17/05/2026
Kæru Hvergerðingar.
Við í Okkar Hveragerði viljum þakka hjartanlega fyrir alla hvatninguna, stuðninginn, samtölin og traustið í þessari kosningabaráttu.
Við finnum fyrir því að fólk lætur sig samfélagið varða og það er ómetanlegt.
Við tökum næstu skref af auðmýkt, ábyrgð og vilja til að hlusta á íbúa. Hver sem framvindan verður munum við leggja okkur fram um að vinna af heilindum fyrir Hveragerði og íbúa bæjarins.
Takk fyrir traustið, hlýjuna og þátttökuna.