21/08/2026
Ein stærsta skattalækkun á sveitarstjórnarstiginu til margra ára! 🏡
Meirihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar samþykkti í morgun tillögu Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um að lækka byggingarréttargjöld á lóðum sveitarfélagsins niður í 0 krónur á fermetra.
👉 Fyrir 150 fermetra íbúðarhúsnæði þýðir þetta 5.250.000 króna skattalækkun.
Byggingarréttargjald vegna íbúðarhúsnæðis lækkar úr 35.000 kr. í 0 kr. á fermetra og vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða úr 6.000 kr. í 0 kr. á fermetra. Málið verður staðfest á næsta fundi bæjarstjórnar.
Við viljum gera Reykjanesbæ að besta stað landsins til að byggja upp. Hvort sem um er að ræða fjölskyldur sem vilja byggja sér heimili, iðnaðarmenn sem vilja ráðast í eigin verkefni eða fyrirtæki sem vilja fjárfesta og skapa störf.