D-listinn í Hveragerði

Kaffið er klárt og Diljá mætt.Verið velkomin.
12/09/2026

Kaffið er klárt og Diljá mætt.

Verið velkomin.

Diljá Mist  kemur í kaffi á laugardag og segir okkur tíðindi úr landsmálunum.Verið velkomin.
10/09/2026

Diljá Mist kemur í kaffi á laugardag og segir okkur tíðindi úr landsmálunum.

Verið velkomin.

Kaffið er klárt.Verið velkomin.
05/09/2026

Kaffið er klárt.
Verið velkomin.

Þá er komið að því að vetrarstarfið hefjist. Allir kjörnir fulltrúar D-listans koma í kaffi og þau ætla að fara yfir stö...
03/09/2026

Þá er komið að því að vetrarstarfið hefjist. Allir kjörnir fulltrúar D-listans koma í kaffi og þau ætla að fara yfir stöðuna, hvað hingað til hefur átt sér stað og hvað sé framundan.

,,Verkefnið framundan er skýrt. Tekjuáætlanir þurfa að byggja á raunhæfum forsendum, forgangsraða þarf betur stórum og k...
26/08/2026

,,Verkefnið framundan er skýrt. Tekjuáætlanir þurfa að byggja á raunhæfum forsendum, forgangsraða þarf betur stórum og kostnaðarsömum verkefnum og tryggja þarf sjálfbæran rekstur þar sem skuldbindingar sveitarfélagsins taka mið af raunverulegri fjárhagslegri getu þess."

Fjárhagur Hveragerðisbæjar hefur verið til umræðu undanfarin misseri. Fyrir kosningar bentu undirritaðir bæjarfulltrúar ítrekað á að þær forsendur sem fjárhagsáætlun sveitarfélagsins byggði á svo s…

Nýkjörin bæjarstjórn Hveragerðis fyrir kjörtímabilið 2026–2030 kom saman í fyrsta sinn í gær á 605. fundi bæjarstjórnar ...
10/06/2026

Nýkjörin bæjarstjórn Hveragerðis fyrir kjörtímabilið 2026–2030 kom saman í fyrsta sinn í gær á 605. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var í fundarsal bæjarskrifstofunnar.

Fundinn sátu Ingimar Guðmundsson, María Rún Þorsteinsdóttir og Sigmar Karlsson, bæjarfulltrúar D-listans. Auk þeirra sat Hjalti Helgason fundinn um stund og tók þátt í afgreiðslu 32. dagskrárliðar, sem laut að ráðningu nýs bæjarstjóra, Ingimars Guðmundssonar.

Öll mál á dagskrá voru samþykkt samhljóða. Góður andi ríkti á fundinum og vænta bæjarfulltrúar þess að eiga farsælt samstarf á komandi kjörtímabili.

Frábær mæting og rosaleg stemning á sumarfögnuði Sjálfstæðisfélags Hveragerðis.
30/05/2026

Frábær mæting og rosaleg stemning á sumarfögnuði Sjálfstæðisfélags Hveragerðis.

29/05/2026

Boðað er til almenns fundar í Sjálfstæðisfélagi Hveragerðis á morgun, laugardaginn 30. maí, klukkan 10:30 í Mánamörk 1, í upphafi sumargleðinnar.

Fundurinn er boðaður með vísan til 57. gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.

Á fundinum mun Ingimar Guðmundsson, oddviti D-listans og verðandi bæjarstjóri í Hveragerði, kynna málefnasamning vegna myndunar nýs meirihluta í Hveragerði.

Beðist er velvirðingar á stuttum fyrirvara sem eðli máls samkvæmt reyndist óhjákvæmilegur.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Hveragerðis.

Nýr meirihluti í HveragerðiNýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samk...
28/05/2026

Nýr meirihluti í Hveragerði

Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili.

Mikill samhljómur var á meðal framboðanna í aðdraganda kosninga og mátti finna margar sameiginlegar áherslur í stefnumálum þeirra. Þessi samhljómur skapaði sterkan grundvöll fyrir samstarfi. Viðræður D-listans og S-listans hafa verið góðar og einkennst af trausti, málefnum og sameiginlegum vilja til að vinna af ábyrgð fyrir Hveragerði á komandi kjörtímabili.

Ingimar Guðmundsson verður bæjarstjóri

Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.

„Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best,“ segir Ingimar Guðmundsson, verðandi bæjarstjóri Hveragerðis. „Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina.“

Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði

Framboðin hafa gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði. Þar kemur meðal annars fram að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf.

„Viðræðurnar voru mjög góðar, uppbyggilegar og lausnamiðaðar frá fyrsta degi. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var í stóru málunum,“ segir Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans og verðandi formaður bæjarráðs. „Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.”

Í málefnasamningnum eru tilgreind nokkur verkefni sem verða sett sérstaklega í forgang. Þar má meðal annars nefna að aðalskipulag verði endurskoðað með aðkomu íbúa, hugað verði að því að nýr gervigrasvöllur verði nothæfur yfir vetrartímann og að sett verði upp stöðuyfirlit yfir kostnaðarsöm verkefni og stærri framkvæmdir sem bærinn stendur frammi fyrir.

Málefnasamninginn má sjá hér: https://www.blahver.is/malefnasamningur-2026-2030

Ekki láta þig vanta á síðasta laugardagskaffi vetrarins.
28/05/2026

Ekki láta þig vanta á síðasta laugardagskaffi vetrarins.

Address

Mánamörk 1
Hveragerði
810

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when D-listinn í Hveragerði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to D-listinn í Hveragerði:

Shortcuts

Share