19/04/2026
Í dag buðum við öllum fimm kvenfélögunum í
sveitarfélaginu í heimsókn í Hellana. Með þessu vildum við fjölskyldan heiðra minningu kvenfélagskvenna og þakka kvenfélagskonum fyrir óeigingjarnt starf. Hanna Valdís Guðjónsdóttir sá um skemmtilega og fróðlega leiðsögn fyrir hátt í 30 kvenfélagskonur og það var virkilega gaman að taka á móti hópnum.
Fyrir áhugasama þá er gaman að segja frá því að fjölskyldan á Ægissíðu var um langt árabil tengd kvenfélagsstarfi. Kristín Filippusdóttir á Ægissíðu 1 (f.1903, d.1971), var fyrsti formaður Kvenfélags Oddakirkju sem stofnað var árið 1963. Þorbjörg Hansdóttir á Ægissíðu 4 (f.1939, d.2013) tók síðan virkan þátt í starfi kvenfélagsins um áratuga skeið.
Kvenfélögin í sveitarfélaginu gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þess bera mörg góð verk vitni. Í þessu samhengi er gaman að rifja upp að kvenfélögin í héraðinu stóðu að stofnun Minningarsjóðs Ólafs Björnssonar héraðslæknis og segir á vefsíðu sveitarfélagsins að Kristín hafi átti frumkvæði að stofnun hans. Markmið sjóðsins var að styrkja á ýmsan hátt heilbrigðis- og sjúkramál fólks í Hellulæknishéraði sem og að styrkja vistheimili fyrir aldraða ef það skyldi reist. Þorgils Jónsson á Ægissíðu (f.1895, d.1986), og Þórhallur Ægir Þorgilsson á Ægissíðu 4 (f.1939, d.2025) nutu síðan einstakrar umönnunar á Hjúkrunarheimilinu Lundi.
Takk fyrir ómetanlegt framlag kæru kvenfélagskonur ❤️