Snæfellsbær

Snæfellsbær Snæfellsbær er fjölskylduvænn bær í náttúruparadís á Snæfellsnesi. Bæjarfélagið er um 680 ferkílómetrar að stærð og íbúar þess eru ríflega 1700 talsins.

Flestir búa í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Rifi og Hellissandi, en aðrir íbúar eru dreifðir um sveitir þess, Fróðárhrepp, Breiðuvík og Staðarsveit, eða minni þéttbýliskjarna á Hellnum og Arnarstapa. Helstu atvinnuvegir í Snæfellsbæ eru sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta. Styrkum stoðum hefur verið rennt undir menntun með öflugu skólakerfi þar sem lögð er áhersla á metnaðarfullt og lifandi

skólastarf og þá er skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni með besta móti. Í sveitarfélaginu er öflugur leikskóli, góður grunnskóli, frábær tónlistarskóli og fjölbrautaskóli í næsta nágrenni. Skólarnir í Snæfellsbæ hafa allir fengið Grænfánavottun og í þeim er unnið öflugt umhverfisstarf.

Það sem einkennir Snæfellsbæ öðru fremur er hin stórbrotna náttúra sem hér er að finna og hefur ferðaþjónusta vaxið mjög í Snæfellsbæ á undanförnum árum, en Snæfellsjökulsþjóðgarður liggur m.a. að öllu leyti innan marka sveitarfélagsins og dregur að sér fjölmarga gesti ár hvert. Snæfellsbær er vottað umhverfisvænt sveitarfélag og hefur hlotið árlega umhverfisvottun frá EarthCheck frá árinu 2008.

Í Snæfellsbæ er öflugt félagslíf, góð þjónusta við íbúa og mikil nálægð við náttúruna. Hér er allt til alls og gott að búa.

📣 Vilt þú hafa áhrif á menntastefnu Snæfellsbæjar?Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að greina greina stöðu í me...
17/04/2026

📣 Vilt þú hafa áhrif á menntastefnu Snæfellsbæjar?

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að greina greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í Snæfellsbæ og móta framtíðarsýn til næstu ára.

Verkefnið gengur vel og nú er óskað eftir ábendingum íbúa við drög að endurskoðaðri stefnu.

Eru íbúar hvattir til að láta sitt ekki eftir liggja og koma ábendingum á framfæri. 🤝

🔗 Drög að endurskoðaðri stefnu má nálgast í meðfylgjandi frétt.

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar á Hellissandi opnaði í gær fyrir sumarið og á næstu dögum mun tjaldsvæðið í Ólafsvík opna fyrir...
16/04/2026

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar á Hellissandi opnaði í gær fyrir sumarið og á næstu dögum mun tjaldsvæðið í Ólafsvík opna fyrir gestum.

Tjaldsvæðin hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár og fer gestum fjölgandi með hverju ári.

⛺️💯👏

Tjaldsvæðið á Hellissandi opnaði í gær, 15. apríl, fyrir sumarið. Tjaldsvæðið í Ólafsvík opnar á næstu dögum.

Á 400. fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl. var ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu. Í stutt...
14/04/2026

Á 400. fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl. var ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu.

Í stuttu máli má segja að rekstur Snæfellsbæjar hafi komið mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 630 m.kr. á meðan rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 416 m.kr.

Þetta er besta afkoma Snæfellsbæjar frá upphafi, þrátt fyrir að framkvæmdir og fjárfestingar í sveitarfélaginu hafi jafnframt verið meiri á árinu 2025 en áður.

🔗 Nánar um lykiltölur frá fyrri umræði í meðfylgjandi frétt.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026. Frestur til að skila framboðslistum rann út kl. 12:00 á há...
10/04/2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Frestur til að skila framboðslistum rann út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Einungis eitt framboð skilaði inn lista.

Skv. 3. mgr. 46. gr. kosningalaga nr. 112/2021 framlengist framboðsfrestur því um tvo sólarhringa.

🔗 Nánar í meðfylgjandi frétt.

Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9....
09/04/2026

Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:00.

Fundarboð og dagskrá fundar má nálgast í meðfylgjandi frétt.

Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:00.

Minnt er á að í dag, fimmtudaginn 9 apríl 2026, verður hunda- og kattahreinsun í Áhaldahúsinu í Ólafsvík frá kl. 13:00 -...
09/04/2026

Minnt er á að í dag, fimmtudaginn 9 apríl 2026, verður hunda- og kattahreinsun í Áhaldahúsinu í Ólafsvík frá kl. 13:00 - 17:00.

Nánar 👇

Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026. Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hád...
08/04/2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Nánar 👇

Það er óhætt að segja að Hafnir Snæfellsbæjar séu lífæð sveitarfélagsins og má hrósa sjómönnum, fiskvinnslufólki og öðru...
08/04/2026

Það er óhætt að segja að Hafnir Snæfellsbæjar séu lífæð sveitarfélagsins og má hrósa sjómönnum, fiskvinnslufólki og öðrum þjónustuaðilum sjávarútvegsins fyrir afar góðan marsmánuð.

Í mars komu á land 6.300 tonn í 340 löndunum og er það aukning um 9% frá sama mánuði árið 2025. Stærsti dagurinn var tæp 700 tonn.

Frá 1. janúar 2026 hafa komið á land 18.100 tonn, eða 10% aukning frá sama tíma í fyrra.

Vel gert sjómenn, fiskvinnslufólk og allir þjónustuaðilar sjávarútvegsins.

📸 Alfons Finnsson

Tilkynning til íbúa í Ólafsvík 📣Í dag, 31. mars, verður hafist handa við að moka snjó af þvergötum í Ólafsvík.🚧 Byrjað v...
31/03/2026

Tilkynning til íbúa í Ólafsvík 📣
Í dag, 31. mars, verður hafist handa við að moka snjó af þvergötum í Ólafsvík.
🚧 Byrjað verður kl. 9:30 og unnið fram eftir degi.
🤝 Íbúar eru vinsamlegast beðnir að huga vel að lagningu ökutækja og færa bíla af götum fyrir þann tíma svo snjómokstur gangi sem greiðast fyrir sig.

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu. Um er að ræða 50% vak...
30/03/2026

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu.

Um er að ræða 50% vaktavinnu. Umsóknarfrestur til 9. apríl nk.

👇👇👇

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu. Um er að ræða 50% vaktavinnu.

Vilt þú vinna úti í sumar?Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útiv...
26/03/2026

Vilt þú vinna úti í sumar?

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar.

🪏 Sumarvinna með áhaldahúsi Snæfellsbæjar
👷 Flokkstjórar vinnuskólahópa

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.

🔗 Nánari upplýsingar í hlekk.

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar.

Hunda- og kattahreinsun, sem áður var auglýst fimmtudaginn 26. mars, hefur verið frestað vegna veðurs.👉 Ný tímasetning 9...
25/03/2026

Hunda- og kattahreinsun, sem áður var auglýst fimmtudaginn 26. mars, hefur verið frestað vegna veðurs.

👉 Ný tímasetning 9. apríl 2026.

Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.

Address

Klettsbúð 4
Hellissandur
360

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Snæfellsbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share