04/09/2026
Tækifæri fyrir ungt fólk, þátttaka í Erasmus+ verkefni
Ungt fólk á aldrinum 16-25 ára er hvatt til að sækja um þátttöku í norrænu Erasmus+ verkefni
Ungmenni á aldrinum 16–25 ára býðst nú tækifæri til að taka þátt í alþjóðlega Erasmus+ verkefninu The Nordic Youth Project, sem unnið er í samstarfi Húnaklúbbsins á Hvammstanga, aðila í Skotlandi og Finnlandi.
Markmið verkefnisins er að virkja ungt fólk í byggða- og samfélagsþróun og skapa vettvang fyrir fræðslu, nýsköpun og frumkvöðlastarf. Þátttakendur frá löndunum þremur munu vinna saman, skiptast á reynslu og ræða meðal annars virka samfélagsþátttöku og hvernig ungt fólk getur haft áhrif á ákvarðanatöku í sínum samfélögum.
Nánari upplýsingr má finna á vef SSNV og með því að hafa samband við Jessicu Aquino hjá Húnaklúbbnum í netfanginu [email protected].