Náttúruverndarstofnun

Náttúruverndarstofnun Náttúruverndarstofnun er ríkisstofnun og heyrir undir umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið. Stofnunin tók til starfa 1.

janúar 2025 og sinnir verkefnum sem snúa að náttúruvernd, lífríkis- og veiðistjórnun.

🇮🇸 Gleðilegan Dag íslenskrar náttúru!🧡 Í tilefni dagsins bjóðum við upp á nokkrar spurningar til að deila hér á samfélag...
16/09/2026

🇮🇸 Gleðilegan Dag íslenskrar náttúru!

🧡 Í tilefni dagsins bjóðum við upp á nokkrar spurningar til að deila hér á samfélagsmiðlum sem tengja okkur við náttúruna á einn eða annan hátt.

💬 Spurningarnar eru:
Hver er þinn staður í náttúrunni?
Hver er þín útivist?
Hvaða árstíð finnst þér fallegust?
Hvaða blóm eða dýr heldur þú upp á?
Hvar finnur þú mest fyrir tengingu við náttúruna?

📣 Ef þú vilt deila þínu svari þá eru leiðbeiningar að finna hér í færslunni og einnig í story/sögum á Instagram og Facebook. Okkur þætti einnig vænt um ef þið merkið okkur með færslunni Náttúruverndarstofnun.

🍂 Njótið dagsins og náttúrunnar!

📣 Laus störf: Sérfræðingur í verkefninu Peatland LIFEline🍃 Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi í...
15/09/2026

📣 Laus störf: Sérfræðingur í verkefninu Peatland LIFEline

🍃 Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi í tímamundið starf með framúrskarandi samskiptahæfni og með þekkingu á náttúruvernd til að leiða og samþætta verkefni sem stofnunin ber ábyrgð á í Peatland LIFEline (Mýralíf).

🎋 Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefandi og verður starfsmaðurinn hluti af samhentu teymi þar sem fagmennska og virðing fyrir náttúrunni eru í forgrunni.

🐦 Peatland LIFEline er metnaðarfullt, fimm ára verkefni styrkt af LIFE- áætlun Evrópusambandsins. Markmið þess er að endurheimta láglendisfjallamýrar á Íslandi og efla getu stofnana til vendunnar lífræðilegs fjölbreytileika á endurheimtum votlendissvæðum. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna inn á myralif.is

Starfstöð sérfræðings er á Hvanneyri Borgarbyggð.

⬇️ Nánari upplýsingar á vef og hjá Starfatorgi.

https://www.nattura.is/laus-storf-serfraedingur-i-verkefninu-petland-lifeline

Mýralíf - Peatland LIFEline

📣 Laus störf: Land­vörð­ur í Þing­eyj­ar­sveit🍃 Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi ...
15/09/2026

📣 Laus störf: Land­vörð­ur í Þing­eyj­ar­sveit

🍃 Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á friðlýstum svæðum í Þingeyjarsveit, þ.á.m. á Gíg gestastofu og á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs.

🪏 Landverðir sinna fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun náttúru, þjónustu og innviðum. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, fylgjast með ástandi umhverfisins og leggja sitt af mörkum til að tryggja að Ísland verði áfram einstakur staður. Landverðir gegna lykilhlutverki í að leiðbeina og fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.

💚 Í Þingeyjarsveit eru fjölmörg svæði friðlýst, þar á meðal verndarsvæði Mývatns og Laxár, Dimmuborgir, Skútustaðagígar og Goðafoss. Einnig sinna landverðir upplýsingagjöf og fræðslu á Gíg gestastofu á Skútustöðum. Norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum í austri, að Skjálfandafljóti í vestri og inn á Vatnajökul í suðri. Landvörslustöðvar á láglendi eru á Gíg gestastofu og á hálendi í Drekagili og Herðubreiðarlindum.

Um ótímabundið vaktavinnustarf er að ræða.

⬇️ Nánari upplýsingar á vef og hjá Starfatorgi.

https://www.nattura.is/laus-storf-landvordur-i-thingeyjarsveit
Gígur - gestastofa

👉Veiði­tíma­bil rjúpu 2026 staðfestVeiðitímabilið hefst föstudaginn 23. október á öllum veiðisvæðum. Nánari upplýsingar ...
11/09/2026

👉Veiði­tíma­bil rjúpu 2026 staðfest

Veiðitímabilið hefst föstudaginn 23. október á öllum veiðisvæðum.

Nánari upplýsingar í frétt 👇

Skotveiðifélag Íslands Skotvís Fuglavernd - BirdLife Iceland

🐑 Smölun í Frið­landi að Fjalla­baki 12. sept­em­ber💚Vegna smölunar í Friðlandi að Fjallabaki laugardaginn 12. september...
09/09/2026

🐑 Smölun í Frið­landi að Fjalla­baki 12. sept­em­ber

💚Vegna smölunar í Friðlandi að Fjallabaki laugardaginn 12. september vill Náttúruverndarstofnun koma eftirfarandi tilmælum á framfæri til fólks og ferðaþjónustuaðila sem hyggja á ferðalag í friðlandið.

🥾 Ferðafólk er beðið um að ganga ekki gönguleiðirnar að Grænahrygg um Halldórsgil eða af Skallahring, og vera ekki á ferð í Jökulgili eða Hattveri. Í Friðlandi að Fjallabaki eru margar aðrar gönguleiðir í boði.

Lesa meira í frétt: https://www.nattura.is/fraedsla/smolun-i-fridlandi-ad-fjallabaki-12-september

🇬🇱 Blesgæs er reglulegur viðkomufugl á Íslandi að vori og hausti á leið sinni milli varpstöðva á Grænlandi og vetrarstöð...
04/09/2026

🇬🇱 Blesgæs er reglulegur viðkomufugl á Íslandi að vori og hausti á leið sinni milli varpstöðva á Grænlandi og vetrarstöðva í Bretlandi og á Írlandi. Á síðustu árum hefur Grænlandsstofninn hins vegar dregist verulega saman og telur nú um 13.300 fugla, sem er lægsta talning frá 1983. Samdrátturinn skýrist einkum af lélegum varpárangri á Grænlandi vegna erfiðra veðurskilyrða, sem hefur leitt til þess að of fáir ungar komast á legg.

🇮🇸 Þegar blesgæsir staldra við hér á landi eru þær oft þreyttar eftir langt flug og þurfa frið til að nærast og safna orku fyrir áframhaldandi ferð. Truflun, til dæmis ef fuglar eru reknir ítrekað upp, getur haft veruleg áhrif á lífslíkur þeirra. Því er mikilvægt að bændur og landeigendur sýni aðgát og gefi fuglunum svigrúm þegar þeir halda til á túnum og votlendi, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi þar sem meginhluti stofnsins kemur við.

⚠️ Jafnframt er brýnt að koma í veg fyrir að blesgæsir verði veiddar í misgripum. Þótt tegundin sé friðuð á Íslandi getur hún ruglast við grágæs við erfiðar aðstæður. Því er lögð sérstök áhersla á að veiðimenn kynni sér vel útlit, hljóð og atferli blesgæsarinnar til að draga úr líkum á slíkum mistökum.

🫱🏻‍🫲🏽 Til að bregðast við stöðunni er nú unnið að sameiginlegu átaki Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarstofnunar, Skotvís, Fuglaverndar og Bændasamtaka Íslands. Markmiðið er að auka þekkingu, fylgjast með komu fugla og hvetja bæði veiðimenn og landeigendur til að taka þátt í verndun stofnsins. Með samstilltu átaki og aukinni meðvitund má stuðla að því að blesgæsin haldi áfram að nýta Ísland sem mikilvægan viðkomustað á farleið sinni, án þess að grípa þurfi til víðtækra takmarkana á landnýtingu eða veiðum.

Náttúrufræðistofnun
Skotveiðifélag Íslands Skotvís
Fuglavernd - BirdLife Iceland
Bændasamtök Íslands

Grasafræðingar frá tékkneska þjóðgarðinum Krkonoše heimsóttu austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs á dögunum. Þjóðgarðarnir t...
02/09/2026

Grasafræðingar frá tékkneska þjóðgarðinum Krkonoše heimsóttu austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs á dögunum. Þjóðgarðarnir tveir eiga ýmislegt sameiginlegt, en þar finnast meðal annars svipaðar gróðurtegundir.

Grasafræðingar frá tékkneska þjóðgarðinum Krkonoše heimsóttu austursvæði1. september 2026Tékknesku grasafræðingarnir frá Krkonoše þjóðgarðinum ásamt Rögnu þjóðgarðsverði, Jónatani yfirlandsverði, Þórhalli aðstoðar þjóðgarðsverði og Martinu landverði. Austursv....

Bendum ferðalöngum sem íhuga göngu á Fimmvörðuháls á þessar ráðleggingar 👇,,Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivi...
26/08/2026

Bendum ferðalöngum sem íhuga göngu á Fimmvörðuháls á þessar ráðleggingar 👇

,,Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Þau ráða fólki eindregið frá göngu yfir hálsinn.''

Gil og sprungur hafa opnast á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Brattar brekkur og skriður hafa myndast milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála. Fólki er ráðið frá ferðum yfir hálsinn.

💚 Stjórn­unar- og vernd­ar­áætl­un fyrir Ástjörn og Ásfjall hafinÁætlunin mun verða stefnumótandi skjal þar sem sett ver...
26/08/2026

💚 Stjórn­unar- og vernd­ar­áætl­un fyrir Ástjörn og Ásfjall hafin

Áætlunin mun verða stefnumótandi skjal þar sem sett verða fram markmið til að marka stjórnun og viðhalda verndargildi svæðisins.

Hægt að lesa meira í frétt 👇

Náttúruverndarstofnun hefur hafið vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Ástjörn og fólkvanginn Ásfjall. Áætlunin mun verða stefnumótandi skjal þar sem sett verða fram markmið til að marka stjórnun og viðhalda verndargildi svæðisins. Á heimasíðu Náttúru...

Address

Austurvegur 4
Hvolsvöllur
860

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúruverndarstofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Náttúruverndarstofnun:

Shortcuts

Share