05/09/2026
🇮🇸 Húsfyllir á laugardagsfundi
með formanni Sjálfstæðisflokksins,
Guðrúnu Hafsteinsdóttur!
Við lá að veitingar kláruðust
áður en fundurinn einu sinni hófst,
svo fylla þurfti á og bæta við stólum.
Spurning hvort þurfum að huga að
stærra félagshúsnæði ef fram heldur ☺️
Frábær stemning og kröftug framsaga,
með áhugaverðum og ýmist hvetjandi
eða ögrandi spurningum í kjölfarið,
sem allar fengu ítarleg og greinagóð svör.
Sigri í kosningum ársins fagnað af formanni,
farið yfir aðdraganda þjóðaratkvæðisins,
stöðuna og landsmálin, auk þess
hvað tekur við á þinginu o.fl.
- við góðar undirtektir og tíð lófaklöpp 👏
Spurt var út í kristin gildi og kennslu þeirra,
séreignastefnuna og uppbyggingu húsnæðis,
skatta og álögur auk þá útgjalda ríkisins,..og auðvitað Bókun 35 ásamt Evrópumálum,
svo eitthvað sé nefnt 🤓
Það voru líka fjölmennir vel heppnaðir fundir mánuðinn fram að þjóðaratkvæðageriðslunni
og meira að segja húsið opnað á höfuðdaginn, þrátt fyrir allt kosningavafstrið og það tilstand,
fyrir þá sem kíkja við af góðum vana
og spjalla yfir kaffibolla - rýna mál dagsins.
Alltaf opið hjá Sjálfstæðisfélagi Kópavogs ;)
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
komandi laugardaga og út veturinn,
af nógu er að taka.
Áfram Ísland, um öld og aldir!
Sjálfstæðisflokkurinn
Guðrún Hafsteinsdóttir