Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Slökkvilið Fjarðabyggðar, Fire station, Hraun 2, Reyðarfjörður.

Slökkvilið Fjarðabyggðar sinnir slökkvistarfi og sjúkraflutningum í Fjarðabyggð auk sjúkraflutninga á Djúpavogi auk þess að sinna mengunaróhöppum, vatnslekum og mörgu fleira. Slökkvistöðin á Hrauni er með mannaða stöð allan sólarhringinn og er hún með samþætt starf slökkviliðs og sjúkraflutninga fyrir Reyðarfjörð og Eskifjörð. Í öðrum byggðarkjörnum eru slökkvistörf og sjúkraflutningar aðskildir. Á Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík er hlutastarfandi lið sem manna slökkviliðin og í álveri ALCOA er viðbragðshópur þjálfaðra slökkviliðsmanna undir stjórn og á ábyrgð Slökkviliðs Fjarðabyggðar okkur til aðstoðar í verkefnum í álverinu. Á Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi er Slökkvilið Fjarðabyggðar með hlutastarfandi sjúkraflutningamenn á bakvöktum.

🚑 Sjúkraflutningar í ágúst voru 91, þar af voru 33 á forgangi.🚒 Slökkviliðsbílarnir sinntu 11 verkefnum, þar af 3 á forg...
01/09/2026

🚑 Sjúkraflutningar í ágúst voru 91, þar af voru 33 á forgangi.
🚒 Slökkviliðsbílarnir sinntu 11 verkefnum, þar af 3 á forgangi.

Seinnipartinn í gær barst okkur F2 útkall vegna bílveltu, rétt innan við Eyri í sunnanverðum Fáskrúðsfirði. Í fyrstu var...
31/08/2026

Seinnipartinn í gær barst okkur F2 útkall vegna bílveltu, rétt innan við Eyri í sunnanverðum Fáskrúðsfirði.
Í fyrstu var staðsetning og fjöldi slasaðra nokkuð óljós og fóru 2 sjúkrabílar frá tveimur stöðvum, auk bakvaktar stjórnanda á vettvang. Tækjabíll fór einnig af stað en var afturkallaður þegar ljóst var að ekki væri þörf á honum.
Fjórir einstaklingar voru í bílnum sem fór amk tvær veltur og var þjóðvegurinn lokaður um stund til þess að tryggja öryggi við vinnu á vettvangi.
Tveir voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsið í Neskaupstað. Hinir farþegarnir sluppu án teljandi meiðsla og fóru til skoðunar hjá lækni.

Þetta er annað útkallið sem Slökkvilið Fjarðabyggðar sinnir vegna umferðaslysa á Suðurfjarðavegi á sl. 2 vikum.

Búnaðarprófun á hjartastuðtækinu okkar.
24/08/2026

Búnaðarprófun á hjartastuðtækinu okkar.

Æft á vaktinni.
19/08/2026

Æft á vaktinni.

Vatnsöflun æfð í góðu veðri.
14/08/2026

Vatnsöflun æfð í góðu veðri.

Vikulega er ýtarleg yfirferð á hverjum bíl fyrir sig.
09/08/2026

Vikulega er ýtarleg yfirferð á hverjum bíl fyrir sig.

05/08/2026

Að æfingu lokinni.

🚑 Sjúkraflutningar í júlí voru 98, þar af voru 29 á forgangi.🚒 Slökkviliðsútköll voru 8, þar af 2 á forgangi.Við vonum a...
01/08/2026

🚑 Sjúkraflutningar í júlí voru 98, þar af voru 29 á forgangi.
🚒 Slökkviliðsútköll voru 8, þar af 2 á forgangi.

Við vonum að allir skemmti sér vel og slysalaust um verslunarmannahelgina!

📸 Myndirnar eru frá því að nokkrir starfsmanna okkar fóru á Interschutz í Hanover í júní, en það er stærsta sýning heims, sem haldin er á 4 ára fresti - þar sem sýnt er allt það nýjasta fyrir slökkvilið, sjúkraflutninga, almannavarnir, björgunarsveitir oflr. Auk þess sem keppt er í hinum ýmsu slökkviliðstengdu greinum. Virkilega áhugaverð og lærdómsrík ferð :)

Brasað með stiga og reykköfun.
29/07/2026

Brasað með stiga og reykköfun.

Address

Hraun 2
Reyðarfjörður
731

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið Fjarðabyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share