Sundlaugar Reykjavíkur

Sundlaugar Reykjavíkur Sundlaugar Reykjavíkur eru átta talsins og hver og ein sundlaug hefur sín sérkenni og einstakt andrúmsloft. Öll í sund!

Hér deilum við almennum upplýsingum, tilkynningum, fréttum og skemmtilegu efni frá Sundlaugunum í Reykjavík. Nánari upplýsingar um aðstöðu, opnunartíma, símanúmer, viðgerðir eða tímabundnar lokanir er hægt að nálgast á heimasíðu hverrar laugar fyrir sig á https://reykjavik.is/sundlaugar

Ath. að upplýsingar um stutt, tímabundin og ófyrirséð frávik á þjónustu eru veittar í afgreiðslu hverrar laugar fyrir sig.

Kvöldsundið verður ljúft í vetur! 🙌Íþrótta- og útilífsráð samþykkti að sundlaugar Reykjavíkur yrðu áfram opnar til 22:00...
01/09/2026

Kvöldsundið verður ljúft í vetur! 🙌

Íþrótta- og útilífsráð samþykkti að sundlaugar Reykjavíkur yrðu áfram opnar til 22:00 um helgar í vetur en upphaflega hafði lengd helgaropnun aðeins átt að gilda í sumar.
Í Klébergslaug verður opið til 22:00 á sunnudögum.

Sjáumst í sundi! 🏊‍♀️

Kvöldsundið verður ljúft í vetur! 🙌

Íþrótta- og útilífsráð samþykkti að sundlaugar Reykjavíkur yrðu áfram opnar til 22:00 um helgar í vetur en upphaflega hafði lengd helgaropnun aðeins átt að gilda í sumar.
Í Klébergslaug verður opið til 22:00 á sunnudögum.

Sjáumst í sundi! 🏊‍♀️

🛠️❕Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur ...
24/08/2026

🛠️❕Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur

Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur hófust fyrr í sumar. Framkvæmdirnar hafa reynst mun umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.

Á meðan á framkvæmdum stendur hafa karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúma samtals um 60 gesti og því þarf að miða við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan þessar ráðstafanir eru í gildi.

Þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst þarf því tímabundið að breyta opnunartíma Sundhallarinnar á virkum dögum þar til viðgerðum á kvennaklefa lýkur.

Opnunartíminn verður sem hér segir:
Mánudagar: 06:30–10:00 og 14:00–22:00
Þriðjudagar: 06:30–08:30 og 14:00–22:00
Miðvikudagar: 06:30–22:00 (óbreyttur opnunartími)
Fimmtudagar: 06:30–08:30 og 15:00–22:00
Föstudagar: 06:30–10:00 og 15:00–22:00

Lögð er áhersla á að ljúka framkvæmdum við búningsklefa eins fljótt og kostur er og koma starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf. Vonast er til að hægt verði að opna kvennaklefann að nýju á haustmánuðum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda og þökkum gestum fyrir sýnda þolinmæði og skilning.

Við bendum jafnframt á að árskort og aðrar áskriftir gilda í öllum Sundlaugum Reykjavíkur.

Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur hófust fyrr í sumar. Framkvæmdirnar hafa reynst mun umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.

📢 Tilkynning frá Laugardalslaug• Laugardalslaug er opin með hefðbundnum hætti.• Skólasund er að hefjast og nú ganga skól...
24/08/2026

📢 Tilkynning frá Laugardalslaug

• Laugardalslaug er opin með hefðbundnum hætti.
• Skólasund er að hefjast og nú ganga skólabörn inn um aðalinngang.
• Enn er skert aðgengi að pottum og gufubaði undir stúkunni, en önnur starfsemi er opin eins og venjulega. 💦

🎆 Það er frítt fyrir þátttakendur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í sundlaugar Reykjavíkur eftir hlaupið ef sýnt er hla...
22/08/2026

🎆 Það er frítt fyrir þátttakendur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í sundlaugar Reykjavíkur eftir hlaupið ef sýnt er hlaupanúmer í afgreiðslu.

Á menningarnótt er oft þétt setið í laugunum miðsvæðis og við hvetjum því gesti og þátttakendur hlaupsins að kíkja einnig í sundlaugarnar í úthverfum borgarinnar.

17/08/2026

BREYTTUR OPNUNARTÍMI STÖKKBRETTIS Í SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR
Vegna þess að sundæfingar eru hafnar í innilaug Sundhallarinnar breytist opnunartími stökkbrettisins dagana 17.-21. ágúst. Stökkbrettið verður opið sem hér segir:

Mánudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00
Þriðjudagur: 11:00-16:00 og 17:00-21:00
Miðvikudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00
Fimmtudagur: 11:00-16:00 og 17:00-21:00
Föstudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00

Frá og með mánudeginum 24. ágúst verður stökkbrettið opið virka daga frá 15:00-16:00 og 19:00-21:00.

05/08/2026

Gleðilega Hinsegin daga!❤️🧡💛💚💙💜

Opið 11:00-17:00 í öllum sundlaugum Reykjavíkur þann 3. ágúst!
30/07/2026

Opið 11:00-17:00 í öllum sundlaugum Reykjavíkur þann 3. ágúst!

🐳Gleðifréttir úr Grafarvogslaug!Við höfum opnað okkar æðislegu rennibraut á ný eftir viðgerð. Nú geta gestir og börn ske...
30/07/2026

🐳Gleðifréttir úr Grafarvogslaug!

Við höfum opnað okkar æðislegu rennibraut á ný eftir viðgerð. Nú geta gestir og börn skemmt sér enn betur í lauginni 🌊

22/07/2026

Kæru gestir,

Þann 23. Julí lokar laugardalslaug kl 20:00 og hætt verður að hleypa ofan í laugina kl. 19:30 vegna ReyCup.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur og þökkum tillitsemina.

Address

Borgartún 12-14
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sundlaugar Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sundlaugar Reykjavíkur:

Shortcuts

Share