Alþingi

Alþingi Samfélagsmiðlum Alþingis er haldið úti af samfélagsmiðlateymi skrifstofu Alþingis. Allt efni sem sett er inn af öðrum er á ábyrgð viðkomandi einstaklings.

https://www.althingi.is/um-althingi/upplysingar-um-althingi/althingi-a-samfelagsmidlum/ Við fögnum allri málefnalegri umræðu á Facebook-síðu Alþingis en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Hér gilda líka almennar notendareglur Facebook, sjá www.facebook.com/terms.php?ref=pf

Allt efni sem sett er inn af öðrum en skrifstofu Alþi

ngis er á ábyrgð viðkomandi einstaklings. Formleg erindi og fyrirspurnir sem notendur síðunnar vilja beina til Alþingis skal senda á netfangið [email protected]. https://www.althingi.is/um-althingi/upplysingar-um-althingi/althingi-a-samfelagsmidlum/

Fylgist með okkur annars staðar á vefnum:

www.althingi.is
www.ungmennavefur.is
www.skolathing.is
www.althingistidindi.is

Það hefur verið nóg að gera í þingstörfunum síðustu vikur. Þingfundir hafa verið haldnir daglega síðan þing kom aftur sa...
12/06/2026

Það hefur verið nóg að gera í þingstörfunum síðustu vikur. Þingfundir hafa verið haldnir daglega síðan þing kom aftur saman eftir hlé vegna sveitarstjórnarkosninga. Ýmis lög hafa verið samþykkt á þessum tíma.

Dæmi um lög sem hafa verið samþykkt eru sameining Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum, sóttvarnarlög, lög um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun og jafnlaunavottun hefur verið lögð niður.

Þar sem starfsáætlun þingsins hefur verið felld úr gildi má gera ráð fyrir þingfundum eftir helgi. Þjóðhátíðardagurinn verður þó á sínum stað og vonandi verður sól og blíða þegar við komum saman um landið allt til að fagna deginum.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða í dag um kl. 10:30.
11/06/2026

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða í dag um kl. 10:30.

Svipmyndir af ræðumönnum kvöldsins.
10/06/2026

Svipmyndir af ræðumönnum kvöldsins.

Í kvöld verða eldhúsdagsumræður.
10/06/2026

Í kvöld verða eldhúsdagsumræður.

Ingveldur Anna Sigurðardóttir tekur sæti á Alþingi 9. júní í stað Vilhjálms Árnasonar sem hefur afsalað sér þingmennsku....
09/06/2026

Ingveldur Anna Sigurðardóttir tekur sæti á Alþingi 9. júní í stað Vilhjálms Árnasonar sem hefur afsalað sér þingmennsku. Ingveldur Anna verður 8. þingmaður Suðurkjördæmis.

Þjóðarblóm Álandseyja er sifjarlykill. Á tímum þegar harðir vetur réðu ríkjum var koma hans merki um að betri dagar væru...
09/06/2026

Þjóðarblóm Álandseyja er sifjarlykill. Á tímum þegar harðir vetur réðu ríkjum var koma hans merki um að betri dagar væru framundan. Sem eitt fyrsta vorblómið gegnir hann
lykilhlutverki í vistkerfinu. Hann styður líffræðilegan fjölbreytileika með því að vera mikilvæg fæðuuppspretta fyrir skordýr sem eru að vakna úr vetrardvala.

Sifjarlykillinn á sér djúpar rætur í menningarsögu og þjóðtrú Norðurlanda. Blómið er tákn um von og nýtt upphaf og búnt af sifjarlyklum var algengur lukkugripur. Rætur og blöð blómsins hafa einnig verið notuð í ýmsum lækningum.

Þing Álandseyja kom fyrst saman þann 9. júní árið 1922 og er deginum því fagnað sem sjálfsstjórnardegi. Eyjarnar tilheyra Finnlandi en þar er mestmegnis töluð sænska.

Nemendur í 4.-7. bekk Klébergsskóla heimsóttu Alþingi í dag. Þau fengu fræðslu um Alþingi í Smiðju ásamt því að skoða fo...
08/06/2026

Nemendur í 4.-7. bekk Klébergsskóla heimsóttu Alþingi í dag. Þau fengu fræðslu um Alþingi í Smiðju ásamt því að skoða fornminjarnar sem eru þar til sýnis. Þetta var síðasti grunnskólahópur vorsins en nú styttist í skólaslit.

Frá páskum hafa rúmlega þúsund grunnskólanemendur fengið fræðslu um störf og hlutverk Alþingis.

Starfi fræðsluteymisins er hvergi nærri lokið. Enn eiga nokkrir hópar eftir að koma í heimsókn yfir sumarið, ýmist frá erlendum háskólum eða alþjóðlegum stofnunum. Einnig er von á nokkrum leikskólahópum.

Hvert er þjóðarblóm Svíþjóðar?Um áraraðir sátu Svíar á rökstólum um hvert þjóðarblóm Svíþjóðar ætti að vera en komust al...
06/06/2026

Hvert er þjóðarblóm Svíþjóðar?

Um áraraðir sátu Svíar á rökstólum um hvert þjóðarblóm Svíþjóðar ætti að vera en komust aldrei að niðurstöðu. Árið 2021 fengu öll aðildarfélög sænska grasafræðingafélagsins að skila inn tillögum að þjóðarblómi. Niðurstaðan var sú að bláklukka var kosin þjóðarblóm Svíþjóðar.

Bláklukka, sem á sænsku kallast liten blåklocka, er sögð, með viðkvæmri fegurð sinni og hæfni til að þrífast í mismunandi umhverfi, vera áminning um hinn ríka líffræðilega fjölbreytileika og sterk tengsl manns og náttúru í Svíþjóð.

Svíar fagna þjóðhátíðardegi sínum í dag. Gústaf I. var kjörinn konungur og Svíþjóð lýst sjálfstætt þjóðríki þann 6. júní árið 1523. Einnig er fagnað gildistöku nýrrar stjórnarskrár árin 1809 og 1974.

Utanríkisráðherra Austurríkis, Beate Meinl-Reisinger, heimsótti Alþingi í dag ásamt sendinefnd þar sem forseti Alþingis,...
05/06/2026

Utanríkisráðherra Austurríkis, Beate Meinl-Reisinger, heimsótti Alþingi í dag ásamt sendinefnd þar sem forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, tók á móti ráðherranum til fundar. Bauð forseti ráðherrann velkominn og óskaði til hamingju með kosningu Austurríkis í öryggisráð allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.

Ræddu þær meðal annars samskipti landanna og þjóðþinganna, stjórnmál og þjóðmál í löndunum tveimur og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna Íslands að Evrópusambandinu. Fram kom í máli ráðherrans að Austurríki hefur sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og leggur áherslu á að auka hlut endurnýjanlegrar orku, þar á meðal jarðhita.

Þá færði utanríkisráðherrann Alþingi að gjöf eftirprentun veggspjalds frá árinu 1930, þegar sett var upp sýning í Vínarborg í tilefni af 1.000 ára afmæli Alþingis.

Address

Kirkjustræti
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alþingi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share