05/09/2026
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð til ásamt sjúkraflutningum og slökkviliði á sjöunda tímanum í kvöld vegna umferðarslyss á Suðurlandsvegi rétt austan við Sólheimajökulsveg. Um harðan þriggja bifreiða árekstur var að ræða og voru alls átta manns í slysinu. Af þeim átta sem voru í slysinu voru fjórir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann til aðhlynningar, þar af tveir alvarlega slasaðir. Tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi vinnur nú að vettvangsvinnu sem gæti dregist fram á kvöld og biðlar lögreglan til vegfarenda að sýna tillitssemi á meðan vettvangsvinnu stendur.
Suðurlandsvegur við Sólheimajökulsveg er lokaður vegna vettvangsvinnu, sjá má upplýsingar um lokanir á vef Vegagerðarinnar https://umferdin.is/
Á vef Vegagerðarinnar segir: "Búast má við umferðartöfum eða lokunum á Hringvegi undir Sólheimajökli vegna umferðaróhapps. Búist er við að geta opnað veginn kl. 21:30."
Uppfært kl. 22:10
Suðurlandsvegur hefur verið opnaður til vesturs.
Uppfært kl. 23:12
Suðurlandsvegur hefur verið opnaður í báðar áttir.