Höfuðborgarstofa

Höfuðborgarstofa Höfuðborgarstofa heyrir undir Menningar og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar. Stofan ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála.

Stofan ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála innanlands og utan og leiðir markaðssamstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarstofa tók til starfa í ársbyrjun 2003 og heyrir undir Menningar og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar. Vöxtur í ferðaþjónustu hefur verið mikill undanfarin ár og hefur stofan unnið stöðugt og markvisst að því að skilgreina sóknarfæri og styrklei

ka Reykjavíkur á sviði ferðamála, m.a. með því að samþætta nýsköpun, vöruþróun, markaðssetningu og stjórnun ferðamála. Stofan leiðir einnig samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um markaðssetningu á svæðinu gagnvart erlendum ferðamönnum undir sameiginlegu vörumerki Reykjavíkur, vinnur náið með Íslandsstofu og heldur utan um samstarf borgarinnar við samtök hagaðila í ferða- og þjónustugeiranum. Megináhersla í starfi stofunnar er mörkun og markaðssetning á áfangastaðnum, enda eykur sterk ímynd og vitund um áfangastað samkeppnishæfni borga, fyrirtækja og hagaðila. Leiðarljós Höfuðborgarstofu, sem byggir á ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar (2020 - 2025), er að Reykjavík verði þekkt sem sjálfstæður áfangastaður og mikilvægur þáttur í ákvörðun margra erlendra gesta um Íslandsferð. Markmið hennar er að borgin sé eftirsótt allt árið um kring, af erlendum sem innlendum gestum, og að íbúar hennar njóti alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Svæðið er kynnt á öflugan hátt þannig að íbúar og gestir fái notið þeirrar menningar, afþreyingar, upplifunar og þjónustu sem í boði er. Í því samhengi er sérstaða borgarinnar sem lifandi og framsækinnar menningarborgar, umvafinni einstakri náttúru dregin fram. Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar má lesa í heild sinni inni á vef Reykjavíkurborgar

https://reykjavik.is/sites/default/files/samthykkt_ferdamalastefna_reykjavikurborgar_2020-2025.pdf

29/12/2022

Við á Höfuðborgarstofu óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem nú er að líða. Sjáumst hress á nýju ári!

Höfuðborgarstofa er nú stödd í London á World Travel Market sem er stærsta ferðasýning heims.
08/11/2022

Höfuðborgarstofa er nú stödd í London á World Travel Market sem er stærsta ferðasýning heims.

Visit Reykjavík skellti sér til Nuuk á Vestnorden 2022! Margt mjög áhugavert að sjá þar og frábært að geta tekið þátt í ...
20/09/2022

Visit Reykjavík skellti sér til Nuuk á Vestnorden 2022! Margt mjög áhugavert að sjá þar og frábært að geta tekið þátt í ferðasýningum á ný.

17/08/2022

Menningarnóttin er á næsta leiti og Höfuðborgarstofa er búin að vera að aðstoða viðburðarteymi borgarinnar við undirbúning á þessari skemmtilegu afmælishátíð með alls konar efnisgerð og fleiru. Dagskráin er stútfull af skemmtilegum viðburðum, þið getið kynnt ykkur hana hér: https://menningarnott.is/

03/08/2022

Eitt af verkefnum Höfuðborgarstofu er að gefa út og markaðssetja Borgarkort Reykjavíkur / Reykjavik City Card en það gerir íbúum og gestum Reykjavíkur auðveldara að njóta þess öfluga menningarlífs sem borgin hefur upp á að bjóða. Handhöfum kortsins er veittur aðgangur að helstu söfnum á höfuðborgarsvæðinu og öðrum áhugaverðum stöðum. Einnig fá korthafar óheftan aðgang í sundlaugar Reykjavíkur og síðast en ekki síst gildir kortið ótakmarkað í Strætó á meðan kortið er í gildi.

Höfuðborgarstofa lét hanna nýtt útlit og markaðsefni fyrir kortið sem er í takti við útlit RE herferðarinnar, eins og sjá má í myndbandinu hér..

Höfuðborgarstofa svarar daglega fyrirspurnum frá fjölmiðlafólki um allan heim. Stofan útvegar ljósmyndir, svara spurning...
18/07/2022

Höfuðborgarstofa svarar daglega fyrirspurnum frá fjölmiðlafólki um allan heim. Stofan útvegar ljósmyndir, svara spurningum og skipuleggur heimsóknir fyrir erlenda fjölmiðla.

Afraksturinn er grein eins og þessi sem birtist í The Times.

Our expert reveals the best time to visit Iceland's capital city, what to do and where to stay.

Höfuðborgarstofa sinnir því stórskemmtilega verkefni að vera tengiliður við ýmsa kvikmynda- og sjónvarpsframleiðendur se...
12/07/2022

Höfuðborgarstofa sinnir því stórskemmtilega verkefni að vera tengiliður við ýmsa kvikmynda- og sjónvarpsframleiðendur sem vilja taka upp efni í Reykjavík.

Í desember síðastliðinn fóru fram tökur á verðlaunaþáttaröðinni The Flight Attendant í miðbænum og var Höfuðborgarstofa framleiðendum innan handar við undirbúninginn enda um risastórt verkefni að ræða.

Í klippunni hér að neðan má sjá leikkonuna Kaley Cuoco í hlutverki flugfreyjunnar sem ferðast til Reykjavíkur í leit að týndri vinkonu.

Don't forget to give us a thumbs up and a comment to help us bring you more content in the future. Don't forget to subscribe to get all of the latest promos,...

Við minnum á hið stórgóða orð Sporlof sem varð fyrir valinu þegar Höfuðborgarstofa auglýsti eftir íslensku orði yfir ens...
11/07/2022

Við minnum á hið stórgóða orð Sporlof sem varð fyrir valinu þegar Höfuðborgarstofa auglýsti eftir íslensku orði yfir enska hugtakið Staycation sporlofsárið mikla 2021. Þið getið séð brot af þeim 2.500 tillögum sem okkur bárust á meðfylgjandi myndum.

07/07/2022

Á vef Visit Reykjavík er að finna upplýsingar um flest sem viðkemur áfangastaðnum Reykjavík, viðburði, veitingastaði, gistingu, afþreyingu og ýmsan fróðleik.
Við hvetjum viðburðahaldara og rekstraraðila til að skrá starfsemi sína og viðburði inn á vefinn sem er vel sóttur af erlendum gestum og þeim sem eru að skipuleggja heimsókn til borgarinnar

04/07/2022

Address

Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Höfuðborgarstofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Höfuðborgarstofa:

Share

Reykjavík - Borgin okkar

Miðborgin verður sett í sérstakan sumarbúning og þar verður margt skemmtilegt um að vera í tengslum við verkefnið. Hreinsunarátak er nú þegar farið af stað og garðyrkjan er í óða önn að undirbúa að planta út sumarblómunum.

Þessa dagana vinna verkefnastjórar Sumarborgarinnar að dagskrá í samvinnu við listafólk og rekstraraðila í miðborginni. Þar verður eitthvað í boði fyrir alla, fjölskyldufólk, ungt fólk og eldra fólk.

Hryggjarstykkið í þessari vinnu er samvinna borgarinnar og rekstraraðila í miðborginni. Við höfum ákveðið að taka höndum saman til að vekja athygli á þeirri fjölbreytni sem er í miðborginni. Hvergi er eins mikið af veitingastöðum, verslunum, menningu og annarri þjónustu á einum og sama staðnum eins og í miðborg Reykjavíkur. Einnig verðum við með stútfullt og ítarlegt viðburðadagatal svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í miðborginni.

Borgin fer að breyta um ásýnd í rólegheitum. Fólk ætti að fara að upplifa breytingarnar strax upp mánaðamótum. Við ætlum að koma fyrir stólum og borðum hér og þar svo fólk geti setið og slakað á. Við ætlum að taka fyrir svæði sem fólk veitir almennt ekki mikla athygli eins og torg og opin svæði og lyfta þeim upp og gera þau meira aðlaðandi. Markmiðið er að miðborgin verði að skemmtilegum stað þar sem allir geta notið sín.