febrúar 1937. Nokkrar áhugasamar konur í Reykjavík fengu þá hugmynd að stofna sérstakt kvenfélag innan Sjálfstæðisflokksins, er starfaði í anda flokksins og ynni að þeim þjóðþrifamálum sem flokkurinn hefur á stefnuskrá sinni. Stofnfélagar voru 315 og var fyrsti formaður félagsins frú Guðrún Jónasson, bæjarfulltrúi. Var stofnfundurinn hinn fjörugasti og sátu konur að kaffidrykkju, söng og ræðuhöldum langt fram eftir kvöldi. Upphaflegt markmið félagsins var að vinna að eflingu Sjálfstæðisflokksins á grundvelli einstaklingsframtaksins til hagsbóta öllum landsmönnum og að stuðla að aukinni þátttöku kvenna í stjórnmálum, sérstaklega sem fulltrúa á Alþingi og í borgarstjórn. Hvöt er fyrsta félag Sjálfstæðiskvenna sem stofnað er á Íslandi og fyrsta stjórnmálafélag á landinu sem konur stofna með sér. Félagið er aðili að Mæðrastyrksnefnd. Félagið er vettvangur kvenna í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík og styður við öflugar konur sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi flokksins, sæti á Alþingi eða í borgarstjórn. Hvöt telur í dag yfir 900 konur. Sjálfstæðiskonur í Reykjavík eru hvattar til að ganga í félagið í gegnum mínar síður xd.is. Hvatarkonur sem hafa sæti á Alþingi eru:
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður og ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar. Hildur Sverrisdóttir, alþingismaður, atvinnuveganefnd, framtíðarnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, formaður Íslandsdeildar alþjóðaþingmannasambandsins. Diljá Mist Einarsdóttir, alþingismaður, efnahags- og viðskiptanefnd, forsætisnefnd, utanríkismálanefnd, þingmannanefnd Íslands og ESB, Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA og EES. Hvatarkonur sem eiga sæti í borgarstjórn eru:
Hildur Björnsdóttir, fulltrúi í borgarráði og umhverfis- og skipulagsráði, í stjórn Faxaflóahafna og fulltrúaráði samtaka sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, fulltrúi í Borgarráði, menningar-, íþrótta- og tómstundaráði, velferðarráði og íbúaráði vesturbæjar og í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi í forsætisnefnd, í skóla- og frístundaráði og í íbúaráði Grafarholts og Úlfarsárdals. Formaður Hvatar er Birna Bragadóttir og varaformaður Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir. Gjaldkeri er Hlíf Sturludóttir.