Félagsbústaðir

Félagsbústaðir Félagsbústaðir leigja út íbúðir í öllum hverfum Reykjavíkurborgar til fjölskyldna og einstaklinga.

Nýbyggt hús Félagsbústaða við Háteigsveg 59 hlaut “Grænu skófluna 2025” fyrir framúrskarandi verkefni á sviði vistvænnar...
18/11/2025

Nýbyggt hús Félagsbústaða við Háteigsveg 59 hlaut “Grænu skófluna 2025” fyrir framúrskarandi verkefni á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar. Viðurkenningin var veitt í Iðnó að viðstöddu fjölmenni á árlegri ráðstefnu “Dags grænnar byggðar” sem fram fór í Iðnó. Meginefni ráðstefnunnar í ár var á sjálfbærni í byggingariðnaði með sérstakri áherslu á félagslega þætti og vellíðan notenda.

Í mati dómnefndar um Háteigsveg 59 kemur segir m.a.: „Verkefnið sýndi fram á að jafnvel innan núverandi reglu- og lagaumhverfis er auðveldlega hægt að draga úr kolefnisspori og endurnýta ýmis byggingarefni samhliða alhliða hönnunargrunnreglum á farsælan hátt. Sé Háteigsvegur borin saman við sambærilega byggingu, er kolefnisspor verkefnisins um 50 prósent lægra. Háteigsvegur, leggur áherslu á aðgengi fyrir alla, hagkvæmni, notkun hágæða og heilnæmra efna, auk þess að skapa heimilislegt umhverfi.“ Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, fylgdist vel með byggingu hússins og hefur skráð upplýsingar um verkefnið á vefnum „H59 – Byggjum Grænni Framtíð“.

„Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið „kallinn í brúnni“ í verkefninu. Áræðin, skapandi og framsýn, enda hlaut hún nýverið umhverfisverðlaun fyrir frumkvöðlastarf á vegum norðurlandaráðs. Ég er þess fullviss að íbúum og starfsfólki mun líða vel í þessu fallega umhverfi,“ sagði Sigrún Árnadóttir, þegar hún tók við viðurkenningunni fyrir hönd Félagsbústaða.

Háteigsvegur 59 var tilbúinn til notkunar í upphafi þessa árs. Í húsinu er 7 íbúðir fyrir fatlað fólk ásamt þjónusturými. Hönnun hússins tekur mið af sérstökum þörfum íbúanna og er bygging hússins liður í uppbyggingaráætlunum Reykvíkurborgar í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Húsið stendur á afskaplega fallegum stað í næsta nágrenni við Sjómannaskólann. Íbúðirnar eru vel skipulagðar, fallegar, bjartar og útsýnið einstakt úr mörgum þeirra.

Árið 2021 auglýstu Félagsbústaðir í samstarfi við Arkitektafélag Íslands eftir arkitektum til að hanna tvær nýjar byggingar fyrir fatlað fólk, annars vegar við Háteigsvegi 59 og hins vegar við Brekknaás 6. Fjöldi arkitekta með teymi hönnuða skiluðu inn tillögum og kynntu hugmyndir sínar. Hönnun hússins við Háteigsveg kom í hlut kom í hlut Arnhildar Pálmadóttur arkitekts m.a. vegna hugmynda hennar um endurnýtingu efna og lækkun kolefnisspors byggingarinnar, en kolefnisspor hússins er rúmlega 59% minna en samanburðarhúss og tæplega 20% byggingarefnis er annað hvort endurnýtt efni eða afgangsefni og má þar nefna gólfefni, glugga og utanhússklæðning.

Við styðjum KrabbameinsfélagiðStarfsfólk Félagsbústaða gerði sér dagamun og tók að sjálfsögðu þátt í Bleika deginum 22.1...
23/10/2025

Við styðjum Krabbameinsfélagið

Starfsfólk Félagsbústaða gerði sér dagamun og tók að sjálfsögðu þátt í Bleika deginum 22.10.2025

Allt starfsfólk mætti í einhverju bleiku og flestir komu með veitingar á bleika kaffihlaðborðið sem stjórn starfsmannafélagsins skipulagði.

Veitt voru verðlaun fyrir flottasta bleika klæðnaðinn og var fallegur múmínbolli í verðlaun sem var keyptur í Bleiku búðinni og er til styrktar málefninu.

21/08/2024

Félagsbústaðir bætir þjónustu við leigjendur

Nú geta allir leigjendur Félagsbústaða skráð sig á fljótlegan og einfaldan hátt inn á þjónustugáttina Mínar síður. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um leigusamninga, séð leigureikninga og sent inn viðhaldsbeiðnir.

Hvað er hægt að gera á Mínum síðum?
• Bætt við/breytt netfangi.
• Bætt við/breytt símanúmeri.
• Bætt við/breytt bankareikningsnúmeri.
• Sækja afrit af leigusamninginum þínum.
• Skoða útgefna reikninga og sundurliðun á þeim.
• Senda inn viðhaldsbeiðnir.

https://minarsidur.felagsbustadir.is/

Hægt er að hafa samband vakni spurningar varðandi Mínar síður í síma 520-1500 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

19/08/2024

Heitavatnslaust 19-21 ágúst í Breiðholti og Norðlingaholti

Vegna tengingar á nýrri flutningsæð hitaveitu ætlar Veitur að loka fyrir heita vatnið í Breiðholti og Norðlingaholti í kvöld 19. ágúst frá klukkan 22:00 til hádegis miðvikudaginn 21. ágúst 2024.

Vegna þessa ætlum við hjá Félagsbústöðum að senda pípara til að skrúfa fyrir vatnið í kvöld milli klukkan 21:00 & 22:00 og aftur ætlar hann að skrúfa frá einum til tveimur klukkustundum eftir að Veitur hleypir vatnið aftur á. Með þessu þá erum við að koma í veg fyrir skemmdir.

Gott fyrir leigjendur að hafa í huga að skrúfa fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið er hleypt aftur á.

Nánari upplýsingar má finna hér à https://www.veitur.is/bilanir/suduraedarlokun_agust_2024

Kær kveðja

Starfsfólk Félagsbústaða

24/05/2024

Niðurstöður könnunar sem nýverið var gerð meðal leigjenda Félagsbústaða benda til aukinnar ánægju með þjónustu og aðra þætti sem spurt var um borið saman við

Við erum stolt af fyrstu Svansvottuðu byggingu borgarinnar!
15/03/2024

Við erum stolt af fyrstu Svansvottuðu byggingu borgarinnar!

Við sendum leigjendum Félagsbústaða, samstarfsaðilum og viðskiptavinum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár...
21/12/2023

Við sendum leigjendum Félagsbústaða, samstarfsaðilum og viðskiptavinum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum liðið. Megi komandi ár færa gleði og gæfu.

Nú þurfa allir að fara að flokka meira og við tökum þátt í því. Vinnum öll saman að því að hafa umhverfi okkar snyrtileg...
09/06/2023

Nú þurfa allir að fara að flokka meira og við tökum þátt í því. Vinnum öll saman að því að hafa umhverfi okkar snyrtilegt.

Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að miklar breytingar eru að verða á sorphirðu og flokkun sorps á höfuðborgarsvæðinu. Helsta breytingin er sú að

Framkvæmdir eru að hefjast á Háteigsveg 59.
31/05/2023

Framkvæmdir eru að hefjast á Háteigsveg 59.

Félagsbústaðir hefja í dag framkvæmdir við byggingu átta íbúða húss fyrir fatlað fólk við Háteigsveg 59. Húsið er hannað með þarfir íbúanna í huga og er gert

Félagsbústaðir senda leigjendum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um gleðilega Páska og vona að öll eigi ánæg...
05/04/2023

Félagsbústaðir senda leigjendum og öðrum landsmönnum nær og fjær bestu óskir um gleðilega Páska og vona að öll eigi ánægjulegar stundir með fjölskyldu og vinum yfir páskana. Skrifstofa Félagsbústaða opnar aftur þriðjudaginn 11. apríl kl. 9.

Í ljósi þess að vænst er asahláku á morgun föstudag bendum við á mikilvægi þess að hreinsa snjó frá svalahurðum og frá d...
19/01/2023

Í ljósi þess að vænst er asahláku á morgun föstudag bendum við á mikilvægi þess að hreinsa snjó frá svalahurðum og frá dyrum að sameiginlegum rýmum og niðurföllum, annars gæti lekið inn vatn þegar mikill snjór bráðnar í einu.

Af gefnu tilefni, vegna mikils fannfergis, vilja Félagsbústaðir beina því til leigjenda að gæta að því að hreinsa snjó af svölum og hreinsa frá niðurföllum

Af gefnu tilefni, vegna mikils fannfergis, vilja Félagsbústaðir beina því til leigjenda að gæta að því að hreinsa snjó a...
06/01/2023

Af gefnu tilefni, vegna mikils fannfergis, vilja Félagsbústaðir beina því til leigjenda að gæta að því að hreinsa snjó af svölum og hreinsa frá niðurföllum til að koma í veg fyrir vatnsleka inn í íbúðir þegar þiðna fer. Góða helgi!

Af gefnu tilefni, vegna mikils fannfergis, vilja Félagsbústaðir beina því til leigjenda að gæta að því að hreinsa snjó af svölum og hreinsa frá niðurföllum

Address

Þönglabakki 4
Reykjavík
109

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsbústaðir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Félagsbústaðir:

Share

Category