Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs Náttúrusafn Kópavogs er fjölskylduvænt safn þar sem má uppgötva náttúruna út frá sýningum, viðburðum og nærumhverfi safnsins.

The Nature Museum of Kópavogur is a family friendly museum that offers exploration of nature through exhibitions and events. Náttúrugripasafn og rannsóknarstofa í vistfræði, Natural History Museum.

Náttúrusafnið heldur uppá Alþjóðlega safnadaginn, mánudaginn 18. maí!Í tilefni hans bjóðum við gestum að taka þátt í tve...
15/05/2026

Náttúrusafnið heldur uppá Alþjóðlega safnadaginn, mánudaginn 18. maí!

Í tilefni hans bjóðum við gestum að taka þátt í tveimur viðburðum sem endurspegla fjölbreytt starf safna í samfélaginu. Annars vegar gefst gestum tækifæri á að skyggnast á bak við tjöldin með leiðsögn um safngeymslu safnsins og hins vegar að taka þátt í skapandi smiðju í samstarfi við Gerðarsafn, þar sem náttúra og myndlist mætast.
Gerðarsafn Kópavogur Art Museum

- Opin safngeymsla kl. 15:30-17:30 úti á túninu milli Gerðarsafns og Náttúrusafnsins
- Sólarþrykk kl. 16:00-17:30 í Tilraunastofunni
www.natkop.is

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Aðgangur er ókeypis öll | Öll velkomin!

Það er lokað á Náttúrusafninu í dag, 1.maí á degi verkalýðsins!The Nature Museum will be closed today on may 1st due to ...
01/05/2026

Það er lokað á Náttúrusafninu í dag, 1.maí á degi verkalýðsins!

The Nature Museum will be closed today on may 1st due to international workers day!

30/04/2026

Um að gera að skella sér í Fjöruferð í Fossvogi og kíkja svo í Táfýlutextíl á Bókasafninu!🦀🧦

Lóan er komin til landsins!Spennandi rannsóknarverkefni í gangi hjá Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi
30/04/2026

Lóan er komin til landsins!

Spennandi rannsóknarverkefni í gangi hjá Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi

Sumardagurinn fyrsti ☀️Nú þegar sumarið er komið er gott að spá í því hvernig það mun verða. Verður sumarið vott eða þur...
23/04/2026

Sumardagurinn fyrsti ☀️

Nú þegar sumarið er komið er gott að spá í því hvernig það mun verða. Verður sumarið vott eða þurrt? Kalt eða hlýtt?

Hrossagaukur (Gallinago gallinago) er þekktur spádómsfugl sem var sagður geta spáð fyrir um hvernig sumarið yrði eftir því úr hvaða átt fólk heyrði hann fyrst hneggja á vorin. Spáin var samkvæmt þessari vísu:

Í austri er unaðsgaukur,
í suðri sælugaukur,
í vestri vesælgaukur,
í norðri námsgaukur.
Uppi er auðsgaukur,
niðri nágaukur.

Þó að vísindalegt gildi vísunnar sé takmarkað þá má nú samt lesa ýmislegt í veðurfari út frá lífríkinu í kringum okkur.

Margar lífverur geta nýst sem lífvísar (e. bioindicators) á loftslagsbreytingar. Blómgunartími plantna er nátengdur hitastigi. Komutími farfugla til landsins fer mikið eftir veðurfari og fæðuframboði. Mörg skordýr koma ekki fram fyrr en frost fer úr jörðu. Ef loftslag breytist hratt þá getur það raskað jafnvægi á milli þessara lífvera og þar með allrar fæðukeðjunnar.

Hvernig hljómar heimurinn í dag?

Mynd: Sigurður Ægisson.

Sæeyru (Haliotidae) 🐌Sæeyru hafa eina furðulegustu kuðunga sem fyrir finnast á meðal snigla.  Sæeyru eru stórir sjávarsn...
16/12/2025

Sæeyru (Haliotidae) 🐌

Sæeyru hafa eina furðulegustu kuðunga sem fyrir finnast á meðal snigla.

Sæeyru eru stórir sjávarsniglar af sæeyrnaætt (Haliotidae) en kuðungar þeirra líkjast einmitt talsvert mannseyrum. Svona allavega ef að mannseyru væru húðuð að innan með glansandi perlugljáa.

Kuðungar sæeyrna eru mjög flatir og breiðir miðað við aðra kuðunga og á einni hlið kuðungsins eru mörg lítil g*t í skelinni. Þessi g*t býr snigillinn sjálfur til á kuðunginn og dælir svo sjó í gegnum þau til að fá nóg súrefni til að lifa góðu lífi á sjávarbotninum.

Innra borð sæeyrna er svo þakið lithverfu efni sem kallast perlumóðir. Þetta glampandi og glansandi efni er mjög fallegt í útliti en sæeyru búa það ekki til fegurðarinnar vegna því þeir hafa í raun mjög slæma sjón. Perlumóðir er hinsvegar afskaplega sterkt og sveigjanlegt byggingarefni sem að gerir kuðunga sæeyrna einstaklega sterkbyggða.

Til eru um 100 tegundir sæeyrna í heiminum og þær stærstu verða um 30 cm í þvermál.

Heil skúffa af sæeyrnakuðungum er nú til sýnis á Náttúrusafni Kópavogs!

09/12/2025

Endilega fylgist með frábæru Jóladagatali safnanna! Við spruttum úr glugga dagsins. Jólin eru svo sannarlega komin í Náttúrusafninu og hér má heyra þau Hlyn og Huldu segja frá því hvernig haldið er uppá jólamánuðinn.

18/11/2025

Verið velkomin á Náttúrusafn Kópavogs í Hamraborg.

Address

Hamraborg 6a
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 08:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 17:00

Telephone

+3545700430

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúrusafn Kópavogs posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share