23/08/2026
Í vikunni fengum við svör við fyrirspurn okkar um efnafræðilegt ástand Kópavogslækjar og aðgerðir bæjarins til þess að bæta ástandið.
Í stuttu máli er staðan slæm. Við munum því leggja til að merkingar um ástand lækjarins verði settar upp, svo grunlausir foreldrar leyfi ekki börnum sínum að leika í læknum, þar til ráðist hefur verið í aðgerðir og þær borið árangur.
Á næsta fundi skipulags- og umhverfisráðs munum við svo leggja til að gripið verði strax til aðgerða og þær settar í forgang. Kópavogsbæ skortir ekki úrræði til að laga Kópavogslækinn heldur pólitískan vilja til að forgangsraða verkefninu.
Hlekkur á grein í fyrstu athugasemd.👇