Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið tekur ekki á móti fyrirspurnum í gegnum samfélagsmiðla. Sé þess óskað, er hægt að senda erindi á [email protected]

Markmið menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins er að virkja kraft íslensku þjóðarinnar enn frekar svo hugvitið auðgi bæði andann og hagkerfið til framtíðar.

🔬 Tímamót í íslensku vísindasamfélagi!Fyrsta heildstæða stefna Íslands um opin og ábyrg vísindi var birt í dag. Markmiði...
15/09/2026

🔬 Tímamót í íslensku vísindasamfélagi!
Fyrsta heildstæða stefna Íslands um opin og ábyrg vísindi var birt í dag. Markmiðið er að þekking sem verður til fyrir opinbert fé nýtist samfélaginu sem best – með gagnsæi, ábyrgð, öryggi og fræðilegt frelsi að leiðarljósi.

Eins opin og mögulegt er – eins lokuð og nauðsyn krefur 👇

Frestur er til 15. september n.k
08/09/2026

Frestur er til 15. september n.k

Gjöf Jóns Sigurðssonar veitir viðurkenningar fyrir rit sem lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum. Auglýst er eftir umsóknum og úthlutað úr sjóðnum á tveggja ára fresti og er skilafrestur umsókna jafnan 1. september. Koma þá til álita þau rit s...

✍️Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins má sækja um til miðnættis þriðjudaginn 1. október 2026.
03/09/2026

✍️Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins má sækja um til miðnættis þriðjudaginn 1. október 2026.

Opið er fyrir umsóknir til miðnættis þriðjudaginn 1. október 2026.

Fyrir áhugasama er hér uppskriftin af brauðtertunni góðu en hún er upprunalega frá tengdarmóður matreiðslumannsins, Sigr...
24/08/2026

Fyrir áhugasama er hér uppskriftin af brauðtertunni góðu en hún er upprunalega frá tengdarmóður matreiðslumannsins, Sigríði Gunnsteinsdóttur👇

Viltu uppskriftina að brauðtertunni frá því á Menningarnótt?

🇮🇸Takk fyrir komuna! Hátt í 1000 sneiðar af brauðtertu voru skornar af mikilli gleði í dag! Tertan góða var á endanum 6 ...
22/08/2026

🇮🇸Takk fyrir komuna! Hátt í 1000 sneiðar af brauðtertu voru skornar af mikilli gleði í dag! Tertan góða var á endanum 6 metrar og fauk út á 60 mínútum 🎉

🥳 Dagskráin hefst kl. 15 í alrýminu á 1. hæð í Reykjastræti 8.Boðið verður upp á brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með...
18/08/2026

🥳 Dagskráin hefst kl. 15 í alrýminu á 1. hæð í Reykjastræti 8.
Boðið verður upp á brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með dagskránni vill ráðuneytið vekja athygli á íslenskri matarmenningu og þeim lifandi hefðum sem þróast og taka breytingum með samfélaginu. Ekki dugir minna en rúmlega 5 metrar af brauðtertu svo líklega er um lengstu brauðtertu landsins að ræða.

🍴 „Með þessu viljum við sameina matarmenningu, hönnun, myndlist og tónlist, enda fer þetta allt ákaflega vel saman. Brauðtertan er líka sérstök að því leyti að hún hefur ekki aðeins sameinað kynslóðir heldur má líta á hana sem ákveðið listform, líkt og veisluborð víða um land bera glöggt vitni um. Hún er dæmi um lifandi hefð sem tekur stöðugum breytingum og þróast með þjóðinni – hefð sem sameinar, mettar og virkjar sköpunargleðina,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að þessu tilefni í tilkynningu á vef ráðuneytisins.

🎨 Milli kl. 15 og 17 verður hægt að ganga inn í Reykjastræti 8 frá innganginum á móti Hörpu. Á Hörputorgi verður jafnframt fjölbreytt dagskrá og því tilvalið að rölta þaðan yfir í ráðuneytið, bragða á brauðtertu og skoða listasýninguna Brauðtertan lifir.

🎉Líklega lengsta brauðterta landsins verður á borðum í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu á Menningarnótt🎉Ver...
15/08/2026

🎉Líklega lengsta brauðterta landsins verður á borðum í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu á Menningarnótt🎉

Verið velkomin!

15/08/2026

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður.

⏰Umsóknarfrestur er 15. september 2026 kl. 15:00.

💬Starfsfólk Tækniþróunarsjóðs verður með opna viðtalstíma í Engjarós í Grósku á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl 10:00-14:30 frá 11. ágúst til og með 10. september.

☎️Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í síma 515 5800

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins

Nánari upplýsingar á vefsíðu Tækniþróunarsjóðs (hlekkur í athugasemd).

Address

Reykjastræti 8
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00
Saturday 11:00 - 00:00
Sunday 11:00 - 00:00

Telephone

+3545459600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share