14/03/2026
Þessa dagana standa yfir úttektaræfingar Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Oddsskarði. Alls eru 17 leitarhundar sem taka þátt í æfingum og úttektum ásamt eigendum og þjálfurum sínum. Einnig eru tveir erlendir dómarar og þjálfarar sem að koma sérstaklega til landsins í þessa úttekt auk innlendra dómara frá félaginu. Að auki er fjöldinn allur af aðstoðarfólki frá Björgunarsveitinni og unglingadeildunum frá Gerpir og Brimrúnu sem að aðstoða.
Leitarhundar og þjálfarar þeirra þurfa að standast ákveðin viðmið í snjóflóðaleit til að geta flokkast sem snjóflóðaleitarhundur og er þetta liður í því.
Það eru þrjú prófsvæði og er svæðunum skipt eftir getu hundanna, A-B-C. Þetta fer þannig fram að líkt er eftir snjóflóði og sjálfboðaliðar eru grafnir í snjó (snjóhús), og þar á eftir er kallað í viðkomandi hundateymi og ath hvernig það stendur sig í að finna þá gröfnu.
Snjóflóðaleitarhundar eru mikilvægar bjargir í snjóflóðaleit og mikill fengur í að hafa aðgang að slíku á okkar svæði. Alls eru þrír snjóflóðaleitarhundar á Austfjörðum.