22/05/2026
Forseti Íslands heimsækir Lund 🥰
Í gær var stór og fallegur dagur hér á Lundi!
Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands, ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni kom og heimsótti íbúa og starfsfólk Lundar.
Það var okkur öllum mikill heiður að taka á móti þeim hjónum.
Það var yndislegt að sjá hvað þau gáfu sér tíma til að tala við alla og hlusta á það sem fólk hafði að segja frá eða sýna ❤️
Kór eldri borgara heiðraði okkur einnig með nærveru sinni og söng falleg lög fyrir forsetann eins og þau gera svo oft fyrir okkur hér á Lundi.
Sveitarstjórar beggja aðildarsveitarfélaga Lundar komu og tóku þátt í þessari gleðistund með okkur, ásamt Sr. Elínu Hrund og stjórn Lundar.
Þetta er dagur sem gleymist seint - gott að eiga fallegar minningar.
Takk fyrir hlýlega og notalega samveru öll sem nutuð dagsins með okkur.
Og hjartans þakkir fyrir komuna Frú Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason.
Þakklæti er okkur öllum efst í huga hér á Lundi 🥰