Framsókn í Reykjanesbæ

Framsókn í Reykjanesbæ Framsókn í Reykjanesbæ er öflugt stjórnmálaafl sem berst fyrir hagsmunum íbúa Reykjanesbæjar

Þér er boðið á opinn fund um ESB og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun kl.20.00 í sal félagsins að Hafnargötu 62 í R...
24/08/2026

Þér er boðið á opinn fund um ESB og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun kl.20.00 í sal félagsins að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ. Sjáumst þá!

Félagsfundur kl.19.30 annað kvöld í Framsóknarsalnum.
27/05/2026

Félagsfundur kl.19.30 annað kvöld í Framsóknarsalnum.

Set hér inn uppfærða grein mína frá því í gær kæru vinir: Sögulegar kosningar Framsóknar í Reykjanesbæ – við munum aldei...
18/05/2026

Set hér inn uppfærða grein mína frá því í gær kæru vinir:

Sögulegar kosningar Framsóknar í Reykjanesbæ – við munum aldei gleyma!

Eftir kosningahelgina er vert að skoða niðurstöðu Framsóknar í ljósi sögunnar.
Árið 2018 fékk Framsókn í Reykjanesbæ 883 atkvæði eða 13.9% og tvo menn kjörna.
Í kjölfarið settist flokkurinn í meirihluta í Reykjanesbæ. Þetta heyrði til tíðinda enda hafði flokkurinn lengi aðeins átt einn mann í bæjarstjórn. Fjórum àrum seinna hlaut Framsókn 1536 atkvæði eða tæp 23% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa sem hafði ekki gerst í àratugi og aldrei í sögu Reykjanesbæjar.

Fyrir nýafstaðnar kosningar var ákveðið að halda rafrænt prófkjör í Framsókn í Reykjanesbæ. Það tókst mjög vel. Ekki hafði verið haldið rafrænt prófkjör áður og tóku 67% félagsmanna þátt. Í kosningunum nú 16. maí var enn eitt metið sett þar sem flokkurinn fékk 2254 atkvæði eða rúmlega 26% og hélt sínum þremur bæjarfulltrúum. Næsti maður inn var fjórði fulltrúi Framsóknar. Einn af hverjum fjórum kjósendum treysti Framsókn best til að vera í forystu fyrir fjórða stærsta sveitarfélag landsins.

Það sem vekur athygli er að Framsókn hefur verið í meirihluta undanfarin átta àr og því eru skilaboð kjósenda skýr. Ànægjan með störf okkar hefur farið vaxandi. Hvort sem hlutskipti Framsóknar verður í meirihluta eða minnihluta þá er þessi àrangur byggður upp af fólkinu í flokknum. Ykkur sem myndið grasrót flokksins í bæjarfélaginu. Ykkur sem vinnið saman af heilindum fyrir samfélagið sem við búum í.

Kosningabaráttan að þessu sinni var bæði afskaplega skemmtileg, krefjandi og eftirminnileg. Ég sem formaður Framsóknarfélagsins er óendanlega stoltur af frambjóðendum okkar og samvinnu við félagamenn á undanförnum mànuðum.
Sem fyrr trúi ég því að okkar bestu tímar séu framundan.

Bestu þakkir fá frambjóðendur og allir þeir sem stóðu vaktina með okkur. Takk fyrir að leggja líf ykkar og sàl í að gera samfélagið okkar betra.

Skilaboð mín til kjósenda Framsóknar eru skýr. Takk fyrir stuðninginn. Þið veitið okkur valdið til að vinna að mikilvægum og þörfum verkefnum, samfélaginu okkar til heilla. En hafið það alveg á hreinu. Framsókn mun standa vaktina. Framsókn mun aldrei sofna á verðinum. Framsókn stendur með bæjarbúum og við munum hvergi kvika í hagsmunagæslu okkar fyrir samfélagið Í Reykjanesbæ. Við munum aldrei gleyma því fyrir hverja við störfum.

Jóhann Friðrik, formaður Framsóknarfélags Reykjanesbæjar og varaþingmaður.

16/05/2026

Svona á að koma sterkur inn í upptökur á kosningamyndbandi! Setjum X við B á kjördaginn!

15/05/2026

Núna er tíminn - XB, fyrir þig og framtíð Reykjanesbæjar

"Nú þegar stutt er til kosninga vil ég því gefa þér mitt loforð kæri kjósandi. Hvorki ég né Framsókn í Reykjanesbæ styðj...
15/05/2026

"Nú þegar stutt er til kosninga vil ég því gefa þér mitt loforð kæri kjósandi. Hvorki ég né Framsókn í Reykjanesbæ styðjum þessar áætlanir og þær munu ekki ná fram að ganga á okkar vakt nema að undangenginni íbúakosningu. Við virðumst vera ein á þessari skoðun. Hugleiddu það þegar þú ferð að kjósa á morgun."

Lesa meira: https://www.vf.is/adsent/engin-haelisleitendamidstod-an-samthykkis-ibua

15/05/2026

XB - Meiriháttar sending

15/05/2026

Halldóra Fríða -Barnafjölskyldur og samræmd lóðarleiga - XB

"Eflum úrræði skammtímavistunar, úrræði sem mikil þörf er á fyrir börn og foreldra langveikra barna sem og frístundaúrræ...
15/05/2026

"Eflum úrræði skammtímavistunar, úrræði sem mikil þörf er á fyrir börn og foreldra langveikra barna sem og frístundaúrræði fyrir fötluð börn á yngsta stigi grunnskóla bæði eftir skólatíma og yfir sumartímann".

Lesa meira: https://www.vf.is/adsent/ekkert-barn-ma-detta-a-milli-kerfa

14/05/2026

Alvöru Framsóknarpartý kvöldið fyrir kosningar kemur öllum í réttu stemninguna. Komið við og njótið með okkur. Lifandi tónlist, veigar í fljótandi formi og gleðin við völd. Sjáumst á föstudaginn! ✅💚

Address

Hafnargata 62
Njarðvík
230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Framsókn í Reykjanesbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share