05/09/2026
Fyrir síðasta fund sveitarstjórnar sem haldinn var 3. september lögðum við á L-listanum fram eftirfarandi tillögu til að vinna að lausnum á leigumarkaðnum í sveitarfélaginu. Málið snýst um að fá leigufélagið Bríet, sem er skilgreint sem óhagnaðardrifið leigufélag, til að koma í sveitina. Um er að ræða eitt lykil áherslumál L-listans sem við lögðum mikla áherslu á í kosningunum í vor enda mikil þörf fyrir fleiri leigu úrræði í Hrunamannahreppi.
Gaman er að segja frá því að sveitarstjórn samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að hefja samtalið og vinna málið áfram.
Sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í athugasemd.