Brunavarnir Suðurnesja

Brunavarnir Suðurnesja Brunavarnir Suðurnesja sinna sjúkraflutningum, slökkviliðs- og björgunarstörfum ásamt mengunaróhöppum, vatnslekum og ýmsu öðru.

Ágústmánuður er að baki og var nóg um að vera hjá okkur, bæði í sjúkraflutningum og útköllum slökkviliðs. 🚑🚒Nú stendur L...
05/09/2026

Ágústmánuður er að baki og var nóg um að vera hjá okkur, bæði í sjúkraflutningum og útköllum slökkviliðs. 🚑🚒

Nú stendur Ljósanótt yfir og að venju erum við með viðbragðsvakt niðri í bæ, tilbúin að bregðast við ef þörf krefur.

Njótum hátíðarinnar saman, pössum upp á hvert annað og förum varlega. 🚒

Gleðilega Ljósanótt! 🎆

Á dögunum undirrituðu Lögreglan á Suðurnesjum, Brunavarnir Suðurnesja og GTS viljayfirlýsingu sem snýr að fólksflutningu...
02/09/2026

Á dögunum undirrituðu Lögreglan á Suðurnesjum, Brunavarnir Suðurnesja og GTS viljayfirlýsingu sem snýr að fólksflutningum við neyðaraðstæður.

Viljayfirlýsingin felur í sér að GTS geti lagt til rútu og aðstoðað við fólksflutninga þegar þörf er á að rýma stærri byggingar, til dæmis vegna eldsvoða eða annarra neyðaraðstæðna.

Við kunnum GTS miklar þakkir fyrir þetta mikilvæga framlag og góða samstarf, sem verður samfélaginu að kostnaðarlausu.

Fimm starfsmenn Brunavarna Suðurnesja tóku í dag þátt í umfangsmikilli viðbragðsæfingu á vegum Norður Víkings á Keflavík...
30/08/2026

Fimm starfsmenn Brunavarna Suðurnesja tóku í dag þátt í umfangsmikilli viðbragðsæfingu á vegum Norður Víkings á Keflavíkurflugvelli.

Í æfingunni var líkt eftir því að sprenging hefði orðið á Patterson-svæðinu með fjölda slasaðra. Æfð var meðal annars bráðaflokkun slasaðra, meðhöndlun og flutningur sjúklinga á söfnunarsvæði slasaðra, sem komið hafði verið upp í byggingu 831 á Keflavíkurflugvelli.

Æfingar sem þessar eru afar mikilvægar fyrir viðbragðsaðila. Þær efla samvinnu milli stofnana og gefa okkur tækifæri til að æfa verklag við umfangsmikla atburði þar sem reynir á samhæfingu, skjót viðbrögð og samstarf margra aðila.

Auk Brunavarna Suðurnesja tóku þátt í æfingunni:
• Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
• Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
• Landhelgisgæsla Íslands
• Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
• Landspítali
• Björgunarsveitin Suðurnes
• US Navy Medical Team

Slíkar æfingar eru mikilvægur þáttur í að undirbúa okkur fyrir fjölbreytt og krefjandi verkefni sem geta komið upp og tryggja að viðbragðsaðilar séu sem best í stakk búnir til að takast á við þau þegar á reynir. 🚒🚑

Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri og Rúnar Eyberg Árnason varðstjóri eru nú staðsettir í Glasgow í Skotlandi, þa...
20/08/2026

Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri og Rúnar Eyberg Árnason varðstjóri eru nú staðsettir í Glasgow í Skotlandi, þar sem þeir eru að taka á móti nýjum stigabíl Brunavarna Suðurnesja.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um tvö ár, en skrifað var undir samning um kaup á bílnum við Emergency One í nóvember 2024. Nú er verkefnið komið á lokametrana og áætlað er að nýi bíllinn komi til okkar í október.

Nýi bíllinn er Scania 460P, með yfirbyggingu frá Magirus/Emergency One, og er búinn 32 metra stiga.

🚒 Undirvagn: Scania 460P
🏗️ Yfirbygging: Magirus/Emergency One
🪜 Stigi: 32 metrar

Nýi stigabíllinn leysir af hólmi eldri körfubíl sem hefur þjónað Brunavörnum Suðurnesja frá árinu 2007. Sá bíll kom notaður til okkar frá Svíþjóð og er árgerð 1996. Hann hefur því þjónað okkur vel í tæpa tvo áratugi og á að baki enn lengri þjónustutíma.

Endurnýjunin er mikilvægur liður í að efla og styrkja tækjakost Brunavarna Suðurnesja. Nýi stigabíllinn mun auka viðbragðsgetu okkar, bæta öryggi og vinnuaðstöðu slökkviliðsmanna og gera okkur enn betur í stakk búin til að takast á við fjölbreytt verkefni við slökkvistörf og björgun.

Við hlökkum til að fá nýja bílinn heim til Suðurnesja og sýna ykkur hann betur þegar hann kemur í október! 🚒🔥

18/08/2026

Stífar æfingar halda áfram hjá köfunarhópnum okkar. Í gær hélt hópurinn í Bjarnagjá þar sem æft var af krafti. Meðfylgjandi myndband gefur smá innsýn í æfinguna 🌊🤿

Í september höldum við áfram að senda starfsmenn á atvinnukafaranámskeið og að þessu sinni verða þrír starfsmenn frá okk...
13/08/2026

Í september höldum við áfram að senda starfsmenn á atvinnukafaranámskeið og að þessu sinni verða þrír starfsmenn frá okkur sem hefja námið.

Undanfarið hafa staðið yfir markvissar æfingar og undirbúningur, þar sem meðal annars hefur farið fram kynning á búnaði og köfun æfð til að undirbúa hópinn sem best fyrir námið.

Hér má sjá myndir frá æfingu sem haldin var við Kleifarvatn síðastliðinn þriðjudag 🤿

Vekjum athygli á þessum breytingum sem verða á miðvikudaginn vegna Sólmyrkvans☀️🚒🚑🚓
10/08/2026

Vekjum athygli á þessum breytingum sem verða á miðvikudaginn vegna Sólmyrkvans☀️🚒🚑🚓

ALMYRKVI Á SÓLU – 12. ÁGÚST | MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu og búist er við miklum fjölda fólks á Reykjanesi.

🚔 Aukinn viðbúnaður
Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir, Brunavarnir Suðurnesja, Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verða með aukinn viðbúnað. Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir starfræktar.
🏠 Almyrkvinn sést vel úr þéttbýli
Það er ekki nauðsynlegt að fara langt til að njóta almyrkvans. Hann sést vel frá heimilum í þéttbýli á Reykjanesi.
Sveitarfélögin hafa komið upp safnstöðum á völdum stöðum. Upplýsingar um safnstaði, viðburði og bílastæði má finna á heimasíðum sveitarfélaganna og á visitreykjanes.is.
🚶‍♀️🚲 Við hvetjum fólk til að ganga eða hjóla á safnstaði innan þéttbýlis þar sem því verður við komið.
🚗 Ef þú ætlar að ferðast
• Farðu snemma af stað.
• Gerðu ráð fyrir miklum umferðartöfum og lengri ferðatíma.
• Vertu viðbúin/viðbúinn því að þurfa að dvelja lengur en áætlað var.
• Hafðu mat og drykk meðferðis.
• Ef þú þarft reglulega lyfjagjöf, hafðu næg lyf meðferðis.
⛔ EKKI leggja á vegum eða vegöxlum
Ökutæki sem lagt er þannig að það hindri umferð eða skapi hættu verður fjarlægt á kostnað eiganda.
🚧 Sérstakar umferðartakmarkanir
• Garðskagavegur/Stafnesvegur (45): Einstefna frá Nesvegi/Hafnarvegi til norðurs í átt að Sandgerði.
• Vatnsleysustrandarvegur (420): Einstefna frá Vogum til austurs í átt að Kúagerði.
• Bláalónsvegur: Lokað fyrir umferð.
• Skagabraut að Garðskagavita: Einstefna að Garðskaga og til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði.
✈️ Keflavíkurflugvöllur
Farþegar sem eiga flug frá Keflavíkurflugvelli eru hvattir til að mæta tímanlega og gera ráð fyrir töfum.
Þeir sem koma til landsins eru beðnir um að sýna þolinmæði vegna mögulegs umferðarálags á Reykjanesi.
📱 GSM-samband
Mikið álag getur orðið á farsímakerfinu, sérstaklega utan þéttbýlis.
🆘 NEYÐARNÚMER: 112
Ef ekki næst í 112 má reyna varanúmer Neyðarlínunnar: 599 0112.
👓 MUNIÐ EFTIR SÓLMYRKVAGLERAUGUM
Notið ávallt viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er beint til sólar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vörn.
🌑 Skipuleggjum daginn vel – förum varlega og komum heil heim.
Nánari upplýsingar um safnstaði, bílastæði, viðburði og skipulag má finna á:
visitreykjanes.is
solmyrkvi2026.is

Júlí var viðburðaríkur mánuður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Starfsfólk okkar sinnti fjölmörgum útköllum, bæði í sjúkraflu...
05/08/2026

Júlí var viðburðaríkur mánuður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Starfsfólk okkar sinnti fjölmörgum útköllum, bæði í sjúkraflutningum og slökkviliði. Við þökkum öllum fyrir traustið og óskum ykkur áfram góðs sumars. ☀️🚑🚒

Á dögunum fengum við afhentan nýjan Can-Am Traxter 6x6, sem er sérstaklega hugsaður fyrir verkefni tengd gróðureldum og ...
20/07/2026

Á dögunum fengum við afhentan nýjan Can-Am Traxter 6x6, sem er sérstaklega hugsaður fyrir verkefni tengd gróðureldum og öðrum útköllum þar sem torfærur geta reynst krefjandi.

Tækið kemur í stað sexhjóls sem hefur þjónað okkur vel undanfarin ár og er mikilvæg viðbót við búnað slökkviliðsins. Með aukinni burðargetu, betri torfærugetu og góðri aðstöðu fyrir búnað mun það styrkja viðbragðsgetu okkar þegar mest á reynir.

Við viljum jafnframt þakka Fjöltak fyrir glæsilegar og vandaðar merkingar á tækinu.

Address

Flugvellir 33
Keflavík
230

Telephone

+3544214748

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brunavarnir Suðurnesja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Brunavarnir Suðurnesja:

Shortcuts

Share