Ríkislögreglustjóri

Ríkislögreglustjóri Ríkislögreglustjóri, Rauðarárstíg 25 105 Reykjavík. Sími 444-2500. Hringdu í 112 ef þú þarft skjóta lögregluaðstoð. Embætti ríkislögreglustjóra var stofnað 1. gr.

Traust – Fagmennska - Samvinna

Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglu í umboði ráðherra. Ríkislögreglustjóri er Sigríður Björk Guðjónsdóttir. júlí 1997 er lögreglulög nr. 90/1996 tóku gildi. Um hlutverk ríkislögreglustjóra er fjallað í lögreglulögum, ásamt ýmsum öðrum lögum og reglugerðum. Samkvæmt 4. laganna fer ríkislögreglustjóri með málefni lögreglunnar í umboði innanríkisráðherra. Megi

nhlutverk embættisins er að leiða lögregluna í landinu og standa vörð um öryggi borgaranna. Ríkislögreglustjóri fer með yfirstjórn lögreglu og almannavarna samkvæmt lögreglulögum og lög um almannavarnir nr. 82/2008. Verkefni ríkislögreglustjóra ná til landsins alls og alþjóðasamstarfs af ýmsum toga. Höfuðstöðvar embættis ríkislögreglustjóra eru að Skúlagötu 21 í Reykjavík. Embættið hefur einnig starfsstöðvar í Skógarhlíð 14 í Reykjavík, á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á lögreglustöðinni á Akureyri. Innlegg eða athugasemdir á síðu ríkislögreglustjórans sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verður þegar í stað eytt. Innlegg sem eru sett inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Myndir sem hér er að finna úr starfi lögreglunnar er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum án þess að því sé getið hvaðan myndir eru fengnar. VINSAMLEGA LESIÐ ÞETTA ÁÐUR EN INNLEGG ER SETT Á SÍÐU RÍKISLÖGREGLUSTJÓRANS

Vinsamlegast athugið að starfsmenn embættis ríkislögreglustjóra fylgjast ekki með þessari síðu eða innleggi sem sett eru inn á hana allan sólarhringinn. Þeir sem sjá um uppfærslu hennar sinna því samhliða öðrum störfum innan lögreglunnar. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki hægt að tryggja að svör við spurningum verði strax sett inn á síðuna. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112, samræmt neyðarnúmer fyrir allt landið. Svarað er í þann síma allan sólarhringinn. Vinsamlegast athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um tiltekin brot, tiltekin mál, grunsemdir um afbrot eða brotamenn eða kvartanir, til dæmis kvartanir um störf tiltekinna starfsmanna lögreglu. Síðuna skal ekki nota til að tilkynna um tapað/fundið eða stolna muni. Slíkum málefnum er rétt að koma á framfæri í gegnum síma, með bréfi eða tölvupósti til þess lögregluumdæmis sem atburður átti sér stað í. Eins er hægt að mæta á lögreglustöð í þínu svæði eða sveitarfélagi. Nánari upplýsingar um það hvernig best sé að ná sambandi við lögreglu í þínu umdæmi er að finna á lögregluvefnum: http://www.logreglan.is/logreglan/umdaemin. Einnig er minnt á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasímin er samvinnuverkefni lögreglu og tollayfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Á lögregluvefnum má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um lögregluna í landinu, meðal annars forvarnir, fræðslu, tölfræði. http://www.logreglan.is

Í gær var þess minnst að árið 1976 útskrifuðust í fyrsta sinn fjórar lögreglukonur frá Lögregluskóla ríkisins og hófu st...
22/05/2026

Í gær var þess minnst að árið 1976 útskrifuðust í fyrsta sinn fjórar lögreglukonur frá Lögregluskóla ríkisins og hófu störf í almennri lögreglu.

Við athöfnina voru þrjár þessara brautryðjenda viðstaddar, Arnþrúður Karlsdóttir, Björg Jóhannesdóttir og Katrín Þorkelsdóttir, og þeim færðar þakkir fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu. Jafnframt var fjórðu konunnar minnst, Dóru Hlínar Ingólfsdóttur, með virðingu og þakklæti, en hún er látin.

Saga lögreglukvenna á Íslandi er bæði löng og merkileg. Hún lýsir þrautseigju, fagmennsku og vilja til að ryðja brautina þar sem áður höfðu staðið hindranir. Þær konur sem við heiðruðum í gær stigu fram á tímum þegar það var alls ekki sjálfgefið að konur gegndu lögreglutörfum á sama vettvangi og karlar.

Með störfum sínum og framgöngu sýndu þær að hæfni, dómgreind og þjónustulund ráðast ekki af kyni heldur karakter, menntun og heilindum. Eru þeim innilegar þakkir færðar fyrir framlag sitt til íslenskrar löggæslu.

Alls uppfylltu 189 umsækjendur um nám í lögreglufræði almenn skilyrði námsins og voru boðaðir til þátttöku í fyrri hluta...
15/05/2026

Alls uppfylltu 189 umsækjendur um nám í lögreglufræði almenn skilyrði námsins og voru boðaðir til þátttöku í fyrri hluta inntökuprófa.

Prófin eru byggð upp á þrek- og styrktarprófum, skriflegu frásagnarverkefni og sálfræðiprófum.

Af þeim 189 sem sóttu um og voru boðaðir til prófa mættu 146 umsækjendur. Alls stóðust 92 umsækjendur þann hluta ferlisins, meðalaldur þeirra er tæplega 25 ár og eru konur um 35 prósent og karlar um 65 prósent.

Nú stendur síðari hluti inntökuferlisins yfir.

🔗👇

Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Í skýrslunni kemur meða...
13/05/2026

Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að viðbrögð við jarðhræringunum hafi verið eitt stærsta og flóknasta almannavarnaverkefni sem íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir á síðari tímum, þar sem reynt hafi á samhæfingu, úthald og faglega getu viðbragðsaðila við síbreytilegar og krefjandi aðstæður.

Fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra vegna skýrslunnar má finna hér að neðan 👇

Í dag kom út skýrsla starfshóps sérfræðinga um ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga.

Fulltrúar Norðurlandanna í stjórnarborði Frontex komu saman í húsakynnum ríkislögreglustjóra í vikunni.Frontex gegnir ly...
08/05/2026

Fulltrúar Norðurlandanna í stjórnarborði Frontex komu saman í húsakynnum ríkislögreglustjóra í vikunni.

Frontex gegnir lykilhlutverki í öryggi ytri landamæra Evrópu, meðal annars með áhættugreiningum og stuðningi við heimferðir og fylgdir.

Eitt ár af OTF GRIMM sem Ísland er sterkur samstarfsaðili að.Samstarfið er rekið af Europol og snýr að rannsóknum tengdu...
29/04/2026

Eitt ár af OTF GRIMM sem Ísland er sterkur samstarfsaðili að.

Samstarfið er rekið af Europol og snýr að rannsóknum tengdum ofbeldis þjónustu (e. Violence as a service) og berst gegn vaxandi notkun dulkóðaðra forrita sem að skipuleggja ofbeldi um alla Evrópu.

Á einu ári:

🔹 280 handtökur
🔹 6 high-value eftirlýstir einstaklingar handsamaðir
🔹 Yfir 14.000 reikningar auðkenndir

Nú hefur verið birt vefsíða með eftirlýstum einstaklingum, sjá slóð í athugasemdum👇

As the Operational Taskforce (OTF) GRIMM marks its first year of activity, high-value targets linked to ongoing investigations are being published on the EU Most Wanted website. The publication aims to intensify efforts to locate and arrest some of the most dangerous fugitives involved in violence-a...

Guðmund­ur Ásgeirs­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn og Hlyn­ur Gísla­son, lög­reglu­full­trúi hjá mennta‑ og starfsþró­...
24/04/2026

Guðmund­ur Ásgeirs­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn og Hlyn­ur Gísla­son, lög­reglu­full­trúi hjá mennta‑ og starfsþró­un­ar­setri ríkislögreglustjóra, ræddu þjálfun lögreglumanna, m.a. í tengslum við forgangsakstur í Dagmálum í vikunni.

🚓👇

Aðgerðir lögreglu í návígi við almenning eru viðfangsefni Dagmála. Guðmundur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Hlynur Gíslason, lögreglufulltrúi hjá mennta‑ og starfsþróunarsetri lögreglu, útskýrðu m.a. hvernig lögreglumönnum er kennt að vinna á vettvangi og hva...

Halla Bergþóra ræddi við blaðamann Morgunblaðsins um nýja starfið í gær👇
21/04/2026

Halla Bergþóra ræddi við blaðamann Morgunblaðsins um nýja starfið í gær

👇

Halla Bergþóra Björnsdóttir hóf í gær störf sem ríkislögreglustjóri eftir að hafa verið skipuð í stöðuna til næstu fimm ára af dómsmálaráðherra. Hún tekur við starfinu af Sigríði Björk Guðjónsdóttur en áður gegndi Halla Bergþóra stöðu lögreglustjóra höfuðborg...

Halla Bergþóra Björnsdóttir hefur tekið við starfi ríkislögreglustjóra. Kristín Alda Jónsdóttir, yfirlögfræðingur og sta...
20/04/2026

Halla Bergþóra Björnsdóttir hefur tekið við starfi ríkislögreglustjóra. Kristín Alda Jónsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill ríkislögreglustjóra, tók á móti henni á þessum fallega degi.

Embættið býður Höllu Bergþóru velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins.

🔗👇

Sérhópar sérsveitar ríkislögreglustjóra fengu að vera með æfingadag í gamla kísilverinu í Helguvík síðustu viku en nú st...
15/04/2026

Sérhópar sérsveitar ríkislögreglustjóra fengu að vera með æfingadag í gamla kísilverinu í Helguvík síðustu viku en nú stendur yfir niðurrif á því.

Hóparnir sem tóku þátt sérhæfa sig meðal annars í bráðahjálp, sigi og klifri, auk gas- og roftækni. Á æfingunni var unnt að skapa krefjandi og raunhæfar vinnuaðstæður sem reyndu verulega á þekkingu og færni sérsveitarmanna.

Sérsveitin þakkar forsvarsmönnun kísilversins kærlega fyrir lánið á aðstöðunni.

Tölfræði yfir starfsemi heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung hefur verið birt á vef ...
15/04/2026

Tölfræði yfir starfsemi heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung hefur verið birt á vef lögreglu.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 fylgdi heimferða- og fylgdadeild (HOF) alls 91 einstaklingum brott af landinu, þar af voru 43 mál vegna ólögmætrar dvalar og 25 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals.

🔗👇

Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 fylgdi heimferða- og fylgdadeild (HOF) alls 91 einstaklingum brott af landinu, þar af voru 43 mál vegna ólögmætrar dvalar og 25 vegna sakaferils, fangaflutnings eða framsals.

Address

Rauðarárstígur 25
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ríkislögreglustjóri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Ríkislögreglustjóri:

Share