11/06/2026
17. júní á Suðurnesjum - skemmtun fyrir alla fjölskylduna! 🇮🇸
Þjóðhátíðardeginum verður fagnað víða á Suðurnesjum miðvikudaginn 17. júní og hvetjum við íbúa og gesti til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Við fórum aðeins yfir útgefna dagskrá sveitarfélaganna og settum saman:
📍 Reykjanesbær
• Kl. 12:00 hefst hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju.
• Kl. 13:00 leggur skrúðganga af stað frá kirkjunni.
• Hátíðardagskrá í Skrúðgarðinum frá kl. 13:20.
• Fjölskylduskemmtun frá kl. 14:00-16:00 með tónlist, sirkusatriðum, hoppuköstulum, andlitsmálningu, hestateymingu og fleiru.
• Ungmennadagskrá við 88 húsið frá kl. 18:00-20:00.
📍 Suðurnesjabær
• Hátíðardagskrá hefst kl. 12:00 við Gerðaskóla.
• Boðið verður upp á fjölbreytta skemmtun, sýningar, hoppukastala, andlitsmálningu, hesta, barnalest og ýmsa fjölskylduafþreyingu.
📍 Sveitarfélagið Vogar
• Fjölskylduhátíð við Stóru-Vogaskóla frá kl. 14:00-16:00.
• Á dagskrá verða m.a. hátíðardagskrá í Tjarnarsal, hoppukastalar og afþreying fyrir börn og fjölskyldur.
🚓 Við minnum vegfarendur á að búast má við aukinni umferð og tímabundnum lokunum vegna skrúðgöngu og hátíðarhalda. Sýnum tillitssemi í umferðinni og njótum dagsins saman.
Við minnum jafnframt á að flagga íslenska fánanum í tilefni þjóðhátíðardagsins þar sem því verður við komið.
Gleðilega þjóðhátíð! 🇮🇸