19/05/2026
ÞRÓUNIN Á MILLI KOSNINGA Í MOSFELLSBÆ 2022 OG 2026
Um leið og framboðum til bæjarstjórnar er þökkuð drengileg barátta er áhugavert að velta við steinum og líta undir hvar þar er að finna. Ljóst er að framtíð næstu fjögurra ára er í húfi og til mikils að vinna fyrir bæjarbúa fái þeir þá stjórn sem kallað er eftir.
Hvað voru Mosfellingar að biðja um í síðustu kosningum? Sé borið saman hlutfallslegt fylgi flokka árið 2022 og 2026 og metið hve mikið það óx á milli kosninga kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn fór úr 27,3% fylgi árið 2022 í 42,2% fylgi nú í ár, 2026. Hlutfallslegt fylgið flokksins jókst því um 55% ([42,2%-27,3%]/27,3%=0,55, ergo 55% aukning). Þetta mælir hve hlutfallslegt fylgi flokksins jókst á milli kosninga.
Miðflokkurinn fór úr 4,9% árið 2022 í 7,4% nú í ár, 2026. Þetta er aukning á hlutfallslegu fylgi um 50%, þ.e. frá því sem áður var. Með sama hætti má benda á að Samfylkinging jók þetta aðeins um 22%, Viðreisn um aðeins 28% en Framsókn tapaði þessu niður um 35% sem og Vinir Mosfellsbæjar sem töpuðu þessu niður um 34%.
Svarið við spurningunni um hvað Mosfellingar eru að biðja um virðist því augljóst. Mosfellingar eru að kalla eftir breytingum í þessum kosningum. Sú vegferð í átt að breytingum liggur augljóslega ekki til vinstri. Fá Mosfellingar þessar breytingar fram við stjórn bæjarins næstu 4 árin?