24/08/2026
"Hér ætla ég að fara yfir lærdóminn og setja fram þau 5 atriði sem skipta mig mestu máli í tengslum við JÁið mitt. Ég ætla að vísa með hlekkjum í nánari fróðleik víða sem áhugasamir geta þá kafað ofan í fyrir frekari upplýsingar. En í mjög stuttu máli er niðurstaðan þessi:
Ég hef styrkst í þeirri trú að það er Íslandi fyrir bestu að leggja af stað í samningaviðræður. Við erum í sterkri stöðu og það er vilji til að semja. Upptaka evru yrði risastór kjarabót fyrir íslenskan almenning. Mér finnst í raun (og ætla að leyfa mér að segja það) algjört ábyrgðarleysi að segja nei á þessum tímapunkti vegna þróunar mála á alþjóðasviðinu."
1. Lægri vextir, lægra verð og virkari samkeppni
2. Sterk samningsstaða getur fært okkur góðan samning fyrir sjávarauðlind þjóðarinnar og ný tækifæri fyrir landbúnað
3. Aukið vald og þéttara samstarf við vinaþjóðir
4. Sterkari byggð um allt land og auðveldari uppbygging innviða
5. Öryggi á meðal vinaþjóða í breyttum veruleika
Svakalega hefur þetta sumar verið lærdómsríkt. Ég ákvað að nýta það til að kafa ofan í Evrópusambandið og kynna mér það rækilega. Satt best að segja hef ég forðast þessa umræðu eins og heitan eldinn öll mín fullorðinsár. Mér hefur einfaldlega þótt hún með eindæmum...