07/09/2026
BÓK MÁNAÐARSINS - Trönurnar fljúga suður
Lisa Ridzén sendir frá sér djúpstæða og einlæga skáldsögu, um ellina, föðurhlutverkið og samskipti kynslóðanna, sem var valin bók ársins í Svíþjóð árið 2024 og hefur síðan farið sigurför um heiminn, hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og setið mánuðum saman í efstu sætum metsölulista.
Bo finnur að líf hans er að fjara út. Líkami hans er að gefa sig. Hendur hans verða brátt of máttlitlar til að opna boxið dýrmæta með sjali eiginkonu hans. Sem betur fer hefur hann ennþá tryggan félaga sinn, hundinn Sixten, sér við hlið – en nú krefst sonur hans þess að hann láti hundinn fara.
Kröfur sonarins fá Bo til að horfa til baka og hugsa um eigið líf, hlutverk sitt sem faðir og hvernig hann hefur sýnt tilfinningar sínar og ást í gegnum tíðina.
Þú verður sannarlega ekki svikin af þessari einlægu bók sem var að koma á bókasafnið okkar. Fyrstur kemur, fyrstur fær!