Flugbjörgunarsveitin Hellu

Flugbjörgunarsveitin Hellu Flugbjörgunarsveitin Hellu

Stofnuð 1951

410775-0269
0358-22-001626

VIÐVÖRUN – Fake Facebook prófíllÞað hefur verið búið til fake Facebook prófíl í nafni Sindratorfærunnar Hellu.Þetta er e...
29/04/2026

VIÐVÖRUN – Fake Facebook prófíll

Það hefur verið búið til fake Facebook prófíl í nafni Sindratorfærunnar Hellu.

Þetta er ekki okkur tengt.
Við búum ekki til persónulega prófíla fyrir viðburðinn.

Við biðjum ykkur um að:

* Ekki samþykkja vinabeiðnir frá þessum aðila
* Ekki smella á tengla eða svara skilaboðum

Vinsamlegast reportið prófílinn til Facebook ef þið sjáið hann, það hjálpar að loka honum sem fyrst.

Endilega deilið þessu svo sem flestir sjái.

Takk fyrir hjálpina.

28/04/2026

Sindratorfæran Hellu 2026

28/04/2026

Sindratorfæran Hellu 2026

ATH!!!Á morgun laugardaginn 25.apríl frá ca kl 09:00 verður hópslysaæfing niður við Bakkaflugvöll með öllum viðbragðsaði...
24/04/2026

ATH!!!
Á morgun laugardaginn 25.apríl frá ca kl 09:00 verður hópslysaæfing niður við Bakkaflugvöll með öllum viðbragðsaðilum. Þannig ekki láta ykkur bregða við að sjá mikla umferð viðbragðsaðila á svæðinu.

🚨 VEÐURVIÐVÖRUN & FÆRÐ 🚨Gleðilega páska 🐣Á morgun er útlit fyrir erfiðum veðurskilyrðum víða um land og hefur verið gefi...
05/04/2026

🚨 VEÐURVIÐVÖRUN & FÆRÐ 🚨

Gleðilega páska 🐣
Á morgun er útlit fyrir erfiðum veðurskilyrðum víða um land og hefur verið gefin út gul og appelsínugul veðurviðvörun.

Vegagerðin stefnir á lokanir á vegum á Suður- og Suðausturlandi frá morgni (um kl. 07:00) og gætu þær staðið fram eftir degi eða þar til veður gengur niður.

Við hvetjum alla vegfarendur til að:
• Fylgjast vel með veðri og færð
• Kanna aðstæður áður en lagt er af stað
• Endurmeta ferðaplön ef þörf er á

Best er að sleppa óþarfa ferðum á þessum slóðum á meðan á þessu stendur.

Upplýsingar má finna á:
https://www.vegagerdin.is/ og https://www.vedur.is/

Farið varlega og hugið að öryggi 💛

10. mars sl. hélt félagið sinn árlega aðalfund en á honum var kosið um formann, tvo meðstjórnendur og tvo varamenn í stj...
13/03/2026

10. mars sl. hélt félagið sinn árlega aðalfund en á honum var kosið um formann, tvo meðstjórnendur og tvo varamenn í stjórn.

Ný stjórn er þá:

Stefán Smári Ásmundarson, formaður.
Emil Kárason, varaformaður.
Ingibjörg Jónína Steinsdóttir, gjaldkeri.
Elvar Páll Sævarsson, ritari.
Rúnar Steinn Gunnarsson, meðstjórnandi.

Ólafur Bjarni Þorsteinsson, varamaður.
Elín Hjartardóttir Stolzenwald, varamaður.

Við þökkum fyrri stjórnarmeðlimum kærlega fyrir starf sitt innan stjórnar og bjóðum nýjum meðlimum velkomna til starfa.

03/03/2026
Í dag fylgjum við góðum félaga síðasta spölinn og því er ekki úr vegi að minnast hans hér í nokkrum orðum.-Einar Brynjól...
05/02/2026

Í dag fylgjum við góðum félaga síðasta spölinn og því er ekki úr vegi að minnast hans hér í nokkrum orðum.

-

Einar Brynjólfsson - Einar í Götu
18. 12.1937 - 23.01.2026

Kveðja frá Flugbörgunarsveitinni á Hellu

Einar Brynjólfsson félagi í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu eða Einar í Götu eins og við kölluðum hann er nú genginn í Sumarlandið. Á slíkum tímamótum er eðlilegt að við minnumst okkar góða félaga þegar hann var hvað atkvæðamestur innan sveitarinnar. Léttleiki hans og frásagnarlist koma sannarlega upp í hugan og ekki hvað síst sú vinátta og umhyggja sem einkenndu framgöngu hans. Þegar talað er um Sumarlandið er við hæfi að tala einnig um vetrarland hálendisins, en á þeim slóðum átti Einar margar eftirminnilegar stundir bæði sem vélsleðamaður eða ökumaður á ökutækjum björgunarsveitarinnar. Það er staðföst trú okkar að þessi öðlingur haldi þar áfram með glaðværð sína og frásagnarlist í björgunarsveit almættisins. Einar gekk í Flugbjörgunarsveitina á Hellu snemma á áttunda áratug síðustu aldar og er óhætt að segja að hann hafi verið virkur félagi allt fram undir það síðasta. Þar sem Einar var einn af eldri félögum Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu bjó hann yfir mikilli reynslu bæði af fjallamennsku, rötun og í meðferð ökutækja við erfiðar aðstæður. Hann var góður vinur jafnt hvað varðar eldri- og yngri félaga sveitarinnar. Það eru eftirminnilegar ferðirnar og útköllin sem Einar tók þátt í og óhætt er að segja að hann hafi verið bæði varkár og áræðin þegar aðstæður voru erfiðar. Skaplyndi Einars var einstakt og var hann fljótur að sjá jákvæðu hliðarnar á aðstæðum og málefnum. Hann var góður sögumaður og var oft gaman að hlusta á hann segja frá hvort heldur þeim atburðum sem tengdust björgunarsveitaferðum eða öðrum þeim ferðum sem hann tók þátt í. Gaman hefði verið að segja hér frá nokkrum slíkum ferðum, en ein var sú ferð sem Einar tók þátt í sem var nokkuð einstök. Það var þegar hann leiddi hóp íslenskra björgunarmanna og björgunartækja um götur Þórshafnar í Færeyjum sumarið 2008 akandi í fararbroddi á Hagglud snjóbíl Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Það er óhætt að fullyrða að það eru ekki margir sem hafa ekið snjóbíl um miðbæ Þórshafnar. Einar var lengst af virkur meðlimur í bílaflokki sveitarinnar og fylgdist hann vel með starfinu eftir að halla tók undan fæti. Einar gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Flugbjörgunarsveitina og sat þar m.a. í stjórn í nokkur ár og gegndi þar formennsku fyrst á árinu 1993 - 1994 og síðar á árunum 2000 – 2002. Hann tók einnig virkan þátt í svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 16, en þar kom reynsla hans og þekking oft að góðu haldi. Hann gladdi okkur félagana sérstaklega þegar hann mætti síðast á aðalfund sveitarinnar 2025. Einar var gerður að heiðursfélaga Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu í febrúar 2013. Um leið og við félagar í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu sjáum á eftir góðum og traustum félaga, þá sendum við Sigrúnu eiginkonu hans sem ætíð stóð við hlið eiginmannsins eins og klettur, svo og afkomendum hans og vinum innilegar samúðarkveðjur.

Fyrir hönd félaga í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu.

Sigurgeir Guðmundsson

Heklusýn ehf styrkir Flugbjörgunarsveitina á Hellu með því að kaupa stóra Neyðarkallin. Þökkum þeim kærlega fyrir stuðni...
26/01/2026

Heklusýn ehf styrkir Flugbjörgunarsveitina á Hellu með því að kaupa stóra Neyðarkallin. Þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn 🫶🏼

Flugeldasölunni er lokið hjá okkur að sinni! 🎆Þetta er ein af okkar stærstu fjáröflunum og við viljum þakka ykkur innile...
07/01/2026

Flugeldasölunni er lokið hjá okkur að sinni! 🎆

Þetta er ein af okkar stærstu fjáröflunum og við viljum þakka ykkur innilega fyrir stuðninginn. Salan gekk með prýði og við vonum að allir hafi heldur betur skemmt sér í að fagna nýju ári 🥳

Viljum líka minna fólk á að henda flugelda úrganginum – það er ennþá gámur fyrir utan hjá okkur þar þið getið komið með flugelda ruslið ykkar 🚮

💥 Bara 355 dagar til næstu sölu - hlökkum til! 💥

Address

Dynskálum 34
Hella
850

Telephone

4875940

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flugbjörgunarsveitin Hellu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Flugbjörgunarsveitin Hellu:

Share