10/09/2026
Krakkarnir í Hvolsskóla tóku þátt í Lestrarspretti Gúnda geithafurs í sumar.
19 krakkar voru skráðir til leiks.
7 krakkar voru virkir þátttakendur og þau lásu í 31 klukkustund samanlagt - Meeergjaðir krakkar.
Uppskeruhátíð var svo haldin á bókasafninu 28. ágúst. Krakkarnir fengu notalega stund á bókasafninu, lituðu sína eigin sundpoka, hlustuðu á tónlist og fengu sér safa, popp og saltstangir. Heppinn þátttakandi var svo dreginn út og fékk verðlaun 😊
Takk fyrir Meeergjaðan dag kæru lestrarhestar 😊