RANNÍS

RANNÍS Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk ýmissa samstarfsáætlana ESB.

Þessi síða er til þess að deila áhugaverðum sögum, fréttum og tilkynningum sem tengjast starfsemi Rannís. Rannís vill þannig veita framúrskarandi þjónustu og kynna fyrir almenningi áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag. Upplýsingar um hlutverk og starfsemi Rannís má finna hér: https://www.rannis.is/starfsemi/

Ef óskað er eftir ráðgjöf eða upplýsingum skal hafa samband við Rannís í s

íma 515-5800 frá kl. 9.00-15.00 alla virka daga, eða senda tölvupóst á [email protected].

Öllum athugasemdum er svarað innan viku, nema þegar stofnunin er lokuð. Meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummælum um einstaklinga eða hópa verður eytt af síðunni. Persónulegar upplýsingar um einstaklinga eða fyrirspurnir um einstök mál eiga ekki heima á þessari síðu og verður þeim einnig eytt.


Ábyrgðaraðili er vefstjóri Rannís, [email protected].

Uppbyggingarsjóður EES í Slóvakíu 🇸🇰 auglýsir menningarstyrki í samstarfi við íslenska aðila 🇮🇸Slóvakía hefur opnað fyri...
05/06/2026

Uppbyggingarsjóður EES í Slóvakíu 🇸🇰 auglýsir menningarstyrki í samstarfi við íslenska aðila 🇮🇸
Slóvakía hefur opnað fyrir umsóknir til stærri menningarverkefna í samstarfi íslenskra og norskra menningarstofnana.
📅Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2026.
👉Nánar í fyrstu athugasemd

Glæsilegur árangur hjá nýsköpunarfyrirtækinu Atmonia sem hefur tryggt sér 2,5 milljónir evra til þróunar sjálfbærrar amm...
03/06/2026

Glæsilegur árangur hjá nýsköpunarfyrirtækinu Atmonia sem hefur tryggt sér 2,5 milljónir evra til þróunar sjálfbærrar ammóníakframleiðslu – mikilvægur áfangi fyrir íslenska nýsköpun og græna tækni.
Dr. Helga Dögg Flosadóttir, framkvæmdastjóri og meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Atmonia, leiddi 2,5 milljóna evra styrkjaumsókn í EIC Transition Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC). Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni hlýtur styrk úr EIC Transition.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd!

Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 49 verkefna að ganga til samninga um nýja styrki í vorúthlutu...
03/06/2026

Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 49 verkefna að ganga til samninga um nýja styrki í vorúthlutun sjóðsins 2026. Heildarfjárhæð styrkja til nýrra verkefna nemur 803 milljónum króna. Tækniþróunarsjóður er fjármagnaður af menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu.

Við óskum styrkþegum til hamingju og velfarnaðar á komandi misserum.

Nánar á vef Rannís (Hlekkur í athugasemd)

Bókasafnasjóður úthlutar fyrir árið 2026.Alls er úthlutað 19 milljónum króna til níu verkefna í ár og fór úthlutunin fra...
02/06/2026

Bókasafnasjóður úthlutar fyrir árið 2026.
Alls er úthlutað 19 milljónum króna til níu verkefna í ár og fór úthlutunin fram 31. maí í Höfuðstöðinni.
Sjá nánar í fyrstu athugasemd.

Barnamenningarsjóður  úthlutar 90 milljónum til 43 verkefna.Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 í T...
02/06/2026

Barnamenningarsjóður úthlutar 90 milljónum til 43 verkefna.
Úthlutunin fór fram í Höfuðstöðinni þar sem Hljómsveit 2 í Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni.
Alls voru veitir styrkir til 43 fjölbreyttra verkefna á sviði barnamenningar.
Sjá frétt í fyrstu athugasemd

Opið fyrir umsóknir í LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB.LIFE er innleiðingaráætlun, ekki rannsóknaráætlun, sem þýð...
01/06/2026

Opið fyrir umsóknir í LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB.

LIFE er innleiðingaráætlun, ekki rannsóknaráætlun, sem þýðir að verkefnum er ætlað að stuðla að því að stefnur og löggjöf í þágu umhverfis- og loftslagsmála megi verða að veruleika
Undir LIFE eru fjórar undiráætlanir með ólíkar áherslur.

👉 Umsóknarfrestur er í september 2026
Nánar í fyrstu athugasemd.

Smá fréttir og innblástur og tengsl á eTwinning-ráðstefnu í Óðinsvéum.Diljá Helgadóttir og Inga Þórunn Waage, kennarar v...
28/05/2026

Smá fréttir og innblástur og tengsl á eTwinning-ráðstefnu í Óðinsvéum.

Diljá Helgadóttir og Inga Þórunn Waage, kennarar við Menntaskólann á Tröllaskaga, ásamt Margréti Hrefnu Ríkarðsdóttur frá Langholtsskóla, sóttu norræna eTwinning-ráðstefnu dagana 15.–17. apríl þar sem áhersla var lögð á alþjóðlegt skólasamstarf, verkefnavinnu og gervigreind í kennslu.

Diljá segir upplifun sína af ráðstefnunni hafa verið mjög jákvæða: „Ég fór út með litla vitneskju um út í hvað ég var að fara. Ráðstefnan, skipulag hennar og innihald var til fyrirmyndar og gaf mér meira en ég átti von á. Ég kynntist fullt af frábærum einstaklingum og gerði verkefni með kennurum nokkurra skóla sem á að hrinda í framkvæmd næsta vor.“

Lesið nánar um þetta eTwinning verkefni í fyrstu athugasemd ⬇️
eTwinning Ísland

Langar þig að fylgjast með ársfundi Life - Umhverfis- og loftslagsáætlunar ESB en kemst ekki í Norræna húsið?Hér getur þ...
28/05/2026

Langar þig að fylgjast með ársfundi Life - Umhverfis- og loftslagsáætlunar ESB en kemst ekki í Norræna húsið?
Hér getur þú horft á streymi frá fundinum:

Rannís boðar til ársfundar LIFE áætlunarinnar á Íslandi, sem verður haldinn í Norræna húsinu,…

Opnað hefur verið fyrir skráningu sýnenda á Vísindavöku 2026, sem fer fram laugardaginn 26. september næstkomandi, og hv...
27/05/2026

Opnað hefur verið fyrir skráningu sýnenda á Vísindavöku 2026, sem fer fram laugardaginn 26. september næstkomandi, og hvetjum við háskóla, stofnanir, fyrirtæki og frumkvöðla á sviði rannsókna og og nýsköpunar að skrá sig og taka þátt í stærsta vísindamiðlunarviðburði á Íslandi.

Nánari upplýsingar á vef Vísindavöku (hlekkur í athugasemd)

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna fyrir árið 2026. Veittir voru styrk...
27/05/2026

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna fyrir árið 2026. Veittir voru styrkir til 15 sjálfstætt starfandi fræðimanna til metnaðarfullra verkefna sem spanna vítt svið. Starfslaun sjóðsins í ár eru 580.000 kr. á mánuði (um verktakagreiðslur er að ræða).

Rannís óskar styrkþegum til hamingju og velgengni á komandi misserum.

Nánari upplýsingar og listi yfir styrkþega á vef Rannís (hlekkur í athugaemd)

Sjóðurinn er fjármagnaður af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Address

Borgartún 30
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Telephone

+3545155800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when RANNÍS posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to RANNÍS:

Share