Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu grunn- og framhaldsskóla um land allt.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-.

Metþátttaka var á læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin var við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. sept...
14/09/2026

Metþátttaka var á læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin var við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september. Alls skráðu 325 þátttakendur sig á ráðstefnuna, þar á meðal stórir hópar frá skólum víðs vegar af landinu.

MMS og MSHA þakka fyrir góða þátttöku og ánægjulegan dag sem einkenndist af áhuga, samtali og fjölbreyttum sjónarhornum á læsi til náms og yndis 💜

Metþátttaka var á læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin var við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september. Alls skráðu 325 þátttakendur sig á ráðstefnuna, þar á meðal stórir hópar frá skólum víðs vegar af landinu.

Vantar þig hugmyndir eða hagnýt verkfæri til að styðja við menntun og móttöku barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumá...
11/09/2026

Vantar þig hugmyndir eða hagnýt verkfæri til að styðja við menntun og móttöku barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?

Á memm.mms.is er að finna fræðslu, verkefni og fjölbreyttar aðferðir fyrir starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfs.

Kynntu þér efnið á 👉 https://memm.mms.is

💛
10/09/2026

💛

Hvað lærum við þegar við reynum eitthvað nýtt?Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónust...
09/09/2026

Hvað lærum við þegar við reynum eitthvað nýtt?

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og handhafi Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026, verður meðal fyrirlesara á viðburðinum Reynslumiðlun opinberra frumkvöðla 23. september.

Í erindi sínu „Neyðin kennir naktri konu að spinna“ deilir Þórdís reynslu sinni af nýsköpun og umbótum í opinberri þjónustu.

Viðburðurinn fer fram kl. 12:30–15:00 í Katrínartúni 6. Sætafjöldi er takmarkaður.

Nánari upplýsingar og skráning:

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Hvað langar þig að læra – og hvert gæti það leitt þig? Næsta skref AI er ný gervigreindarlausn sem hjálpar þér að kanna ...
09/09/2026

Hvað langar þig að læra – og hvert gæti það leitt þig?

Næsta skref AI er ný gervigreindarlausn sem hjálpar þér að kanna mögulegar leiðir í námi og starfi. Þar getur þú spurt spurninga, skoðað valkosti og tekið næsta skref í leitinni að því sem hentar þér.

Prófaðu Næsta skref AI https://ai.naestaskref.is/

https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/frett/naesta-skref-ai-hjalpar-folki-ad-kanna-leidir-i-nami-og-starfi

Ný gervigreindarlausn, Næsta skref AI, er nú aðgengileg á vef Næsta skrefs. Þar geta notendur spurt spurninga og fengið aðstoð við að kanna mögulegar leiðir í námi og starfi.

Alþjóðlegur dagur læsis 💜
08/09/2026

Alþjóðlegur dagur læsis 💜

Alþjóðlegur dagur læsis er haldinn 8. september ár hvert. Í ár eru jafnframt 60 ár síðan UNESCO kom deginum á fót og yfirskrift dagsins er Læsi fyrir fólk, jörðina og farsæld.

Vertu með á Akureyri 12. september - https://www.unak.is/.../vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis
01/09/2026

Vertu með á Akureyri 12. september - https://www.unak.is/.../vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

Rithöfundarnir Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson eru meðal aðalfyrirlesara á ráðstefnunni Læsi til náms og yndis í Háskólanum á Akureyri 12. september.

Yrsa og Gunnar hafa bæði getið sér gott orð fyrir barna- og unglingabækur. Í erindinu ræða þau hvernig eigin bernskuminningar, reynsla og tengsl við börn hafa áhrif á skrif þeirra. Þau velta meðal annars fyrir sér hvernig hægt sé að kveikja áhuga barna á bókum, viðhalda lestrargleði og skapa sögur sem höfða til barna í dag.

Við hvetjum kennara, stjórnendur og annað fagfólk sem starfar að læsi og menntun barna til að mæta og hlýða á þetta áhugaverða erindi.

Vertu með á Akureyri 12. september - https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

31/08/2026

Dr. Dominic Wyse, prófessor við University College London, er einn aðalfyrirlesara á ráðstefnunni Læsi til náms og yndis í Háskólanum á Akureyri 12. september.

Í erindinu „The Double Helix of Reading and Writing: A New Theory of Teaching“ kynnir Dominic kenningu um læsiskennslu sem hann þróaði ásamt Charlotte Hacking og var kynnt árið 2024. Kenningin lýsir nánu og gagnvirku sambandi lesturs og ritunar, þar sem þessir tveir þættir þróast samhliða og styðja hvor annan í námsferlinu. Dominic kynnir kenninguna, rannsóknirnar að baki henni og hvernig hún getur nýst í daglegu skólastarfi.

Við hvetjum kennara, stjórnendur og annað fagfólk sem starfar að læsi og menntun barna til að mæta og hlýða á þetta áhugaverða erindi.

Skráðu þig og vertu með í HA 12. september - https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

31/08/2026

Pernille Ripp, kennari, rithöfundur og fyrirlesari, er einn aðalfyrirlesara á ráðstefnunni Læsi til náms og yndis í Háskólanum á Akureyri 12. september.

Í erindi sínu fjallar Pernille um hvernig hægt er að viðhalda lestrargleði barna samhliða markvissri og faglegri læsiskennslu. Hún skoðar hvernig fyrstu ár skólagöngunnar móta bæði lestrarfærni barna og sjálfsmynd þeirra sem lesenda.

Pernille hefur meðal annars skrifað bækurnar Passionate Readers og Passionate Learners. Í þeim leggur hún áherslu á forvitni, valfrelsi og sjálfræði nemenda í námi. Í erindinu byggir hún á þessari nálgun og eigin reynslu úr kennslu og varpar ljósi á hvernig hægt er að hlúa að áhuga, undrun og virkri þátttöku barna í læsisnámi.

Við hvetjum kennara, stjórnendur og annað fagfólk sem starfar að menntun barna til að skrá sig á ráðstefnuna og hlýða á þetta áhugaverða erindi.

Smelltu hér til að vera með: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis

Halló heimur 4 er komin út og grúskararnir eru lagðir af stað í sína síðustu grúskferð! 🌍Eftir þrjár bækur af rannsóknum...
27/08/2026

Halló heimur 4 er komin út og grúskararnir eru lagðir af stað í sína síðustu grúskferð! 🌍

Eftir þrjár bækur af rannsóknum, uppgötvunum og alls kyns grúski um samfélag og náttúru er komið að fjórðu og síðustu bókinni.

Í þetta sinn velta grúskararnir meðal annars fyrir sér hvernig Ísland varð til, skoða heimsálfurnar og fræðast um kynþroska og samskipti. Og auðvitað er nóg að gera á leiðinni: föndur, spil, samræður, tilraunir og verkefni sem kalla á forvitni og skapandi hugsun.

Eruð þið tilbúin í síðustu grúskferðina? 🔎

Fjórða og síðasta bókin í „Halló heimur“ seríunni er komin út rafrænt. Í Halló heimur 4 halda grúskararnir áfram að kanna samfélagið og náttúruna með fjölbreyttum viðfangsefnum sem hvetja til umræðna, rannsókna og skapandi vinnu.

Address

Víkurhvarf 3
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3545147500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Miðstöð menntunar og skólaþjónustu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Miðstöð menntunar og skólaþjónustu:

Shortcuts

Share