15/04/2026
Góða kvöldið kæru íbúar og gestir þessarar síðu.
Mögulega hefur ekki farið framhjá neinum að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leyti, en þó ekki í okkar sveitafélagi. Lagður hefur verið fram listi okkar og engum öðrum lista var skilað. Því verða, samkvæmt kosningalögum, engar kosningar því miður. En það breytir ekki því að við munum kynna listann, frambjóðendur og stefnumál á sama hátt og ef kosningar færu fram. Því viljum við byrja á kynna betur þá aðila sem eru á þessum lista, fara yfir stefnumálin og í framhaldi langar okkur að bjóða til fundar með íbúum þar sem við getum tekið samtalið, samtal til að átta okkur á hvernig hægt er að gera góða sveit enn betri.
Viljum við kynna listann með réttri sætaröð, sem sýnir þá sem buðu sig fram til starfa fyrir ykkur - hann er skipaður eftirtöldum;
1. - Jóhanna Hreinsdóttir Káraneskoti, Bóndi og oddviti sveitarstjórnar
2. - Sigurþór Ingi Sigurðsson Borgarhóli, Rennismiður, fyrirtækjaeigandi og varaoddviti sveitarstjórnar
3. - Jón Þorgeir Sigurðsson Brekkukoti, Verkstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi
4. - Þóra Jónsdóttir Eyrum 1, Eilífsdal, Lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi
5. - Díana Þorsteinsdóttir Standgili, Forstöðumaður og vörustjóri
6. - Brynja Baldursdóttir Brúnstöðum, Sölu og rekstrarstjóri
7. - Andri Jónsson Eyjum II, Verkstjóri úrgangsmála
8. - Ólöf Ósk Guðmundsdóttir Miðdal, Bóndi og aðjunkt
9. - Elvar Gunnarsson Hlíð 16a Eilífsdal, Leikstjóri og handritshöfundur
10. - Sigurbjörn Hjaltason Kiðafelli, Bóndi