Samfylkingin í Hveragerði

Samfylkingin í Hveragerði Gerum góðan bæ betri 🌹
Samfylkingin og óflokksbundnir í Hveragerði

06/06/2026

Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður Helgason forstjóri Sjúkratrygginga skrifuðu í dag undir langtímasamning við Ljósið um þverfaglega og heildræna endurhæfingu einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. 🤝

Samningurinn er til fjögurra ára og nemur fjárhagsrammi hans 487 milljónum á ári sem er ríflega tvöföldun frá fyrri samning. Samningurinn veitir Ljósinu aukinn fyrirsjáanleika og festir í sessi þá mikilvægu þjónustu sem byggð hefur verið upp í Ljósinu undanfarin 20 ár.

Samningurinn tekur mið af aukningu í krabbameinsgreiningum samkvæmt spá Krabbameinsfélags Íslands um þróun nýgengis krabbameina á komandi ára. Þá er lögð sérstök áhersla á að efla aðgengi einstaklinga á landsbyggðinni að sérhæfðri endurhæfingarþjónustu, meðal annars með aukinni fjarþjónustu og fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks í heimabyggð.

Nýr meirihluti í HveragerðiNýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samk...
28/05/2026

Nýr meirihluti í Hveragerði

Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili.

Mikill samhljómur var á meðal framboðanna í aðdraganda kosninga og mátti finna margar sameiginlegar áherslur í stefnumálum þeirra. Þessi samhljómur skapaði sterkan grundvöll fyrir samstarfi. Viðræður D-listans og S-listans hafa verið góðar og einkennst af trausti, málefnum og sameiginlegum vilja til að vinna af ábyrgð fyrir Hveragerði á komandi kjörtímabili.

Ingimar Guðmundsson verður bæjarstjóri

Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.

„Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best,“ segir Ingimar Guðmundsson, verðandi bæjarstjóri Hveragerðis. „Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina.“

Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði

Framboðin hafa gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði. Þar kemur meðal annars fram að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf.

„Viðræðurnar voru mjög góðar, uppbyggilegar og lausnamiðaðar frá fyrsta degi. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var í stóru málunum,“ segir Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans og verðandi formaður bæjarráðs. „Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.”

Í málefnasamningnum eru tilgreind nokkur verkefni sem verða sett sérstaklega í forgang. Þar má meðal annars nefna að aðalskipulag verði endurskoðað með aðkomu íbúa, hugað verði að því að nýr gervigrasvöllur verði nothæfur yfir vetrartímann og að sett verði upp stöðuyfirlit yfir kostnaðarsöm verkefni og stærri framkvæmdir sem bærinn stendur frammi fyrir.

20/05/2026

D-listinn og S-listinn hafa komist að samkomulagi um að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis.

Niðurstaða kosninganna sýnir skýrt ákall kjósenda um breytingar, ný vinnubrögð og ábyrga forystu í þeim verkefnum sem fram undan eru. D-listinn hlaut 43,9% fylgi, 869 atkvæði og bætti við sig manni. S-listinn hlaut 12,9% fylgi, 256 atkvæði og náði inn fulltrúa í bæjarstjórn eftir að hafa boðið fram á ný eftir margra ára fjarveru. Saman standa því 1.125 atkvæði (56,8%) að baki listunum tveimur.

Í samtölum fulltrúa listanna hefur komið skýrt fram að í mörgum mikilvægum málaflokkum eru áherslur þeirra samhljóða og víða má finna sameiginlega sýn á framtíð og uppbyggingu bæjarfélagsins. Báðir listar leggja áherslu á vandaða stjórnsýslu, betri upplýsingagjöf og samstarf við íbúa og félög, ábyrga meðferð fjármuna, fjölskylduvænt samfélag, bætta þjónustu og uppbyggingu sem tekur mið af sérstöðu og bæjarbrag Hveragerðis.

Viðræðurnar munu fara fram af ábyrgð og með það að markmiði að kanna hvort unnt sé að mynda farsælan og málefnalegan meirihluta í bæjarstjórn sem geti aukið traust meðal íbúa, svarað ákalli um breytingar og öfluga forystu í stjórnun bæjarfélagsins.

Við viljum gera góðan bæ betri.
Við viljum starfa af ábyrgð fyrir betri lífsgæði.

Kæru Hvergerðingar ❤️Við viljum færa ykkur innilegar þakkir fyrir stuðninginn, traustið og hlý orð á undanförnum vikum. ...
17/05/2026

Kæru Hvergerðingar ❤️

Við viljum færa ykkur innilegar þakkir fyrir stuðninginn, traustið og hlý orð á undanförnum vikum. Það hefur skipt okkur miklu máli að finna kraftinn og samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar.

Árangur næst ekki nema með fólki sem er tilbúið að taka þátt, ræða málin og standa með þeim gildum sem skipta okkur öll máli — öflugu samfélagi, góðri þjónustu og bjartsýnni framtíð fyrir Hveragerði.

Við erum líka einstaklega stolt af því að oddviti listans, Birgitta Ragnarsdottir, hafi náð kjöri í bæjarstjórn. Sá árangur hefði ekki náðst án ykkar stuðnings og við gætum ekki verið stoltari ❤️

Takk fyrir stuðninginn, samtölin, hvatninguna og allan meðbyrinn. Við hlökkum til að halda áfram að vinna með ykkur að því að gera góðan bæ enn betri 🌹

16/05/2026
🌹 Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli 🌹Þorsteinn Hjartarson, sem skipar 2. sæti S-listans, skrifar hér af einlægni um ...
15/05/2026

🌹 Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli 🌹

Þorsteinn Hjartarson, sem skipar 2. sæti S-listans, skrifar hér af einlægni um samfélagið okkar, samkenndina og það sem raunverulega skiptir máli í bænum okkar.

Grein sem vert er að lesa 👇

Framtíð Hveragerðis byggist ekki aðeins á framkvæmdum og fjárfestingum heldur fyrst og fremst á fólkinu sem býr í bænum. S-listinn leggur áherslu á samfélag þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði n…

14/05/2026

Fallegir garðar, gróður allt í kring, grænu svæðin! S-listinn leggur mikla áherslu á að passa upp á einkenni Hveragerðisbæjar 🌹 Hér á að vera blómlegt og fallegt ❤️

13/05/2026

S-listinn talar um það hversu mikilvægur snemmtækur stuðningur sé 🌹

Birgitta og Þorsteinn heimsóttu Kjörís í gær. Þar fengu þau góða kynningu á starfsemi fyrirtækisins, smökkuðu að sjálfsö...
12/05/2026

Birgitta og Þorsteinn heimsóttu Kjörís í gær. Þar fengu þau góða kynningu á starfsemi fyrirtækisins, smökkuðu að sjálfsögðu á ísnum og áttu gott samtal við starfsfólkið. 🍦

Við þökkum Kjörís kærlega fyrir góðar móttökur og skemmtilegt samtal!

Address

Reykjamork 1
Hveragerdi
810

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samfylkingin í Hveragerði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samfylkingin í Hveragerði:

Share