28/05/2026
Nú fóru skrímslin á stjá í síðustu barnagetraun fyrir sumarfrí! 👾
Það var Fróði Franklin, 8 ára, sem reyndist vera sannkallaður skrímslasérfræðingur og svaraði öllum spurningunum rétt.
Við óskum honum innilega til hamingju og hlökkum til að sjá hann aftur í safninu😊
Við minnum á að nú hefur sumarlesturinn hafið göngu sína og Gúndi geithafur þarf aldeilis hjálp við grasleitina miklu 🐐 Það er því tilvalið að kíkja við í safninu, sækja sér vegabréf og leggja af stað í meeeeergjað lestrarævintýri með Gúnda 🌞