HS Veitur

HS Veitur Við færum þér þægindin heim !

Samband frá skiptiborði við allar deildir mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 8:15 til 16:00 og föstudaga frá klukkan 8:15 til 13:00
í síma 422-5200. Skrifstofa er að Brekkustíg 36 Reykjanesbæ

Starfsstöð Tangagötu 1 Vestmannaeyjum

Starfsstöð Selhellu 8 Hafnarfirði

Starfsstöð Eyravegi 53 Árborg

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. septemberVið höldum áfram að endurnýja og styrkja hitaveitukerfið ...
03/09/2026

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september

Við höldum áfram að endurnýja og styrkja hitaveitukerfið okkar til framtíðar. Vegna viðamikilla framkvæmda verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september.

🔹 Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabær
Lokað frá kl. 04:00 | Áætluð tímalengd 12–24 klst.

🔹 Innri-Njarðvík, Ásbrú, Keflavíkurflugvöllur og Vogar
Lokað frá kl. 08:00 | Áætluð tímalengd 5–7 klst.

Við vitum að lokun á heitu vatni hefur áhrif á daglegt líf og hvetjum því viðskiptavini til að gera ráðstafanir með góðum fyrirvara.

💧 Nánari upplýsingar, kort og áætlaða tímalínu fyrir hvert svæði má nálgast í tilkynningu okkar. Hlekkur er í fyrstu athugasemd.

Reykjanesbær Suðurnesjabær Sveitarfélagið Vogar

Heitavatnslaust á afmörkuðu svæði í Vestmannaeyjum 🔧Vegna umfangsmikillar viðgerðar á stofnlögn verður heitavatnslaust á...
31/08/2026

Heitavatnslaust á afmörkuðu svæði í Vestmannaeyjum 🔧

Vegna umfangsmikillar viðgerðar á stofnlögn verður heitavatnslaust á afmörkuðu svæði í Vestmannaeyjum 📣 þriðjudaginn 1. september. Svæðið sem lokunin nær til má sjá á meðfylgjandi korti.

Aðgerðin hefst um kl. 6 að morgni og gert er ráð fyrir að lokað verði fyrir heita vatnið á milli kl. 7 og 8.

Um er að ræða viðamikið verkefni og áætlað er að aðgerðin taki um 12 klukkustundir í heild. Ef allt gengur samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir að heitt vatn fari að berast aftur í kringum kvöldmatarleytið. Búast þarf þó við að framkvæmdir geti dregist fram á kvöld.

Við biðjum viðskiptavini á svæðinu að gera ráðstafanir vegna lokunarinnar 🩵

Athugið 👉 Það getur tekið tíma fyrir fullan þrýsting og hita að komast aftur á kerfið eftir að vatni hefur verið hleypt á.

👷Starfsfólk okkar mun vinna að viðgerðinni eins hratt og örugglega og kostur er.

Við þökkum íbúum fyrir þolinmæðina og skilninginn á meðan vinnu stendur 💙

Vestmannaeyjabær

25/08/2026

Kæru viðskiptavinir í Grindavíkurbær - Góður Bær 📣

Hér má nálgast upplýsingar í tengslum við bilun hjá Landsnet sem veldur rafmagnsleysi sem stendur nú yfir á öllum bænum.

Kæru viðskiptavinir á Suðurnesjum,Uppfært. kl. 05:35👉Rafmagn er komið á Grindavík og sjá ljósavélar Landsnets nú um rafo...
25/08/2026

Kæru viðskiptavinir á Suðurnesjum,

Uppfært. kl. 05:35

👉Rafmagn er komið á Grindavík og sjá ljósavélar Landsnets nú um raforkuframleiðslu fyrir dreifikerfi HS Veitna í Grindavík.

Uppært kl. 03:34

👉Rafmagn fór aftur af Grindavík og unnið er að því að tengja ljósavélar Landsnets við dreifikerfi HS Veitna í Grindavík.

Upfært kl. 02:43

👉 Komið er rafmagn aftur á Grindavík frá Svartsengi.

Uppfært kl. 00.40

👉 Búið var að koma rafmagni á Grindavík aftur en rétt í þessu kom aftur upp bilun hjá Landsnet í Svartsengi og því rafmagnslaust í Grindavik sem stendur.

Bendum við á að fylgjast með tilkynningum á miðlum hjá Landsnet varðandi stöðuuppfærslur þessu tengdu.

👉 Dælustöð fyrir heitt vatn á Suðurnesjum sló út vegna þessa og varð í kjölfarið heitavatns laust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og í Vogum. Búið er að bregðast við því og búist við að heitt vatn fari aftur að berast innan skamms.

Uppfært kl. 18

👉það varð aftur útsláttur á dælustöð fyrir heita vatnið á fitjum og varð heitavatns laust á öllum Suðurnesjunum í kjölfarið. Búið er að bregðast við því og bindum við vonir við að allir fái heitt vatn aftur innan skamms. Þetta á við um Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga.

👉Í Grindavíkurbær - Góður Bær er bæði rafmagnslaust og heitavatns laust sem stendur. Unnið er að því í góðu samstarfi með Landsnet og HS Orka að bregðast við því og verður þessi póstur uppfærður þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

❗️📣

Við viljum vekja athygli á eftirfarandi tilkynningu frá Landsnet um bilun í svartsengi.

Vegna þessa er rafmagnslaust hjá öllum okkar viðskiptavinum í Grindavíkurbær - Góður Bær og um stund varð heitavatnslaust á Suðurnesjum þar sem dælustöð fyrir heita vatnið á fitjum sló út.

Búið er að bregðast við því og búist við að þrýstingur verði orðinn eðlilegur innan skamms í hitaveitunni. Um er að ræða heitt vatn fyrir Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar.

Rafmagnslaust er á stórum hluta í Grindavík. Uppfært kl. 16:30 👉 stór hluti bæjarins er komin með rafmagn aftur. Bilun e...
21/08/2026

Rafmagnslaust er á stórum hluta í Grindavík.

Uppfært kl. 16:30 👉 stór hluti bæjarins er komin með rafmagn aftur. Bilun er í Þórkötlustaðarhverfi og er nú unnið að frekari bilanagreiningu.

Þessi póstur verður uppfærður þegar frekari upplýsingar liggja fyrir 🩵

24/07/2026

Uppfært kl. 19.50 - rafmagn komið á aftur hjá viðskiptavinum í Vogum. Búið er að staðsetja bilun og undirbúningur hafinn fyrir viðgerð.

Rafmagnslaust er á stórum hluta af Vogum. Unnið er að bilanaleit.

Þessi póstur verður uppfærður 🩵

🩵 Mikilvægustu innviðirnir eru oft þeir sem sjást minnstUndir götum og gangstéttum liggja innviðir sem færa heimilum og ...
23/07/2026

🩵 Mikilvægustu innviðirnir eru oft þeir sem sjást minnst

Undir götum og gangstéttum liggja innviðir sem færa heimilum og fyrirtækjum rafmagn ⚡, heitt vatn ♨️ og kalt vatn 💧 alla daga ársins.

HS Veitur þjóna um fjórðungi landsmanna og hafa í meira en 120 ár byggt upp og rekið þessi mikilvægu veitukerfi. Til að tryggja áfram örugga og áreiðanlega þjónustu þurfum við reglulega að endurnýja hluta þeirra.

Þess vegna sjáið þið okkur stundum að störfum í rótgrónum íbúðahverfum. Slíkar framkvæmdir geta valdið tímabundnu raski og stundum þarf að loka fyrir heitt eða kalt vatn, eða taka rafmagnið af í stutta stund á meðan unnið er.

Við vitum að það getur verið óþægilegt og reynum ávallt að halda raski í lágmarki.

🦺 Á meðan framkvæmdum stendur er öryggi íbúa, starfsfólks, verktaka og vegfarenda alltaf í fyrirrúmi. Við biðjum því alla að virða merkingar og fara varlega í kringum framkvæmdasvæðin svo allir komist heilir heim í lok dags.

Í sumar er starfsfólk HS Veitna, í samstarfi við sveitarfélög og verktaka, að vinna að endurnýjun innviða víðs vegar um þjónustusvæðið okkar.

🙏 Takk fyrir þolinmæðina, skilninginn og samstarfið.

Endurnýjun innviða er mikilvæg til að mæta þörfum samfélagsins til framtíðar🩵Við þökkum fyrir sýndan skilning og þolinmæ...
17/07/2026

Endurnýjun innviða er mikilvæg til að mæta þörfum samfélagsins til framtíðar🩵

Við þökkum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.

🚧Framkvæmdir við Borgarveg🚧

Vegna veituframkvæmda á vegum Fráveitu Reykjanesbæjar og HS Veitna verður Borgarvegur lokaður milli Klapparstígs og Brekkustígs á tímabilinu 15. júlí til 30.ágúst.

⚠️ Við hvetjum íbúa og vegfarendur til að kynna sér nánari upplýsingar um framkvæmdirnar á vef Reykjanesbæjar 👉 https://rnb.is/veituframkvaemdir-vid-borgarveg

Við þökkum fyrir sýndan skilning og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda💚

02/07/2026

Uppfært kl. 20.30: kalt vatn komið á aftur hjá öllum viðskiptavinum og ætti að vera komið jafnvægi á veitukerfið innan skamms.

Kaldavatnslaust er á Ásbrú í Reykjanesbæ og við Keflavíkurflugvöll sem stendur.

Unnið er að bilanaleit.

Við þökkum fyrir skilninginn 🩵

Þessi póstur verður uppfærður.

🔧 Endurnýjun dreifikerfis við Faxabraut í KeflavíkHS Veitur hefja framkvæmdir við endurnýjun dreifikerfis rafmagns, vatn...
05/06/2026

🔧 Endurnýjun dreifikerfis við Faxabraut í Keflavík

HS Veitur hefja framkvæmdir við endurnýjun dreifikerfis rafmagns, vatns og hitaveitu við Faxabraut þann 11. júní. Markmið verkefnisins er að auka afhendingaröryggi og styrkja innviði svæðisins til framtíðar. ⚡💧♨️

Framkvæmdir standa fram í desember 2026 og verða unnar í þremur til fjórum áföngum eftir tíðarfari.

🚧 Á framkvæmdatíma má búast við tímabundnum óþægindum fyrir íbúa og vegfarendur. Aðgengi að innkeyrslum og gangstéttum við Faxabraut, Krossholt og Þverholt verður skert á köflum, en lögð verður áhersla á að halda aðgengi að fasteignum eins og kostur er.

Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir þolinmæði og skilning meðan á framkvæmdum stendur.

📍 Nánari upplýsingar:
https://www.hsveitur.is/framkvaemdir/framkvaemdafrettir/keflavik-endurnyjun-a-dreifikerfi-vid-faxabraut-sumarid-2026/

Reykjanesbær

Address

Brekkustígur 36
Njarðvík
260

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 14:00

Telephone

+3544225200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HS Veitur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share