Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal

Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal
Banknr: 154-26-4350 kt 500480-0339

🚨Snjóflóðarústabjörgun í Engidal🚨Æfingin tókst frábærlega, að æfingunni komu hátt að 60 félagar og leitarhundar. Við lær...
28/03/2026

🚨Snjóflóðarústabjörgun í Engidal🚨
Æfingin tókst frábærlega, að æfingunni komu hátt að 60 félagar og leitarhundar. Við lærðum mikið og þurfum að æfa margt, sem er jú það sem við viljum fá út úr svona æfingu. Eftir æfingu stefndi allur hópurinn í Félagsheimilið í Hnífsdal þar sem rýnt var í æfinguna, grillaðir hamborgarar og hlustað á fyrirlestra. Við þökkum fyrir frábæran dag.

Takk Halldór Óli, Atli Þór og Gísli Már fyrir allan undirbúning og skipulag.

Í dag stendur mikið til. Sameiginleg snjóflóðarústabjörgun Tinda, HSSK, HSSR og sveita á svæði 7, þessi æfing er einstök...
28/03/2026

Í dag stendur mikið til. Sameiginleg snjóflóðarústabjörgun Tinda, HSSK, HSSR og sveita á svæði 7, þessi æfing er einstök á heimsvísu. Sett er upp sviðsmynd af snjóflóði í Engidal þar sem fólk og hús grafast undir flóði. Mikill metnaður hefur verið lagður í þessa æfingu og hefur undirbúningur staðið í hátt í 20 ár. Fleiri myndir verða settar hér inn þegar líður á æfinguna.

🚨 112-dagurinn 2026 verður haldinn á miðvikudaginn 11. febrúar nk. af hálfu Neyðarlínunnar og samstarfsaðila hennar víðs...
11/02/2026

🚨 112-dagurinn 2026 verður haldinn á miðvikudaginn 11. febrúar nk. af hálfu Neyðarlínunnar og samstarfsaðila hennar víðsvegar um landið.
Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996.
👨‍🚒 Opið hús verður í Guðmundarbúð kl. 16:15-17:30. Slökkvilið og björgunarsveitir verða með bíla og búnað til sýnis þar. 🚒🚓🚑
Slysavarnadeildin Iðunn verður að sjálfsögðu með nýbakaðar vöfflur.
Öll hjartanlega velkomin.

Í kvöld er verið að koma upp nýju hljóðkerfi í Félagsheimilið í Hnífsdal, kerfið er keypt fyrir styrki og fjáraflanir fè...
28/01/2026

Í kvöld er verið að koma upp nýju hljóðkerfi í Félagsheimilið í Hnífsdal, kerfið er keypt fyrir styrki og fjáraflanir fèlagsins, einnig fengum við sérstaklega góða aðstoð frá reyndum hljóðmanni með val á græjum og uppsetningu.
Síðastliðið haust fór einnig upp nýr skjávarpi og tjald.

🎇Flugeldasalan er opin í dag í Félagsheimilinu í Hnífsdal frá kl 18-20.Björgunarfélag Ísafjarðar
06/01/2026

🎇Flugeldasalan er opin í dag í Félagsheimilinu í Hnífsdal frá kl 18-20.
Björgunarfélag Ísafjarðar

Gjafaleikur - vertu meðSmelltu á myndinaMerkja - fylgja - deila
30/12/2025

Gjafaleikur - vertu með
Smelltu á myndina
Merkja - fylgja - deila

Leik Lokið !

Gjafaleikur BFÍ og Björgunarsveitin Tindar 🎆
Kveðjum árið með stæl 🎇
Merktu þann vin sem þú ætlar að fagna nýju ári með,followaðu síðuna,deildu færslunni og þessi glæsilegi pakki gæti orðið þinn 🙂

Drögum út 31 des kl 15❗️🥳

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í R...
30/12/2025

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.

Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.

Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.

Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.

Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.

Meðfylgjandi eru ljósmynd af pakkanum og þeim rakettum sem í honum eru.

Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi

Það er komið að skemmtilegast tíma ársins - flugeldamerkaðurinn í Félagsheimilinu í Hnífsdal opnar mánudaginn 29. desemb...
27/12/2025

Það er komið að skemmtilegast tíma ársins - flugeldamerkaðurinn í Félagsheimilinu í Hnífsdal opnar mánudaginn 29. desember kl. 16:00.
Björgunarfélag Ísafjarðar

16/11/2025
Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa.Í dag 16. nóvember verður haldin minningarathöfn í Guðmundarbúð og minnumst ...
16/11/2025

Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa.

Í dag 16. nóvember verður haldin minningarathöfn í Guðmundarbúð og minnumst við fórnarlamba umferðarslysa.

Í ár verður kastljósinu sérstaklega beint að bílbeltanotkun, m.a. hjá ungum karlmönnum en kannanir hafa leitt í ljós nokkurt bakslag í notkun belta í þessum hópi. Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni.

Viðbragðsaðilar þ.e. Björgunarsveitir í Hnífsdal og á Ísafirði, lögregla og slökkvilið fara fylktu liði með ljósagjörning í hring um bæinn frá Guðmundarbúð að Guðmundarbúð kl. 14:30.
Eftir það kl 15:00 verður smá athöfn í Guðmundarbúð þar sem flutt verða erindi um bílbeltanotkun og séra Magnús verður með hugvekju og síðan mínútu þögn. Kaffi og vöfflur í boði slysavarnadeildarinnar.
Mætum og sýnum samhug.

Á síðasta fundi settumst við niður og hlustuðum mjög einbeitt formanninn eins og sést á meðfylgjandi mynd. Farið var yfi...
30/10/2025

Á síðasta fundi settumst við niður og hlustuðum mjög einbeitt formanninn eins og sést á meðfylgjandi mynd. Farið var yfir útköll í almennum skilningi, okkar aðkomu, okkar framkomu, hverju við viljum breyta og bæta í okkar fari.
Formaðurinn heldur okkur svo sannarlega á tánum.

Okkur var færð gjöf í dag frá afkomendum Ingimars Finnbjörnssonar og  Sigríðar Guðmundsdóttur.Ingimar var fyrsti formaðu...
28/09/2025

Okkur var færð gjöf í dag frá afkomendum Ingimars Finnbjörnssonar og Sigríðar Guðmundsdóttur.
Ingimar var fyrsti formaður slysavarnadeildarinnar, Sigríður var kvenfélagskona í Hvöt og voru þau hjón meðal þeirra sem komu að byggingu Félagsheimilisins, mun þessi styrkur fara í uppfærslu á búnaði eða öðru sem þörf er á í félagsheimilinu.

Dagný Finnbjörnsdóttir formaður slysavarnadeildarinnar og Atli Þór Jakobsson formaður björgunarsveitarinnar taka hér við styrknum frá Ingimari Finnbjörnssyni og Dagmar Halldórsdóttur.

Address

Strandgata 7
Hnífsdalur
410

Telephone

+3544564350

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal:

Share