt bakland.

Bakverðir Landsbjargar styðja starfið með mánaðarlegu framlagi og leggja þannig sitt af mörkum til þess að björgunarsveitir geti sinnt þjálfun, endurnýjað búnað og verið tilbúnar þegar á reynir.

Nú eru nýjar auglýsingar farnar í loftið. Með þeim viljum við sýna hversu miklu reglulegur stuðningur skiptir og bjóða enn fleirum að verða hluti af samfélaginu.

🙏Við sendum öllum Bakvörðum okkar innilegar þakkir. Stuðningur ykkar skiptir raunverulegu máli og hjálpar okkur að vera alltaf tilbúin til þess að hjálpa öðrum.

Nýja björgunarskipið Unnur er nú komið til landsins og innan tíðar mun það halda til heimahafnar á Patreksfirði.Unnur er...
04/09/2026

Nýja björgunarskipið Unnur er nú komið til landsins og innan tíðar mun það halda til heimahafnar á Patreksfirði.

Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Með verkefninu er viðbragðsgeta björgunarsveita á sjó efld og öryggi sjófarenda styrkt víða um land.

Á Patreksfirði tekur Unnur við af Verði II, sem var smíðaður árið 1987 og hefur þjónað þar frá árinu 2005. Nafn nýja skipsins vísar til Slysavarnadeildarinnar Unnar en slysavarnadeildin hefur staðið þétt við bakið á björgunarbátasjóði og björgunarsveitinni á Patreksfirði um árabil.

Það verður gleðileg stund þegar Unnur siglir inn til Patreksfjarðar og tekur þar formlega við hlutverki sínu.

01/09/2026

Björgun úr sjálfheldu í Reynisfjöru.

Á laugardaginn voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út vegna tveggja einstaklinga sem höfðu lent í sjálfheldu í Reynisfjöru. Þau höfðu gengið meðfram klettunum á fjöru en þegar tók að flæða að lokaðist leiðin til baka.

Víkverjar í Vík í Mýrdal voru fyrst boðaðir út og fljótlega bættust fleiri björgunarsveitir á Suðurlandi við, auk björgunarskipsins Þórs frá Vestmannaeyjum. Fólkið var staðsett með dróna og tókst síðan að komast að því á smærri bát sem flutti þau í Reynisfjöru.

Vel gekk að leysa verkefnið og allir komust heilir á húfi frá vettvangi.

Björgun 2026 er á næsta leiti og skráning er hafin! 🙌Björgun er alþjóðleg ráðstefna um leit og björgun sem hefur verið h...
30/08/2026

Björgun 2026 er á næsta leiti og skráning er hafin! 🙌

Björgun er alþjóðleg ráðstefna um leit og björgun sem hefur verið haldin annað hvert ár frá 1990. Þar koma saman fyrirlesarar, viðbragðsaðilar, sýnendur og áhugafólk til að miðla þekkingu, reynslu og nýjungum úr ólíkum greinum björgunarstarfs.

Ráðstefnan er ekki aðeins ætluð félagsfólki Landsbjargar heldur öllum sem hafa áhuga á björgunarstarfi, öryggismálum, tækjum og búnaði. Á dagskrá verða yfir 60 fyrirlesarar, fjölbreyttar vinnustofur og stór vörusýning (expo).

Björgun 2026 fer fram í Hörpu 16.-18. október. Skráning er hafin á heimasíðu ráðstefnunnar, rescue.is.

Tæplega 30 hundateymi æfðu og þreyttu próf á krefjandi leitarsvæðum á Lyngdalsheiði um síðustu helgi þegar Björgunarhund...
27/08/2026

Tæplega 30 hundateymi æfðu og þreyttu próf á krefjandi leitarsvæðum á Lyngdalsheiði um síðustu helgi þegar Björgunarhundasveit Íslands hélt þriðju af fjórum víðavangsúttektum sumarsins.

Þrátt fyrir rysjótt rigningarveður æfðu teymin af kappi. Nokkur þeirra náðu markmiðum ársins í prófum helgarinnar og fjölmörg færðust nær því að verða fullþjálfuð leitarteymi.

Að baki hverju útkallsteymi liggur mikil og markviss vinna. Ferlið tekur að jafnaði um þrjú ár og þarf teymið að standast fimm leitarpróf og hlýðnipróf. Að því loknu þarf hundur og stjórnandi að standast árlegt endurmat til að staðfesta að teymið sé reiðubúið í útköll. Auk þriggja daga æfingahelga eru æfingar haldnar nær alla sunnudaga ársins.

Nýr leiðbeinandi lauk jafnframt námi um helgina og bætist í öflugan hóp leiðbeinenda sveitarinnar. Leiðbeinendur BHSÍ hafa gríðarmikla reynslu af þjálfun leitarhunda og gefa alla sína vinnu á æfingum og námskeiðum við að þjálfa upp bjargir fyrir aðildarsveitir Landsbjargar.

🛟👇 Hefur þú áhuga á björgunarstarfi?  Fjölmargar björgunarsveitir taka inn nýliða á haustin og halda kynningarfundi fyri...
26/08/2026

🛟👇 Hefur þú áhuga á björgunarstarfi?

Fjölmargar björgunarsveitir taka inn nýliða á haustin og halda kynningarfundi fyrir áhugasama. Um land allt starfa 93 björgunarsveitir og á vef Landsbjargar má finna kort og upplýsingar um sveitina í þínu nágrenni. Hlekkurinn er í fyrstu athugasemd.

Nýliðaþjálfun tekur allt að tvö ár, þótt fyrirkomulagið sé mismunandi eftir sveitum. Nýliðar taka þátt í fjölbreyttum æfingum, sækja námskeið Björgunarskólans og læra það sem þarf til að verða fullgildir félagar og komast síðar á útkallslista.

Þjálfunin getur verið krefjandi en hún er líka skemmtileg. Þar kynnist fólk vel, verður hluti af sterkum hópi og öðlast reynslu og kunnáttu sem nýtist víða, líka utan björgunarstarfsins.

Ef þetta vekur áhuga er um að gera að finna næstu björgunarsveit og kanna hvort hún taki inn nýliða í haust. Þátttakendur þurfa almennt að vera að minnsta kosti 18 ára á því ári sem þjálfun hefst.

📷 Myndirnar eru úr æfingaferð nýliða Hjálparsveitar skáta í Garðabæ.

Opin samkeppni um 100 ára afmælismerki Landsbjargar!Í tilefni af því að Slysavarnafélagið Landsbjörg verður 100 ára í ja...
20/08/2026

Opin samkeppni um 100 ára afmælismerki Landsbjargar!

Í tilefni af því að Slysavarnafélagið Landsbjörg verður 100 ára í janúar 2028 efnum við til opinnar samkeppni um hönnun afmælismerkis félagsins.

Samkeppnin er haldin í samstarfi við FÍT og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.

Leitað er að fjölhæfu og skalanlegu merki í tveimur útgáfum: annars vegar með textanum „100 ár“ eða „100 ára“ og hins vegar „Síðan 1928“.

Samkeppnin er opin öllum hönnuðum og skilafrestur er til kl. 12.00 miðvikudaginn 9. september. Við hvetjum hönnuði, teiknara og annað skapandi fólk til að taka þátt og setja mark sitt á þessi merku tímamót í sögu félagsins.

Tæpar þrjár vikur eru til stefnu. Nánari upplýsingar um samkeppnina og skil á tillögum má finna í fyrstu athugasemd. 👇

Í dag, 25. júlí, er alþjóðlegur forvarnardagur gegn drukknun. Dagurinn minnir okkur á að drukknun er ekki óhjákvæmilegt ...
25/07/2026

Í dag, 25. júlí, er alþjóðlegur forvarnardagur gegn drukknun. Dagurinn minnir okkur á að drukknun er ekki óhjákvæmilegt slys. Með fræðslu, réttum öryggisbúnaði, góðum undirbúningi og stöðugri árvekni má koma í veg fyrir flest drukknunarslys.

Við sjó, ár og vötn geta aðstæður breyst hratt og kaldur sjór getur haft áhrif á öndun og hreyfigetu á örskömmum tíma. Því skiptir máli að nota alltaf björgunarvesti, fylgjast vel með veðri og aðstæðum og láta aðra vita af ferðum sínum.

Börn þurfa stöðugt eftirlit við vatn. Sundkútar og uppblásin leikföng koma hvorki í stað björgunarvestis né virks eftirlits fullorðinna.

Við hvetjum alla til að taka eina ákvörðun í dag sem eykur öryggi þeirra sjálfra og annarra við vatn. Björgunarvestið gerir lítið gagn ef það er skilið eftir í bátnum, bílnum eða á bryggjunni.

🌊🛟 Öryggi við sjó, ár og vötn er sameiginlegt verkefni.

Öflugt unglingastarf um allt land 🙌Landshlutamót unglingadeilda Landsbjargar fóru fram á fjórum stöðum í sumar, á Ólafsf...
13/07/2026

Öflugt unglingastarf um allt land 🙌

Landshlutamót unglingadeilda Landsbjargar fóru fram á fjórum stöðum í sumar, á Ólafsfirði, Laugarvatni, Varmalandi og í Logalandi. Nærri 300 unglingar, umsjónarmenn og aðrir þátttakendur komu saman á mótunum og áttu þar viðburðaríkar helgar.

Unglingarnir spreyttu sig á fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfi björgunarsveita. Meðal annars var æft í fyrstu hjálp, endurlífgun, fjarskiptum, sigi, hnútum, böruburði og notkun slökkvibúnaðar. Verkefnin reyndu ekki aðeins á kunnáttu heldur einnig samvinnu, útsjónarsemi og samskipti innan hópanna.

Það var þó ekki bara unnið. Sundferðir, kvöldvökur, tónlist, dans, froðufjör og ýmsar skemmtilegar þrautir settu svip sinn á mótin. Veðrið og óvæntar uppákomur fengu stundum að hafa áhrif á dagskrána, en þátttakendur létu það ekki stöðva fjörið.

Landshlutamótin eru mikilvægur hluti af unglingastarfi Landsbjargar. Þar fá unglingar tækifæri til að læra nýja hluti, efla sjálfstraustið og mynda tengsl við jafnaldra úr öðrum deildum. Um leið fá þau innsýn í þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra innan björgunarsveitanna.

Við þökkum öllum unglingum, umsjónarmönnum, björgunarsveitum, félagasamtökum og öðrum sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg og gerðu mótin möguleg. Framtíð félagsins er sannarlega björt.

Björgunarstörfin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg.Í síðdeginu í gær voru félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Bj...
06/07/2026

Björgunarstörfin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg.

Í síðdeginu í gær voru félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Björgunarsveitinni Suðurnes kallaðir út þegar lamb hafði komið sér í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi.

Lambið var á lítilli syllu í bjarginu og komst ekki af sjálfsdáðum til baka. Björgunarsveitarfólk seig niður, tryggði lambið og kom því aftur upp á bjargbrúnina.

🐑 Lambið virtist óslasað eftir ævintýrið og fékk að halda aftur til sinna.

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slysavarnafélagið Landsbjörg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slysavarnafélagið Landsbjörg:

Shortcuts

Share